Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Qupperneq 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Qupperneq 7
 RITSTJÓRASPJALL Valgeröur Katrín Jónsdóttir Sumarfrí Ef ég gæti lifaö hfinu á nýjan leik, og ráðið ferð, : mundi ég njóta lífsins á annan hátt. Eg mundi ekld vilja verða svona fullkominn. Eg mundi slaka meira á, vera afslappaðri, yfirveg- aðri, rólegri. Ég mundi vera léttlyndari og ekki taka hlutina svona alvarlega. Ég mundi ekki leggja svo mikla áherslu á regluhundið líferni heldur taka meiri áhættu, ferðast meira, njóta sólseturs, klífa fjöll og synda í fljótum. Ég var einn af þessum kláru mönnum sem nýttu hverja mínútu til hins ýtrasta, vissulega átti ég gleðistundir en gæti ég lifað lífinu upp á nýtt mundi ég reyna að eiga aðeins fleiri ánægjuleg augnablik. Ef þú skyldir ekki vita það, þá samanstendur lífið einmitt af þessu, af stundum augnabliiisins, því skaltu ekki gleyma. Gæti ég lifað einu sinni enn mundi ég frá því snemma á vori þar til seint að hausti ganga berfæt- tur allar stundir. Ég mundi leika mér meira við æskuna ef ég ætti ævina framundan - en sjáið þið - ég er 8 5 ára gamall og ég veit að ævin er brátt á enda. Það er argentíska skáldið Jorge Luis Borges sem kemst svo að orði. Þegar þetta tölublað berst til lesenda eru flestir annaðhvort að undirbúa sumarfrí eða komnir af stað á vit nýrra slóða, takast á við nýtt umhverfi hér á landi eða erlendis sem og nýja þætti í sjálfum sér. Fríið er nauðsynlegt til að hlaða rafhlöðurnar fyrir næsta vetur sem er handan við hornið og kemur jafn- örugglega og nóttin sem er fylgikona dagsins. Sjálf er ég svo heppin að hafa tekið forskot á sæluna, var eina viku í Júlíönsku Olpunum með góðu göngufólki. Fararstjórinn, austurrískur að uppruna, lagði aherslu a að göngurnar Valqerður Katrín , r* ,, ., ,,, , Jónsdóttir hefðu andlegan tilgang sem og Iikamlegan og las því fyrir okkur einhverja góða speki í upphafi hvers göngudags. Og orðin sem voru lesin lifðu í huga flestra í öllu erfiðinu sem fylgdi göngunum upp í mót og ánægjunni sem fylgir því að komast á leiðarenda. Að kvöldi var sest að borðum yfir rjúkandi réttum; grænmeti, ávextir, fiskur, kjöt og eftirréttir af öllu tagi og hugsanlegar harðsperrur dansaðar úr líkamanum við endurskin stjarna á spegilsléttu vatni. Ferðin skilaði sannarlega mörgum góðum augnablikum sem skáldið ræðir um í ljóði sínu. „Við lifum lengi á þessari ferð,“ sagði einn ferðafélaginn og við höfum í huga orð skáldsins að Iífið samanstendur einmitt af þessu, stundum augnabliksins. Njótið frísins! BEDCO & MAIHIESEN EHF Bæjarhraun 10 - Hafnafjörður Sími 565 1000 - bedco@bedco.is Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.