Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 44
Gjöf frá
Hjúkrunar-
félagi
Islands
í desember sl. afhenti formaður
Hjúkrunarfélags íslands, Maríu
Pétursdóttur, fyrrverandi skóla-
st jóra Nýja hjúkrunarskólans, pen-
ingastyrk.
Stjórn Hjúkrunarfélags íslands
ákvað að veita Maríu styrkinn til að
skrá sögu hjúkrunar á Islandi. Af-
hendingin fór fram þann 14. desem-
ber sl. í hófi sem Maríu var haldið í
húsakynnum félagsins að viðstödd-
um nokkrum fyrrverandi kennur-
um Nýja hjúkrunarskólans og
skólanefnd ásamt stjórn HFÍ og
öðrum gestum.
L.Ó. og s.s
María Pétursdóttir fyrrverandi skólastjóri
Nýja Hjúkrtmarskóians.
* fréttir
Stjórn Reykjavtkurdeildarinnar. Sitjandi frá vinstri: Anna Sigríðtir Indriðadóttir, Ágústa Jó-
hannsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Jóna Guðmundsdóttir, Matthea Ólafsdóttir, Guðmunda
Sigurðardóttir og Sigurveig Sigurðardóttir. Ljósmynd: L.Ó.
Stjórnarskipti í Reykja-
víkurdeild HFÍ
Aðalfundur deildarinnar var
haldinn 31. janúar 1991. Á fundin-
um var kosinn formaður og ný
stjórn þar sem kjörtímabili allra
stjórnarmanna var lokið.
Stjórn deildarinnar var þannig
skipuð á síðastliðnu starfsári:
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, for-
maður.
Maríanna Csillag, varaformaður
Stefanía G. Snorradóttir, gjald-
keri.
Inga Björnsdóttir, ritari.
Sigrún Oskarsdóttir, varamaður.
Sigurður Helgi Guðmundsson,
varamaður.
Ný stjórn er þannig skipuð:
Ágústa Jóhannsdóttir, formað-
ur.
Anna Sigríður Indriðadóttir,
varaformaður.
Sigurveig Sigurðardóttir, gjald-
keri.
Matthea Ólafsdóttir, ritari.
Jóna Guðmundsdóttir, vara-
maður.
Guðmunda Sigurðardóttir,
varamaður.
Formaður deildarinnar er í 30%
starfi og hefur fasta viðveru og við-
talstíma á skrifstofu HFÍ á mánu-
dögum kl. 15:00-17:00.
L.Ó./S.S.
44 HJÚKRUN 67. árgangur