Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Page 4
FORMANNSPISTILL
Nýr kjarasairniingur, gjörbreyting
fyrir hjukrunarfræðinga
Ásta Möller
ann 9. júní sl. var undirritaður nýr kjarasamning-
ur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og viðsemj-
enda Jieirra, þ.e. fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs,
Reykjavíkurhorgar, Reykjalundar og St. Franciskus-
spítala í Stykkishólmi. Samningurinn, sem er kynntur
hér í hlaðinu, markar tímainót í launamálum hjúkrun-
arfræðinga.
A undanförnum árum hafa hjúkrunarfræðingar
ítrekað gagnrýnt launakerfi ríkisins og hent á að það
liafi fyrir löngu gengið sér til húðar. Launakerfið liefur
verið hyggt á láglaunastefnu og verið lítt sveigjanlegt.
Samið hefur verið um launaliækkanir á launatöflu,
svipað og samið hefur verið um í kjarasamningum á
almennum markaði. Sá munur er hins vegar á að opin-
berir starfsmenn hafa að jafnaði tekið laun skv. launa-
taxta stéttarfélags síns á meðan laun starfsfólks á
almenna markaðinum hafa ekki verið bundin kjara-
samningum með sama hætti. Má í því sambandi henda
á að skv. athugun VR taka einungis um 3% félags-
manna þeirra laun skv. launataxta sem félagið hefur
samið um í kjarasamningum.
Meðal annars með framangreint í huga tóku samn-
inganefnd og stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, að höfðu samráði við fjölda félagsmanna, ákvörð-
un um að semja um nýtt launakerfi fyrir hjúkrunar-
fræðinga.
Nýtt launakerfi felur í sér að stéttarfélag hjúkrunar-
fræðinga semur í miðstýrðum kjarasamningi um launa-
kerfi, launahækkanir, launatöflu og um grófa ílokkun
starfa í launaramma, auk annarra þátta s.s. vinnu-
tíma, orlof o.fl. þætti, sem þekktir eru úr eldri kjara-
samningi. Ákveðnum þáttum launaákvarðana er hins
vegar vísað til fulltrúa stéttarfélagsins og viðkomandi
stofnana, þar sem aðilar koma sér saman um forsendur
um röðun starfa og einstaklinga innan launakerfisins.
Þessir þættir teljast síðan hluti kjarasamnings. Þessar
forsendur eru síðan lagðar til grundvallar mati á röðun
einstaklinga innan launakerfisins, þar sem tekið er mið
af þekkingu, reynslu, ábyrgð og hæfni viðkomandi.
Nýtt launakerfi hjúkrunarfræðinga mun hafa í för
með sér gjörbreytingu fyrir hjúkrunarfræðinga.
Grunnhugmynd eldra launakerfis hyggir á að starfs-
heiti hjúkrunarfræðings ráði fyrst og fremst launum
hans. Almennur hjúkrunarfræðingur er því jafngildur
öðrum alinennum hjúkrunarfræðingi í mati á launum.
I nýju launakerfi er hins vegar viðurkennt að hjúkrun-
arfræðingar geti haft mismunandi þekkingu, reynslu og
hæfni, þrátt fyrir að þeir gegni að fonninu til sams
konar ábyrgð. Þessir þættir eru metnir og það verður á
ábyrgð hvers hjúkrunarfræðings fyrir sig að rökstyðja
kröfu sína um launalegan framgang. Þetta kallar á
nýjan liugsunarhátt, og það er staðföst trú mín að
hjúkrunarfræðingar séu reiðubúnir að takast á við
þetta verkefni. Nýtt launakerfi kallar einnig á breyttar
starfshætti lijá félaginu, m.a. með aukinni fræðslu,
þjálfun og stuðningi við trúnaðarmenn á stofnunum,
auk þess sem félagið verður að leggja áherslu á að afla
og miðla upplýsingum um launakjör hjúkrunarfræð-
inga og annarra starfsstétta á stofnunum og milli
stofnana.
Hjúkrunarfræðingar eru á leið inn í nýtt tíinabil í
launamálum stéttarinnar með ákvörðun um að taka
upp nýtt launakerfi. Þeir eru að taka ákveðna áhættu, 4
en jafnframt að takast á við ögrandi verkefni. Með
bjartsýni, áræðni og kjarki þurfa þeir að nýta sér til
liins ýtrasta þau tækifæri sem nýtt launakerfi veitir
þeim.
SKRIFSTOFA FÉLAGSINS
Starfsfólk Félags íslenskra hjiikrunarfræóinga:
Ásta Möller, formaður, starfar alla duga vikunnar kl. 9-17
Aóalbjörg Finnbogadóttir, hjúkrunurfræðingur,
sér in.a. um ráðgjöf og námsmat.
Starfar mániul. og |>i*iðjml. kl. 9 - 16 og miðvikud.
og fiiiiiiitiul. kl. 9 - 14
Anna Gunnarsdóttir, skrifstofumaður og liókari,
starfar ulla daga vikunnar kl. 9-17
Áslaug Guójónsdóttir, gkrifstofumuður,
starfar alla daga vikunnar kl. 13 - 17
Soffía Siguróardóttir, skrifstofumaður,
sturfar alla ilaga vikunnar kl. 9-17
Vigdís Jónsdóttir, hagfræðingur, starfar alla daga
vikunnar kl. 9 - 17, símaviðtalstími ]>i*iðjiul.,
miðv.d. og limmtd. kl. 9 - 12.
Þorgeröur Ragnarsdóttir, ritstjóri,
starfar alla ilaga vikunnar frá 9 - 14
Skrifstofa félagsins að Siiðurlandsliraiil 22
er opin virka daga kl. 9-17.
Skrifstofa félagsins sér um, auk almennrar skrifstofu|ijón-
ustu og ii|>]ilýsingamiðlunar, |>jónustu við sjóði félugsins, s.s.
sturfsmenntunarsjóð, vísindasjóð, orlofssjóð og minningar-
sjóði, ineð ii]i|dýsingumiðlun, mótloku umsókna, undirluui-
ingi fyrir litldutanir og frágangi við úthlutanir. Skrifstofan
sér cinnig um sölu á vurningi á vogum félugsins, leigu á ílnið í
lleykjavík og sumarhústöðum félagsins utan suinarleyfistíma.
Skrifstofan verður lokuð frá 14. júlí til S. ágúst í sumar
vegna sumarlcyfa og viðgeröa á húsi.
140
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997