Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 14

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 14
* fræðslumál Hjúkrun I og II (2+2 ein.) H og V (12F 20U 12Æ). Tvö sjálfstæð námskeið sem byggja verulega á sjálfs- námi. Nemendur velja sér tvö af eftirtöldum sérsviðum innan hjúkrunar: Öldrunarhjúkrun, barnahjúkrun, hjúkrun fullorðinna, fæðingar- og kvenhjúkrun eða geðhjúkrun og gera sjálfstætt verkefni undir leiðsögn kennara. Jafnframt eru 12 F í hvoru námskeiði þar sem tekin eru fyrir efni innan hjúkrunar sem nemendum finnst þörf á að fá fyrirlestra um. Einnig eru umræðu- fundir þar sem efni fyrirlestranna er rætt. Námsefni: Tímaritsgreinar og bókakaflar. Námsmat: Einstaklingsritgerð. Þróun mála erlendis Það var í kringum 1968 sem sérskipulagðar náms- leiðir til B.S. gráðu fyrir hjúkrunarfræðinga fóru að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum (Church, Brian & Searight, 1980). Aður en þær komu til sögunnar þurftu hjúkrunarfræðingar að taka þriggja og jafnvel allt að fjögurra ára nám til að ljúka B.S. gráðu. í hinum tveggja ára sérskipulögðu námsleiðum er fyrra nám og reynsla hjúkrunarfræðinga viðurkennd. Með þessu er verið að viðurkenna að fyrri menntun og reynsla jafn- gildi tveimur árum í háskólanámi. Um langt árabil hefur því hjúkrunarfræðingum í Bandaríkjunum staðið til boða sérskipulagðar náms- leiðir til B.S. gráðu. í könnun, sem gerð var af Susan Galliford og birt var 1980, kom fram að þá voru 318 háskólar sem buðu upp á einhverja styttingu á 4 ára B.S. námi svo og einhver stöðupróf, en 146 háskólar buðu upp á sérstaka 2ja ára sérskipulagða námsleið fyrir hjúkrunarfræðinga. I nýjum bæklingi National League for Nursing, Baccalaureate Education in Nursing: Key to a Profes- sional Career in Nursing 1989-1990 koma fram sam- svarandi tölur fyrir skólaárið 1989-’90. Par kemur fram að af 526 háskólum í Bandaríkjunum, sem bjóða upp á B.S. nám, eru aðeins 2 háskólar sem ekki bjóða upp á sérskipulagt B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga, hins vegar eru alls 95 háskólar sem aðeins bjóða upp á slíkt sérskipulagt B.S. nám, þ.e. eru ekki með hið 4 ára hefðbundna B.S. nám líka. Það er því 431 háskóli sem býður upp á hefðbundið 4 ára B.S. nám, en 524 háskól- ar sem bjóða upp á sérskipulagt B.S. nám fyrir hjúkr- unarfræðinga. Margar þessar sérskipulögðu námsleið- ir eru tiltölulega nýjar og í sumum þessum háskólum er mikillfjöldihjúkrunarfræðingaíB.S. námi, s.s. í„Cali- fornia State University — Statewide Nursing Pro- gram“ en í það voru 2611 hjúkrunarfræðingar skráðir að hausti 1988. Þessi stóraukna sókn hjúkrunarfræð- inga í sérskipulagt B.S. nám í Bandaríkjunum kemur glögglega fram í eftirfarandi töflum: Ár Ú fSKRIFT ÚR B.S. NÁIV II Útskrifaðir alls Hefðbundi ) B.S. nám Sérskipu- lögð náms- leið f. hjúkr.fr. Nem. í 4 ára námi Hjúkr.fr. 1976-77 28.872 23.452 3.001 1.919 1977-78 30.309 24.187 3.774 2.348 1978-79 31.462 25.048 4.034 2.380 1979-80 32.312 24.994 4.477 2.841 1980-81 32.608 24.370 4.872 3.366 1981-82 33.252 24.081 5.748 3.423 1982-83 32.748 23.855 5.654 3.239 1983-84 33.803 23.718 6.275 3.810 1984-85 34.569 24.975 5.587 4.007 1985-86 35.550 25.170 5.698 4.682 Tafla 1. Útskrift hjúkrunarfræöinema og hjúkrunarfræð- inga með B.S.próf: 1976-77 til 1985-86 í Banda- ríkjunum. Heimild: Rosenfeld, 1988, bls. 46. Ár INNRITUN f B.S. NÁM Innritaðir alls Hefðbundi ) B.S. nám Sérskipu- lögð náms- leið f. hjúkr.fr. Nem. í 4 ára námi Hjúkr.fr. 1977 124.578 101.430 14.032 9.116 1978 125.337 99.900 16.550 8.887 1979 126.612 98.939 16.987 10.686 1980 129.111 95.858 20.722 12.531 1981 126.881 93.967 19.650 13.264 1982 129.125 94.363 20.933 14.729 1983 137.792 98.941 21.192 17.659 1984 136.120 95.008 22.520 18.592 1985 133.960 91.020 22.812 20.128 1986 127.957 81.602 25.247 21.108 Tafla 2. Innritaðir hjúkrunarfræðinemar og hjúkrunar- fræðingar í nám til B.S. prófs: 1976-77 til 1985-86 í Bandaríkjunum. Heimild: Rosenfeld. 1988, bls. 36. 14 HJÚKRUN '/91—61. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.