Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 25

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 25
LAUSAR STOÐUR LANDSPÍTALTNN Geðdeild Landspítalans Hjúkrunarfræðingar! Við þurfum mjög á vinnu- framlagi ykkar að halda. Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á húsakosti og allri aðstöðu á geðdeild Landspítalans, allt frá bráða- móttöku til endurhæfingar. Möguleiki er á fullu starfi eða hlutastarfi, jafnvel sveigjanlegum vinnutíma. Boðið er upp á skipulagða starfsaðlögun. Sækja má um húsnæði og barnaheimili. Upplýsingar gefnar hjá hjúkrunarforstjóra í síma 602600. LANDSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar! Lausar stöður á almennu hjúkrunarsviði. Um er að ræða stjórnunarstöður; stöður hjúkrun- arstjóra, hjúkrunardeildarstjóra og aðstoðar- hjúkrunardeildarstjóra, K-1 og K-ll stöður. Éinnig stöður hjúkrunarfræðinga, fullt starf eða hluta- starf, vaktavinnu, dagvinnu eða fastar næturvakt- ir. Boðið er upp á: ■ Einstaklingshæfða starfsaðlögun með leiðbein- anda. - Sveigjanlegt vaktafyrirkomulag. - Víða unnin 3ja hver helgi. - Góð tækifæri til símenntun- ar. - Ýmsar nýjungar eru á döfinni, s.s. frammist- öðumat, sem er að hefjast á öllum deildum. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu hjúkrunarfor- stjóra eða hjá viðkomandi hjúkrunarframkvæmd- astjórum í síma 601300. SJÚKRAHÚSIÐ SEYÐISFIRÐI Sjúkrahúsið á Seyðisfirði óskar eftir að ráða tvo hjúkrunarfræðinga til starfa og hjúkrunarfræð- inga til sumarafleysinga. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 97-21406. Ágætu hjúkrunarfræðingar! Á Borgarspítalanum eru miklir möguleikar fyrir hjúkrunarfræðinga til þroska í starfi vegna fjöl- breyttra viðfangsefna, hvatningar og tækifæra til símenntunar. Einnig styrkir spítalinn hjúkrunarfræðinga sína með ýmsu móti. Má þar nefna: * klíníska sérfræðinga í hjúkrun, sem m.a. eru til ráðgjafar varðandi hjúkrun sjúklinga með flókin hjúkrunarvandamál; * fagbókasafn, þar sem bókasafnsfræðingur annast upplýsingaöflun samkvæmt óskum starfsfólks; * hjúkrunarfræðsludeild, sem býður upp á fjöl- þætta möguleika til símenntunar og ýmiss konar faglega ráðgjöf; * sjúklingaflokkun, þar sem fylgst er með hjúkru- anrálagi deilda. Hjúkrunarfræðingar á Borgarspítala hafa frum- kvæði að fjölmörgum faglegum verkefnum, t.d. fræðslu fyrir sjúklinga og starfsfólk, skráningu hjúkrunar og fleiru. Þannig gefst þeim tækifæri til að hafa áhrif á þróun hjúkrunar. Einnig er kennsla, ráðgjöf og þátttaka í rannsóknum vax- andi þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga. Nú þegar eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á hinum ýmsu deildum spítalans. Verið velkomin og leitið frekari upplýsinga hjá Ernu Einarsdóttur hjúkrunarframkvæmdastjóra í síma 696356. SJÚKRAHÚSIÐ Á HÚSAVÍK SF. Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar og til sum- arafleysinga. Ljósmóðir óskast til sumarafleysinga. Hringið og kannið málið. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96- 41333. SJÚKRAHÚS AKRANESS Hjúkrunarfræðinga vantar á lyflækningadeild og handlækningadeild. Einnig vantar hjúkrunar- fræðinga til sumarafleysinga á legudeild og skiptistofu. Vinnuaðstaða er mjög góð og starfsandinn einnig. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 93-12311. HJÚKRUN ‘/„-67. árgangur 25

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.