Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 39

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 39
viðbótar- og endurmenntun hjúkrunarfræðinga verði í Há- skóla íslands. Þessar stóru ákvarðanir tel ég að hafi í för með sér að tekist verði á við ný verkefni og nýja forgangs- röðun verkefna. Ég tel mikilvægt að hjúkrunar- fræðingar standi saman við að styrkja stöðu hjúkrunar innan heil- brigðisþjónustunnar. Það kemur öllum til góða, sjúklingum og öðr- um skjólstæðingum, hjúkrunar- fræðingum sem og hjúkrunarstétt- inni og heilbrigðisþjónustunni í heild. Ég vil leggja áherslu á góða sam- Ólína Torfadóttir: Nám: Ólína lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1962. Hún brautskráðist frá HSÍ 1. mars 1974. B.Sc. í gjörgæsluhjúkr- un, Svíþjóð. Viðskiptafræðingur B.Sc. ogphil. kandístjórnun innan heilbrigðiskerfisins frá háskólanum í Lundi, Svíþjóð. Hjúkrunarvísindi frá Halsovaardshögskolan í Gauta- borg ásamt öðrum námskeiðum í stjórnun og hjúkrun. Starfsferill: Ólína hefur stundað kennslu- störf. Starfaði sem hjúkrunarfræð- ingur á Borgarspítala, ennfremur hjúkrunarfræðingsstörf innan ým- issa sérgreina erlendis. Stjórnunar- störf innan hjúkrunar á Háskóla- sjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð og á Ljórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri. vinnu við aðrar heilbrigðisstéttir og auka samvinnu ekki síst við þá hópa heilbrigðisstarfsfólks sem sinna hjúkrunar- og umönnunar- störfum. Ég tel afar áríðandi að leitað verði nýrra leiða til að kynna hjúkr- unarstarfið einkum fyrir þeim hóp- um sem standa frammi fyrir vali á lífsstarfi. Ég vona að sem formaður Hjúkr- unarfélags Islands geti ég í sam- vinnu við aðra hjúkrunarfræðinga unnið þessum verkefnum og öðrum hagsmunamálum hjúkrunarfræð- inga brautargengi. Ólína Torfadóttir. Menntun mín á sviði hjúkrunar- stjórnunar og á rekstri fyrirtækja/ félaga er æskilegur grunnur til að byggja formannsstarfið á. Ég hef ennfremur þekkingu á starfsvett- vangi hjúkrunarfræðinga, en sú þekking er nauðsynleg þeim sem fara með forystu félagsins. Ég tek það fram að erfitt er að koma með einhliða stefnuskrá, því fyrst þarf staða félagsins að vera fullkomlega þekkt og enn fremur vilji félagsmanna. Helstu mál, sem ég vil vinna að í þágu félagsins eru eftirtalin: Félagsmál: Mikið starf hefur þegar verið unnið í sambandi við sameiningu hjúkrunarfélaganna og er það þakkarvert. Ég er tilbúin að vinna að sameiningu félaganna og á þann hátt stuðla að einu sterku fag- og stéttarfélagi hjúkrunarfræðinga í landinu. Ég tel mikilvægt að formaður skapi meiri tengsl við deildir félags- ins og ég legg áherslu á að hjúkrun- arfræðingar geti vænst félagslegs og faglegs stuðnings frá félaginu, enn- fremur tel ég að HFI þurfi að taka afstöðu í þjóðfélagsmálum. Menntunarmál: Hraða þarf framhaldsmenntun- arleiðum fyrir hjúkrunarfræðinga, sem hafa grunnnám í hjúkrun. Enn fremur má ekki draga úr mikilvægi sí- og endurmenntunar innan stétt- arinnar. Fagmál: Ég vil vinna að því að á vegum HFI starfi hjúkrunarfræðingur sem sé ábyrgur fyrir t.d. þróun innan hjúkrunar og geti miðlað þeirri þekkingu til félagsmanna. Kjara- og umhverfismál: Við næstu samningagerð vil ég vinna að því að hjúkrunarfræðinga- stéttin fái launalega viðurkenningu á störfum sínum. Ég tel einnig að vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga annað en laun sé eitt af ábyrgðar- sviðum félagsins. Valddreifíng: Ég vil vinna að því að könnun verði gerð á því hvaða áherslur fé- lagsmenn vilji að HFI hafi í starfi sínu og þannig auka virkni félags- manna og um leið möguleika þeirra á að vera með í ákvarðanatöku. Sameining HFÍ og FHH, breyttar áherslur og valddreif- ing í rekstri HFÍ HJÚKRUN '/„-67. árgangur 39

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.