Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Side 38
* félagsmál
FORM ANN SKJÖR
Á fulltrúafundi sem haldinn
verður 14. og 15. maí nk. lætur Sig-
þrúður Ingimunardóttir af starfi
formanns Hjúkrunarfélags íslands.
Ólína Torfadóttir hjúkrunarfor-
stjóri Fjórðungssjúkrahúss Akur-
eyrar og Vilborg Ingólfsdóttir yfir-
hjúkrunarfræðingur Landlæknis-
embættisins hafa gefið kost á sér til
formanns.
Samkvæmt 23. grein laga
Hjúkrunarfélags íslands skal
formaður kjörinn í allsherjarat-
kvæðagreiðslu til þriggja ára.
Samkvæmt 20. grein laga HFÍ
fer kosning í Reykjavíkurdeild
fram á kjörfundi sem haldinn er
daginn fyrir fulltrúafund og skal
standa a.m.k. 10 klukkustundir.
Kjörfundurinn fer fram á skrif-
stofu HFÍ, Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík, sími 687575.
Kjörfundurinn hefst klukkan tíu
árdegis og lýkur klukkan 20:00
mánudaginn 13. maí nk.
Kjörstjórn sendir öllum öðr-
um félagsmönnum kjörgögn eigi
síðar en miðvikudaginn 17. apríl
og skulu þeir atkvæðaseðlar
hafa borist kjörstjórn fyrir lok
kjörfundar þann 13. maí að öðr-
um kosti eru þeir ógildir.
Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla hefst á skrifstofu félags-
ins 15. apríl. Hún er eingöngu
fyrir þá félagsmenn sem ekki
verða heima á kjördegi.
Kjörstjórn skal hafa umsjón með
allsherjaratkvæðagreiðslum sbr.
12. grein laga Hjúkrunarfélags ís-
lands.
Kjörstjörn skipa: Edda Bára Sig-
urbjörnsdóttir, Sjúkrahúsi Kefla-
víkur; Ragnhildur Theodórsdóttir,
Borgarspítala og Sigríður Skúla-
dóttir, St. Jósepsspítala, Landa-
koti.
Formannskjöri verður lýst á full-
trúafundi 14. maí.
Ritstjórn Hjúkrunar fór þess á
leit við frambjóðendur til formanns
Hjúkrunarfélags íslands að þeir
kynntu nám sitt og starfsferil auk
þess sem þær greindu frá helstu
áhersluatriðum varðandi starf for-
manns Hjúkrunarfélags íslands.
Vilborg Ingólfsdóttir;
Sameining hjúkrunar-
félaganna, breytt
staða í félags-
og kjaramálum
Vilborg Ingólfsdóttir er fædd 3.
júní 1948.
Nám:
Vilborg lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1968. Hún lauk hjúkrunarprófi frá
Hjúkrunarskóla Islands árið 1971,
B. Sc. gráðu í hjúkrunarfræði frá
Háskóla íslands árið 1977 og meist-
aragráðu í heilbrigðisfræði frá Nor-
ræna heilbrigðisháskólanum í
Gautaborg árið 1990.
Starfsferill:
Lengst af starfaði Vilborg á lyf-
lækningadeild Landspítalans en
vann þar einnig á gjörgæsludeild og
skurðdeild. Hún var búsett í Sví-
þjóð í nokkur ár og starfaði þar um
tíma á hjartagjörgæsludeild og
nokkrum hjúkrunarheimilum. Hún
var hjúkrunarframkvæmdastjóri
öldrunarlækningadeildar Landspít-
alans á árunum 1983 til 1985. Frá
árinu 1985 hefur hún starfað við
Landlæknisembættið, fyrst sem
fulltrúi, síðar deildarstjóri og nú
sem yfirhjúkrunarfræðingur. Jafn-
framt hefur Vilborg stundað
kennslustörf.
Vilborg Ingólfsdóttir.
Ég tel að ýmsar breytingar hafi
átt sér stað í málefnum hjúkrunar-
fræðinga í Hjúkrunarfélagi íslands
á síðustu misserum. Þar nefni ég:
* Úrsögn félagsins úr BSRB,
sem felur m.a. í sér breytta
stöðu í félags- og kjaramálum,
* Yfirlýstan vilja félagsmanna
að unnið verði að sameiningu
Hjúkrunarfélags íslands og
Félags háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga og
* Pá ákvörðun að framhalds,-
38 HJÚKRUN Vn-61. árgangur