Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 20
* fræðslumál
sé orsök eins dýrasta þáttar fræðsl-
ukerfisins á Islandi. Það er skoðun
Guðjóns að „college“ sé „einfald-
lega framhaldsskóli, þar sem nem-
endur stunda nám til atvinnu- og
starfsréttinda af hinum breytileg-
ustu gráðum, allt frá mjög stuttu
atvinnuréttindabundnu sérnámi til
atvinnuréttindanáms sem lýkur
með BA/BS prófgráðum.“ Síðan
gefur hann nokkur dæmi og þar á
meðal þetta: „Nurse College“ er
framhaldsskóli í umönnunarfræð-
um, þar sem nemendur geta lokið
atvinnuréttindaprófum sem gert er
ráð fyrir á umönnunarsviði, s.s.
fóstrunámi, sjúkraliðanámi og
hjúkrunarnámi.“ Ég fékk hroll.
Það var eins og manni væri kippt
10-15 ár aftur í tímann þegar fram-
haldsskólaumræðan stóð sem hæst
og hjúkrunarnám átti að fara út í
framhaldsskólana. Sem betur fer
tókst hjúkrunarfræðingum að
forða því þá. Mér er reyndar til efs
að eins skýr mörk milli „college" og
„university" séu almennt til staðar í
enskumælandi löndum eins og
Guðjón vill halda fram, ef málin
væru skoðuð til hlítar. Það er sorg-
legt að mega eiga von á því að þurfa
að berjast við svona afturgöngur
þegar við þurfum á kröftum okkar
að halda hvað varðar málefni fram-
tíðarinnar.
Vonandi áttum við hjúkrunar-
fræðingar okkur á því að það er til
dæmis einmitt með vankunnáttu og
fljótfærnislegum skrifum, eins og
Svanfríðar, sem stéttarfélagar gefa
óviljandi alls kyns „vitringum" kær-
komin vopn gegn stéttinni. Ég segi
óviljandi því ég vil ekki ætla nokkr-
um hjúkrunarfræðingi svo illt að
gefa vísvitandi höggstað á sinni eig-
in stétt í málum sem eru jafn við-
kvæm og menntun hennar og þar
með framtíð. Allir hjúkrunarfræð-
ingar, sem eitthvað hafa fylgst með
síðustu árin, vita að stéttin hefur átt
undir högg að sækja frá ýmsum ut-
anaðkomandi áhrifamönnum og
konum. Við vitum öll að þegar mál-
efni stéttarinnar eru til umfjöllunar
spretta upp ýmsir „sérfræðingar“
sem telja sig vita hvað stéttinni sé
fyrir bestu og stundum hefur legið
við slysum, t.d. við lagasetningar.
Allir hjúkrunarfræðingar vita líka
að við höfum ekki heldur hjálpað til
með því sundurlyndi og þeirri tor-
tryggni sem hefur verið allt of áber-
andi milli fagfélaga okkar. Það er
því ánægjulegt að félögin skuli nú
vera farin að vinna eins mikið sam-
an og raun ber vitni en takmarkið
hlýtur að vera sameinað afl hjúkr-
unarfræðinga.
Ekki skil ég hvernig nokkrum
dettur í hug að halda að ekkert við-
bótarnám/framhaldsnám standi til
boða á íslandi fyrir hjúkrunarfræð-
Námsferlið
1. Nám er virkt og stöðugt ferli sem birtist í vexti og breytingum á
hegðun.
2. Námsstfll og hraði eru mismunandi eftir einstaklingum.
3. Nám er háð því hversu tilbúinn nemandinn er, það er háð
tilfinningaástandi hans, hæfni og mögulegri getu.
4. Lífsreynsla nemandans hefur áhrif á nám hans.
5. Nám er auðveldað þegar námsefnið skiptir nemandann máli.
6. Nám gerist hið innra með nemandanum.
7. Nám er auðveldað með því að fara frá hinu einfalda til þess
flókna og með því að fara frá hinu þekkta til þess óþekkta.
8. Nám er auðveldað þegar nemandinn fær færi á að prófa hug-
myndir, greina mistök, taka áhættu og vera skapandi.
9. Að læra námstækni auðveldar nemandanum að fást við aukn-
ingu þekkingar og breytingar í hjúkrun og í samfélaginu.
10. Nám fer fram í skipulögðum menntunarferlum og á annan hátt.
11. Nám er auðveldað þegar nemandinn fylgist með framförum
sínurn í átt að markinu.
12. Nám gengur betur við aðstæður þar sem fullnægju er náð.
13. Mannleg tengsl eru mikilvæg hvað varðar það að ákvarða þá
félagslegu, tilfínningalegu og vitsmunalegu hegðun sem leiðir af nám-
inu.
14. Það auðveldar yfírfærslu námsins þegar komið er auga á það
sem líkt er og ólíkt með fyrri reynslu og núverandi aðstæðum.
15. Skynjun nemandans á sjálfum sér og aðstæðum sínum hefur
áhrif á nám hans.
16. Nám er árangursríkara þegar því er samstundis beitt, sem lært
er.
17. Nám er gagnlegra þegar það er yfírfært í reglur og hugtök.
18. Námsefnið hjálpar til við að ákvarða hvers konar námsreynsla
gagnist best, bæði hvað tíma og áreynslu snertir.
(Learning Principles accepted by the Faculty of the College of
Nursing, University of Nevada, 1972.)
Tarnoxv, K.G.: Working with Adult Learnes. Nurse Educator,
Sept. - Oct. 1979.
20 HJÚKRUN 'A-67. árgangur