Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 13

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 13
lokið hafa sérnámi í Nýja hjúkrunarskólanum eða sam- bærilegu námi erlendis frá fái enn frekari styttingu á náminu. Þá hefur verið rætt um að nemendur taki a.m.k. 14 einingar af valnámskeiðum í kjarna. Gert er ráð fyrir að hjúkrunarnámskeið séu sérskipulögð en aðrar námsgreinar séu teknar með nemendum í hinni hefðbundnu 4 ára námsleið. Hægt er að ljúka náminu á allt að 6 árum. Sérskipulagt B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga — Námskrá: *Hjúkrun sem fræðigrein 3 ein. *Sjálfstæð meðferðarform í hjúkrun 4 ein. Heimspekileg forspjallsvísindi 3 ein. Lífeðlisfræði 5 ein. Tölfræði 2 ein. Rannsóknir í hjúkrun 3 ein. Heilsugæsla 6 ein. Kennsla og fræðsla í hjúkrun 5 ein. *Hjúkrun I (einstaklingsverkefni) 2 ein. *Hjúkrun II (einstaklingsverkefni) 2 ein. Stjórnunarfræði 3 ein. Rannsóknir í hjúkrun — Lokaverkefni 3 ein. Valgreinar 19 ein. *Sérskipulögð námskeið Valnámskeið í kjarna: 02.03.05 Félagsfræði I ................... 3 ein. 02.03.15 Efnafræði ....................... 3 ein. 02.03.28 Sálarfræði....................... 3 ein. 02.03.02 Líffærafræði..................... 4ein. 02.03.03 Frumulíffr., vefjafr. og lífefnafr. 5 ein. 02.03.06 Félagsfræði II................... 3 ein. 02.03.14 Almenn örverufræði .............. 2 ein. 02.03.20 Fósturfræði...................... 2 ein. 02.03.23 Vöxtur og þroski barna og ungl. 3 ein. 02.03.25 Lyfjafræði....................... 4ein. 02.03.27 Sýkla-og ónæmisfræði ............ 3ein. 02.03.35 Heilbrigðisfræði og faraldsfræði 3ein. 02.03.36 Næringarfræði ................... 2 ein. 40 ein. Valnámskeið utan kjarna: 02.03.26 Meinafræði.................... 4 ein. 02.03.34 Fæðingarfræði ................ 2 ein. 02.03.31 Handlæknisfræði .............. 3 ein. 02.03.32 Lyflæknisfræði................ 3 ein. 02.03.30 Barnasjúkdómar ............... 2 ein. 02.03.40 Geðsjúkdómafræði ............. 2 ein. 16 ein. Námskeiðslýsingar sérskipulagðra námskeiða: Hjúkrun sem fræðigrein. 3 ein. H (20 F 30U 12Æ) Fjallað verður um grundvallarhugtök hjúkrunar sem fræðigreinar. Fyrirlestrar eru valdir í samráði við nem- endur að einhverju leyti. Hjúkrunarkennarar setja fram þau þemu, sem tilheyra fagmennsku í hjúkrun, og vinna með 6-8 manna hóp að því að kryfja þau til mergjar. Dæmi um hugtök og viðfangsefni: Fagleg fé- lagsmótun; Hjúkrunarkenningar; Hjúkrunarsaga; Heilsuferlið- heilbrigði; íslenska heilbrigðisþjónustan; Hjúkrunarferlið; Tjáskipti; Mannleg samskifti; Tengslamyndun í starfi hjúkrunarfræðinga; Fagleg umhyggja; Að gæta réttar skjólstæðinga; Áhrif hjúkr- unarfræðinga (í starfi, í þjóðfélaginu); Framtíðarsýn í hjúkrun. Einnig kæmu til greina önnur þau hugtök og viðfangsefni sem kennarar myndu vilja vinna með hópnum að. Þetta er nokkurs konar inngangsnámskeið í þessarri sérskipulögðu námsleið og lögð áhersla á, lestur fagtímarita, fagleg greinaskrif og annað er varð- ar fræðileg vinnubrögð í háskóla. Námsefni: Tímaritsgreinar og bókakaflar. Námsmat: Einstaklingsritgerð, (lein.) um sjálfval- ið efni á sviði fagmennsku í hjúkrun. Hópverkefni (4 nem.), (2 ein.) um þema tengt hópumræðutímum. Sjálfstæð meðferðaform í hjúkrun 4 ein. V (36F 20U 12Æ) Námskeiðið skiptist í tvo hluta. í fyrri hlutanum verða skoðaðar ólíkar grundvallarhugmyndir varðandi hvernig litið er á skjólstæðinga/sjúklinga sem mann- eskjur og í tengslum við það verði gert mat á þörfum ákveðins sjúklingahóps sem nemendur velja sér (1.5 ein.). Lögð verður áhersla á einstaklingsbundna upp- lifun skjólstæðinga af sjúkdómum/fötlunum/missi og það hvernig heilbrigðisþjónustan kemur til móts við þarfir tengdar slíkri upplifun. í síðari hlutanum skoða nemendur viðeigandi hjúkrunarmeðferðir fyrir þann sjúklingahóp, sem þeir hafa valið sér, og semja áætlun um hvernig best verði komið til móts við sjúklingana (2.5 ein.). Dæmi um hugtök/hjúkrunarmeðferðir sem lögð verður áhersla á eru: Umhyggja, streita og streitu- viðbrögð, heilbrigðisfræðsla, ýmis form slökunar, ýmsar aðferðir við þróun meðferðarsambands, verkir, ógleði, svefnleysi, andþyngsli, skert hreyfigeta og sjálfsvirðing. Námsefni: Tímaritsgreinar og bókakaflar. Námsmat: Tvær einstaklingsritgerðir : 1.5 ein. og 2.5 ein. HJÚKRUN ‘/„-67. árgangur 13

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.