Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 27

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 27
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. I skóla. Starf við heilsugæslu í skólum er bæði sjálfstætt og fjölbreytt. Það er í mikilli þróun og tækifærin margvísleg. Starfið felst m.a. í stuðningi við skóla- börn og fræðslu. Um er að ræða bæði hlutastörf og fullt starf. Starf við barnadeild. Starfið er einnig sjálfstætt og þróast ört. Felst í heimilsvitjunum og móttöku, stuðningi við fjöl- skyldur með ung börn og fræðslu. Nánari upplýsingar gefur Bergljót Líndal hjúkrun- arforstjóri í síma 22400, helst á milli kl. 09:00- 10:00. STÖÐUR HJÁ WHO HFÍ vekur athygli hjúkrunarfræðinga á að lausar eru ýmsar stöður á vegum WHO, þar á meðal stöður hjúkrunarfræðinga. Upplýsingar liggja frammi á skrifstofu HFÍ. World Health Organization Organisation Mondia- le De La Sante. NÁMSKEIÐ - RÁÐSTEFNUR: Nánari upplýsingar um eftirtaldar ráðstefnur má fá á skrifstofu HFÍ í síma 687575 nema annað sé tekið fram. SLYS í EFNAIÐNAÐI Fyrsta alþjóðlega námskeiðið um slys í efnaiðn- aði, séð frá læknisfræðilegu sjónarmiði, verður haldið 4.-8. mars 1991 í Hásselby kastala í Sví- Þjóð. lífeðlisfræði, mat á vinnuálagi Námskeið í lífeðlisfræði með sérstakri áherslu á mat á vinnuálagi verður haldið 8.-12. apríl 1991 í Rönneberga kursgaard, Lindingö, Svíþjóð. ÖRYGGI OG VINNUVISTFRÆÐI Námskeið um öryggi og vinnuvistfræði við skipu- lagningu vinnuumhverfis verður haldið 15.-19. ap- ríl 1991 í Carelia Congress, Lappeenranta, Finnl- andi. STJÓRNUN ÖRYGGISMÁLA Námskeið í stjórnun öryggismála á Norðurlönd- um verður haldið 2.-6. september á Hótel Pom- mern, Mariehamn, Aaland, Finnlandi. STARFSMANNAHEILSUVERND Námskeið í starfsmannaheilsuvernd verður haldið 25.-29. nóvember1991 í Aspenás, Lerum, Gautaborg, Svíþjóð. STARFSMANNAHEILSUVERND Alþjóðleg ráðstefna um starfsmannaheilsuvernd verður haldin í Cardiff, Wales, Englandi dagana 11.-13. desember 1991. SKURÐSTOFUHJÚKRUN Alþjóðleg ráðstefna um skurðstofuhjúkrun verður haldin 2.-6. september 1991 í Vancouver, British Colombia, Kanada. ALNÆMI Önnur evrópska ráðstefnan um alnæmi fer fram 19.-22. nóvember 1991 í Amsterdam í Hollandi. ALNÆMI Námskeið í hjúkrun sjúklinga með alnæmi verður haldið 19.-29. maí 1991 í London. HJÚKRUNARRANNSÓKNIR Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um hjúkrunarrann- sóknir verður haldin dagana 15.-17. júlí 1991 í Adelaide í Suður- Ástralíu. Tölvunámskeið Hjúkrunarfélag íslands stendur fyrir tölvunám- skeiði dagana 22. apríl til 10. maí 1991. Kennari: Hallur Karlsson rafmagnstæknifræðingur. Efnis- þættir: Grundvallaratriði varðandi tölvunotkun, ritvinnsla, töflureiknir, gagnagrunnur og umræð- ur. Kennt verður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 19:30-22:00. Kennslan fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík. Upplýsingar og innritun hjá Hjúkrunarfélagi ís- lands í síma 687575. HJÚKRUN '/„-67. árgangur 27

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.