Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Blaðsíða 21
FRÁ FÉLAGINU
Hjúkrun 2004 ráðstefna
t
UTDRÆTTIR GESTAFYRIRl
Útdráttur:
Ferskir straumar varöandi
kynl ífsheilbrigöi
Sóley Bender
Hugtakið kynlífsheilbrigði (sexual health) hefur verið
að ryðja sér til rúms, einkum á síðasta áratug. í því
felst að geta tjáð öðrum tilfinningar sínar, sýnt ábyrgð,
nærgætni og tillitssemi og þannig stuðlað að gefandi
sambandi sem skapar vellíðan. Jafnframt er lögö áhersla
á kynlífsrétt (sexual rights) einstaklingsins sem felur það
í sér að geta lifaö óþvinguöu kynlífi, notið sanngirni, haft
.ESARA
stjórn á eigin kynlífi, geta fengið kynfræðslu og tekið ákvaröanir um
barneignir. Þjóðir heims hafa lagt mismikla áherslu á kynlífsheilbrigöi
og oft verið ójafnvægi milli kynlífsheilbrigðis og frjósemisheilbrigðis
(reproductive health). Alþjóðleg þing hafa samþykkt mikilvægi þess
að stuðla að kynlífsheilbrigði, unnið hefur verið að áætlunum um það
og þróuð hugmyndafræðileg líkön til aö vinna eftir. Ýmsir þættir hafa
áhrif á kynlífsþroska einstaklingsins sem geta stuðlaö aö eða dregið úr
kynlifsheilbrigði hans. í sögulegu samhengi má greina áhrifaþætti, eins
og takmarkaða kynfræðslu, sem hvatti líklega ekki til kynlífsheilbrigðis
meðal fólks. í nútímasamfélagi rignir stöðugt yfir skilaboðum um kyn-
líf sem eiga ekkert skylt við heilbrigt kynlíf. Kvikmyndir, sjónvarp og
tímarit draga upp margvíslegar myndir af tillitslausu, valdsmannslegu
og oft hrottafengnu kynlífi. Netiö opnar heim sem getur gefið mis-
vísandi skilaboð um kynlif og sýnt hefur verið fram á tengsl þess við
kynferðislega misnotkun. Upplýsingar um vandamál kynlífs gefa fólki
takmarkaðar hugmyndir um hvað sé eðlilegt, gefandi og gott kynlíf og
geta skapað óvissu um hvað sé heilbrigt kynlíf. Hérlendis sem erlendis
er vaxandi þörf fyrir að stuðla að kynlifsheilbrigði fólks.
Útdráttur
Hvernig nýtist eigindleg
rannsóknaraðferö?
David Kahn, PhD, RN,
sínum. Hann sagði þessa rannsóknaraðferð hafa þurft að sanna
sig undanfarin 25 ár sem leið til aö afla vísindalegrar þekkingar
en fram að því byggðust vísindi aðallega á megindlegri rannsóknar-
aðferð. Sjálfur hefur hann eingöngu notað þessa aðferð allan feril
sinn sem hann sagöi brátt á enda. Á síðustu árum hefur áhugi á
eigindlegri rannsóknaraðferð aukist til mikilla muna, svo mikið
að oft er erfitt að finna nægilega marga kennara til að þjálfa þá
sem eru áhugasamir, finna ritrýna til að lesa yfir greinar sem eiga
að birtast í vísindatimaritum og finna hæft fólk til að sitja í dóm-
nefndum.
David L. Kahn, gestafyrirlesari frá Háskólanum i Texas
fjallaöi um eigindlega rannsóknaraöferð í fyrirlestri
Eiginleg rannsóknaraðferðhefurekki veriö hátt skrifaðar í gagnreyndri
læknisfræði og gagnreyndri hjúkrun. Ein af ástæðunum er sú að
Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004
19