Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Síða 32
* fræðslumál
eru há við suma breska háskóla.
Styrkur frá Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni gerði mér kleift að
stunda námið erlendis.
Hver voru inntökuskilyrði í skól-
ann?
Inntökuskilyrði í skólann voru
hjúkrunarpróf, a.m.k. eins árs við-
bótarnám í hjúkrun, mat skólans á
því hvort umsækjandi þætti hæfur
til að stunda háskólanám, ensk
hjúkrunarleyfi og að sjálfsögðu góð
kunnátta í ensku.
Hver var umsóknarfrestur?
Umsóknin að aðfaranámi þurfti
að berast ári áður en nám átti að
hefjast.
Hvað getur þú sagt okkur um
kostnaðinn?
Skólagjöld vegna slíks fram-
haldsnáms nema á bilinu 4000-5000
sterlingspundum en eru þó breyti-
leg eftir skólum. Ódýrasta íbúðar-
húsnæðið er á stúdentagörðum en
það passar nánast eingöngu fyrir
staka einstaklinga. Mjög lítið hús-
næði er í boði á vegum félagsstofn-
ana stúdenta við breska háskóla
fyrir hjón. Það virðist ekki gert ráð
fyrir að háskólanemar séu giftir eða
í sambúð.
Hvað tók námið langan tíma og
var það metið til eininga?
Námið var ekki metið til eininga.
Námsárið skiptist í þrjú misseri;
haust, vetur og vor. Sjálfstætt verk-
efni var unnið að sumrinu.
Hvernig var námið byggt upp?
Mastersnám samkvæmt aðferð 1
var byggt upp í kringum fjögur við-
fangsefni hjúkrunarfræðinnar:
Klínik, kennslu, stjórnun og rann-
sóknir. Aðfaranámið svo og öll
reynsla í hjúkrunarstarfi reyndust
mikilvæg undirstaða í Masters-
námi. Nemendur máttu velja um
áherslur í námsgreinum. Ég valdi
mér t.d. fæðingarhjúkrun sem klín-
iskt svið og rannsóknir umfram
kennslu og stjórnun.
Hvernig fór námsmat fram?
Námsmat var fólgið í skriflegum
prófum, verkefnum og í lokaverk-
efni sem var rannsókn.
Fannst þér námið erfitt?
Erfiðleikar í námi tengdust
miklu magni lesefnis, námi á er-
lendri tungu, nokkurs skorts á und-
irbúningi við einstaka greinar og
ekki síst félagslegri einangrun
fyrsta árið.
Hvaða prófgráðu fékkst þú að
námi loknu?
Diploma of Advanced Nursing
Studies og Master of Science de-
gree.
Breytti námið faglegri sjálfs-
mynd þinni?
Með náminu jókst álit mitt á
hjúkrun til muna og gerði mér kleift
að starfa sem kennari í hjúkrunar-
fræði á háskólastigi.
Nýtist námið þér í starfi þínu
núna?
Námið hefur nýst mér ágætlega í
starfi. Hugmyndir, sem maður
fékk, kröfðust margra ára þróunar í
samstarfi við hjúkrunarfræðinema.
Þekkingarþróun er hins vegar
aldrei lokið og því sannast máls-
hátturinn „Svo lengi iærir sem lif-
ir.“
Hefur þessi prófgráða áhrif á
launin?
Stöðuveitingar í Háskólanum
eru háðar menntun og vísindastörf-
um. Þannig hefur menntun óbein
áhrif á kjör hjúkrunarfræðinga sem
starfa við Háskólann.
Með tilliti til markmiða, sem ég
setti mér sjálf fyrir framhaldsnám,
reyndist það á eftirfarandi hátt:
1. Það veitti mér góða undir-
stöðumenntun varðandi rannsókn-
ir í hjúkrun, sem gerði mér síðan
kleift að þróa námskeið í hjúkrun-
arrannsóknum við námsbrautina í
hjúkrunarfræði. Auk þess hvatti
þessi þáttur mig til að halda rann-
sóknarstarfinu áfram sem ég gat þó
sinnt takmarkað vegna mikils álags
við kennslustörf við námsbrautina.
Ég hef síðan stundað framhalds-
nám í rannsóknum í eitt ár við Há-
skólann í Edinborg og hyggst halda
áfram rannsóknarstörfum.
2. Framhaldsnámið veitti mér
aukna þekkingu á sviði kennslu og
fræðslu og vakti í ríkari mæli áhuga
á heilbrigðisfræðslu og fullorðins-
fræðslu en gerðist við almennt
kennaranám, sem ég hafði lokið
áður til að kenna hjúkrun. Þróun í
heilbrigðisfræðslu hefur verið mikil
undanfarin ár og nú þykir t.d. sjálf-
sagt að fræðsluferlið sé hluti ai
hjúkrunarferli. Ahuga minn á heil-
brigðisfræðslu gat ég frekar þróað
við framhaldsnám sem ég stundaði
síðan við Háskólann í Edinborg.
3. Framhaldsnámið breytti skiln-
ingi mínum á klínisku starfi, starfi,
sem tengdist konum og fæðingum,
en það hafði ég aðailega unnið við
áður. Ég var hjúkrunarfræðingui
og ljósmóðir fyrir og einblíndi þar
af leiðandi í starfi mínu á móður og
barn. Með viðbótarþekkingu í
vexti og þroska barna, sálarfræði
tengdri barneignum og félagsfræði
tengdri fjölskyldu skildi ég mikil-
vægi þess að hjúkrunarfræðingar og
ljósmæður ynnu í mörgum tilvikum
meira með tjölskyldunni allri en
einstaklingum innan hennar. Sér-
staklega þegar heilbrigði fjölskyld-
umeðlima er í húfi.
Lokaorð
Framhaldsnámið, sem ég stund-
aði fyrir 13 árum síðan, gerði mig að
rnínu mati færari í flestan sjó og
hefur skipt mig öliu máli til að
halda áfram starfi mínu sem hjúkr-
unarfræðingur. Ég vona að það hafi
ekki síst orðið öðrum að gagni í
námi, starfi og fræðilegri vinnu.
Auk þess hef ég sannfærst um að
háskólanám veitir okkur tækifæri
til að þróa þann þekkingargrunn
sem starfið okkar ætti að byggjast
á. Það getur fært okkur nær hjúkr-
un og aukið skynjun á verðmæti
hjúkrunarstarfa. Mín helsta von er
sú að framhaldsnám geti veitt fleiri
hjúkrunarfræðingum aukna ánægju
í starfi og þannig að þeir geti orðið
skjólstæðingum sínum að meira
gagni en ella.
32 HJÚKRUN — 67. árgangur