Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Side 30
Fjölmargir
hjúkmnarfrœðingar
um land allt sóttu
jrœðslujnndi um
lífeyrissjóðsmál.
tekin ákvörðun um nýtt form stjórnarfunda SSN í
framtíðinni. Þá iná geta þess að félag færeyskra
hjííkrunarfræðinga hefur fengið samþykki allra
aðildarfélaga SSN um aðild að samtökunum.
Gæðastjórnunarhópur var starfandi innan SSN til
haustsins 1996 er hann var lagður niður. Hópurinn
stóð m.a. að veglegri ráðstefnu í Stokkhólmi um
gæðastjórnun í hjúkrun í febrúar 1996, þar sem fjöl-
Ingibjörg Gunnarsdóttir lél af störfum eftir áralangt
starf i þáigu hjákriinarfrœðinga. Hér er hán í miðjunni
áisamt formönnunum sem hún hej'ur starfað með.
(
margir íslenskir hjúkrunarfræðingar kynntu rann-
sóknarverkefni sín. Margrét Björnsdóttir, hjúkrun-
arframkvæmdastjóri SHR, var fulltrúi félagsins í
nefndinni. Nú hefur verið stofnaður starfshópur
innan SSN sem hefur það verkefni að vera ráðgjafar-
og samræmingarhópur norrænna hjúkrunarfræðinga
um þróun ICNP, sem er ílokkunarkerfi hjúkrunar-
greininga sem unnið er að frumkvæði alþjóðasamtaka
hjúkrunarfræðinga, ICN. Asta Thoroddsen er full-
trúi íslenskra hjúkrunarfræðinga í hópnum og
verður fyrsti fundur hans í Reykjavík í ágúst n.k.
Yárd i Norden er fagtímarit sem gefið er út af SSN
og koma 2-4 tölublöð út árlega. Fjölmargir íslenskir
hjúkrunarfræðingar eru ritrýnar fyrir hlaðið. Is-
lenskir hjúkrunarfræðingar hafa ekki átt sæti í rit-
stjórn blaðsins á undanförnum árum, en nú hefur
stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ákveðið
að tilnefna Þorgerði Ragnarsdóttur sem fulltrúa sinn
í ritstjórn tímaritsins.
ICN
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur á starfs-
tímabilinu haft nokkuð samstarf við Alþjóðasamtök
hjiikrunarfrœðinga. I október 1995 kom Mireille
Kingma, hjúkrunarráðgjafi hjá ICN til Islands í vett-
vangsheimsókn til að skoða stöðu hjúkrunar á Islandi
og til að styrkja tengsl ICN við íslenska hjúkrunar-
fræðinga. I kjölfarið var óskað eftir því að Asta
Möller, formaður, tæki að sér að stýra á umræðum
ásamt starfsmanni ICN á ráðstefnu Fastanefndar
ESB um hjúkrunarmál í Brussel í janúar 1996. Þá
tók félagið á móti Judith Oulton l’ramkvæmdastjóra
ICN og kynnti henni starfsemi félagsins í apríl 1996,
er hún var á Islandi á fundi embættishjúkrunar-
fræðinga í Evrópudeild WHO.
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
sótti fulltrúaþing sem haldið var í Harare í Zimbabwe
í september 1995 og hefur stjórn félagsins ákveðið að
senda formann og varaformann á fulltrúaþing sam-
takanna í Vancouver í Kanada í júní nk. Á þeim
fundi verður kjörinn nýr formaður ICN í stað
Margretta Madden Styles. Kirsten Stallknecht,
fyrrum formaður Dansk Sygeplejerád, er ein í fram-
boði til formanns, en formaður norskra hjúkrunar-
fræðinga, Laila Davöj, er einnig í framboði til
stjórnar ICN.
WENR og EuroQuan
Dr. Auðna Ágústsdóttir tók hún við af Mögnu Birnir
sem fulltrúi félagsins á vettvangi samtaka evrópskra
hjúkrunarfræðinga árið 1996. Undirbúningshópur
fyrir ráðstefnu WENR sem lialdin verður á Islandi
árið 2000 hefur þegar hafið undirbúning að ráðstefn-
unni.
Aunað erlent samstarf
Hjá fastanefnd ESB um hjúkrunarmál (PCN), er til
umfjöllunar að opna fyrir aðild evrópskra hjúkrun-
arfræðingafélaga í löndum utan ESB. Verður tillaga
um breytingu á lögum samtakanna þessa efnis lögð
fyrir á haustfundi samtakanna. Við þá breytingu
hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga möguleika á
að taka formlega þátt í evrópsku samstarfi og hafa
álirif á stefnu ESB um hjúkrunarmál í framtíðinni.
Stefna ESB í þeim málefnum sem og öðriun hefur
166
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997