Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 16

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 16
* fræðslumál keiða, t.d. voru 96% nemenda í 4 ára náminu á stigi „upphafs fullorðinsára“, en meirihluti hjúkrunarfræð- inganna voru á stigi „spurnar og endurmats á fyrri ákvörðunum í lífinu“. Varðandi persónuþroska kom í ljós marktækur munur á hópunum. I ljós komu ekki aðeins ólíkar þarfir og markmið heldur var upplifun þessarra Itópa varðandi eigið líf og atburði eigin lífs talsvert ólík. Aðrar rannsóknir hafa staðfest þennan mun á þessum nemendahópum (King, 1988; Muzio & Ohashi, 1979). Þettaþýðiraðhafaverðurþennanþáttí huga í skipulagningu á náminu. Álag á hjúkrunarfræðinga í B.S. námi Til þess að gera mér betri grein fyrir vinnuálaginu, sem þessi hópur myndi hugsanlega glíma við, spurði ég í könnun minni um fjölda og aldur barna. Eftirfarandi kom í ljós varðandi þá 72 hjúkrunarfræðinga sem svör- uðu þessari spurningu: Ekkert barn.............................. 7 1 barn.................................... 10 2 börn.................................... 24 3 börn.................................... 19 4 börn..................................... 9 5 börn..................................... 3 Flestir eiga því 2-3 börn og þarf að taka það með í reikningsdæmið að um er að ræða, í langflestum tilvik- um, konur með heimili og börn. Aðeins var um einn karlmann að ræða, hitt voru allt konur. Þetta kemur heim og saman við reynsluna erlendis frá. Flestar rann- sóknir sýna að um er að ræða konur í miklum meiri- hluta, sem hafa oftast talsverða fjölskylduábyrgð og þurfa því meiri sveigjanleika í námstilhögun (Baj, 1985; Fotos, 1987; Perry, 1986). Green (1987) bendirá að hjúkrunarfræðingar í B.S. námi séu þroskaðar kon- ur sem eigi oftast mjög annríkt og fái „háskólaáfall" (academic shock) sem hluta af þeim umskiptum að verða háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar. Það er mikið álag sem fylgir því að vera allt í senn starfandi hjúkrunarfræðingur, eiginkona, móðir og jafnvel dóttir aldraðra foreldra sem þurfa aðstoð. Að bæta nemendahlutverkinu ofan á allt þetta getur leitt til of mikils álags og hafa sumir orðið til að vara hjúkr- unarfræðinga við þessu álagi og hvetja þá til að íhuga gaumgæfilega ástæðuna fyrir því að vilja fara í meira nám áður en lagt er af stað í þá göngu (Callin, 1983). Minna má á að margir háskólaborgarar spyrja sjálfa sig á mestu álagstímunum: „Lagði ég þetta virkilega á mig sjálfviljug(ur) ?!“ Wooley (1978) var einn af fyrstu hjúkrunarfræðing- unum sem skrifaði um kvíða og spennu hjúkrunarfræð- inga í B.S. námi. í dag er almennt viðurkennt að í faglegri félagsmótun, sem á sér stað í slíku námi, sé kvíði og spenna þættir sem hafa verður í huga (Balogh, 1980). Throwe & Fought (1987) benda á að það sé ábyrgð kennaraliðs að hjálpa hjúkrunarfræðingum í B.S. námi að koma auga á það hvað veldurspennu eða kvíða. í þessu sambandi hafa þær kynnt mjög athyglis- verða leið fyrir bæði nemendur og kennara í sérskipu- lögðu námi fyrir hjúkrunarfræðinga til að meta áfanga á námsbrautinni. Þær rekja átta áfanga í faglegri félags- mótun og tengja þá þroskakenningu Erik Eriksons á mjög trúverðugan máta. Þessi nálgun byggist á langri reynslu þeirra af þessum málum og virðist hafa mikið hagnýtt gildi. Lynn, McCain og Boss (1989) benda á að margir hjúkrunarfræðingar án háskólaprófs hafi neikvæða af- stöðu tilB.S. námsogháskólakennaraíhjúkrun. Þessi neikvæða afstaða getur verið fólki álagsþáttur og þann- ig hindrun í námi. Það er því mikilvægt að fólk geri upp hug sinn varðandi aftstöðu sína áður en það hefur nám. Eins og áður segir er almennt viðurkennt að nem- endur í sérskipulögðu B.S. námi fyrir hjúkrunarfræð- inga búi við aðrar aðstæður og hafi aðrar þarfir en nemendur í hinu 4 ára hefðbundna B.S. námi (Sabina, 1985). Margir hafa bent á að þessi hópur þurfi góða kynningu í upphafi náms og ráðgjöf og stuðning í gegn- unt námið til að auka möguleika þeirra á velgengni í námi (Murdock, 1987; Sabina, 1985; Rothert, Tala- rczyk, Currier-Jayne & McCartney, 1988). Bóklegt og verklegt nám. Námssamningar í flestum B.S. námsleiðum fyrir hjúkrunarfræðinga er um bóklegt og verklegt nám að ræða. Verklega námið er þá oftast með allt öðru sniði en í hefðbund- inni námsleið til B.S. prófs (Olson & Cragg, 1988). Námssamningar virðast t.d. mikið vera að ryðja sér til rúmsíþessu sambandi (Sasmor, 1984; Wessels, 1987). Námsamningar ítreka hæfni hins fullorðna nemanda og þá ábyrgð sem fullorðnir einstaklingar bera á eigin námi. Námssamningurgefur nemandanum tækifæri til að skrifa niður styrkleika sína og veikleika og koma auga á þau svið sem viðkomandi þarf að vinna með (Raudonis, 1987; Sasmor, 1984; Olson & Cragg, 1988). Dyck (1986) hefur ásamt fleirum bent á mikil- vægi þess að hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar séu sjálfstæðir og skapandi ásamt því að hafa frumkvæði. Hún hvetur til notkunar námssamninga í ýmsumnám- skeiðum en þó sérstaklega í hjúkrunarnámskeiðum. Áhersla á hjúkrun eða ekki Arlton & Miller (1987) fengu upplýsingar frá sam- tals 328 háskólum þar sem hjúkrunarfræðingar voru í B.S. námi. 85% (279 háskólar) buðu upp á sérstakar 16 HJÚKRUN lAi—67. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.