Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Síða 48
* fréttir
60 ÁRA AFMÆLI LANDSPÍTALANS
Frá afhendingu gjafar Hjúkrunarfélags fslands er 60 ára afmœlis Landspítalans var minnst.
Þann 20. desember sl. voru liðin
60 ár frá því að fyrsti sjúklingurinn
var lagður inn á Landspítalann. Af-
mælisins var minnst á margvíslegan
hátt og hefur því verið gerð ítarleg
skil í fjölmiðlum. Athyglisvert er
hve þáttur kvenna hefur verið stór í
baráttu fyrir byggingu og starf-
rækslu Landspítalans. Frú Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands, af-
hjúpaði minningarskjöld um stuðn-
ing íslenskra kvenna við Landspít-
alann á ársfundi Ríkisspítalanna
24. nóv. sl. Gefendur voru Kvenfé-
lagasamband íslands, Bandalag
kvenna í Reykjavík og Kvenrétt-
indafélag íslands. Kvenfélagið
Hringurinn, sem lengi hefur stutt
starfsemi spítalans, einkum Barna-
spítalans, gaf 2,5 milljónir kr. til
tækjakaupa og kr. 500 þúsund í
byggingarsjóð Barnaspítalans.
Landspítalanum bárust góðar gjafir
og kveðjur í tilefni þessara tíma-
móta. Stjórnarnefnd Ríkisspíta-
lanna heiðraði nokkra starfsmenn,
meðal þeirra voru tveir hjúkrunar-
fræðingar; Gróa Ingimundardóttir,
deildarstjóri á skurðstofu fæðinga-
deildar Landspítala, og Helga Al-
bertsdóttir, deildarstjóri Klepps-
spítala. Stjórn Hjúkrunarfélags ís-
lands ákvað að gefa
Landspítalanum kr. 60.000, eða kr.
1000 fyrir hvert ár sem spítalinn
hefur þjónað landsmönnum. Sam-
kvæmt ábendingu hjúkrunarstjórn-
ar Landspítalans var ákveðið að
verja gjafafénu til þess að auka
fræðsluefni fyrir hjúkrunarfræð-
inga á hinum ýmsu deildum spítal-
ans. Afhendingin fór fram á jóla-
fundi hjúkrunardeildarstjóra þann
13. desember sl.
L.ó. ogS.S.
Nokkrirstarfsmenn ríkisspítala voru heiðraðir ítilefni 60 ára afmœlis Landspítalans. Önnurfrá vinstri er Gróa lngimundardóttir hjúkrunarfrœðing"r
og fjórða frá vinstri er Helga Albertsdóttir hjúkrunarfræðingur.
48 HJÚKRUN 14-67. árgangur