Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Blaðsíða 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Blaðsíða 32
Hrafn Óli Sigurðsson Sérfræðingar í hjúkrun 30 Undanfarin ár hef ég mikið hugsað um stöðu sérfræðinga í hjúkrun á íslandi í Ijósi þeirra breytinga sem átt hafa sér stað í heilbrigðisþjónustunni og enn eiga eftir að verða. Kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu eykst frá ári til árs um allan hinn vestræna heim og endurskipulagning og sparnaðaraðgerðir hafa verið ráðandi undanfarin 10 ár og gildir þar einu hvort litið er tii Evrópu eða Bandaríkjanna. Aö miklu leyti erum við heppin á íslandi að þessi kostnaðarvitundarbylgja er nokkrum árum á eftir nágrönnum okkar þannig að við ættum að geta nýtt okkur reynslu annarra og vonandi sieppt þeim atriðum úr sem reyndust ekki vel. Ein af þeim aðgeröum til aö veita árangursríka þjónustu sem hafa gefist vel er að auka ábyrgð hjúkrunarfræðinga og nýta menntun þeirra til þess að fylgja sjúklingum eftir og stytta með því legutíma. Þetta hefur verið gert með því að fjölga stöðum sérfræðinga í hjúkrun sem eru öðrum hjúkrunarfræðingum til ráðgjafar, veita flókna hjúkrunarmeðferð og taka líka beinan þátt í læknismeðferð sjúklinga meö því að taka ákvarðanir um meðferð í samræmi við fyrirframgerða samstarfssamninga. Meö þessu móti hefur aðgengi almennings að heilbrigöis- kerfinu aukist og einnig ánægja sjúklinga með þjónustuna. Islensk lög og regIugeröir Hugtakið sérfræðingur í hjúkrun á sér stoð í 3. grein hjúkr- unarlaga nr. 8/1974 þar sem heimild fyrir reglugerðarsetningu um sérfræðinga er gefin. Síðan hjúkrunarlögin voru sett hafa þrjár reglugerðir verið settar til að skýra hvað við er átt og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að kallast sérfræðingur í hjúkrun. I fyrstu reglugerðinni, nr. 98/1976, er tilgreind tíma- lengd náms fyrir mismunandi sérgreinar hjúkrunar, (sjá töflu 1) sem fram gat farið á vegum skóla og heilbrigðisstofnana sem höfðu til þess viðurkenningu „af viðkomandi yfirvöldum." Meðal nýjunga í hjúkrunarlögunum frá 1974 var stofnun hjúkrunarráðs sem var heilbrigðisráðuneytinu til ráðgjafar um ýmis mál er varða hjúkrun (Ingibjörg Magnúsdóttir, 2003). Hjúkrunarráði var í þessari’ fyrstu reglugerð um sérfræðinga í hjúkrun ætlað að meta námsskrár og námsstöður í sér- fræðinámi áður en viðurkenning fékkst til að halda slíkt nám (Reglugerð um veitingu sérfræðileyfa í hjúkrun, nr. 98/1976). Með þessu var gert ráð fyrir utanaðkomandi eftirliti með fram- haldsnámi hjúkrunarfræðinga, væntanlega til að tryggja gæði og samhæfingu í náminu. Ekki var kveðið nánar á um hvernig náminu skyldi háttað eða á hvaða skólastigi það færi fram. Sérhæfing í hjúkrun hafði farið fram á sjúkrahús um um árabil áður en fyrsta reglugerðin tók gildi og hjúkrunarfræðingar sérhæfðu sig, til dæmis í skurð- og svæfingahjúkrun, undir hand- j leiðslu hjúkrunarfræðinga sem farið höfðu utan og sérhæft sig þar. Þessir hjúkrunarfræðingar byggðu upp sérhæfingu í hjúkrun á Islandi. Nýi hjúkrunarskólinn starfaði um árabil til að samræma og staða sérhæfingarmenntunina. Eins og sjá má í töflu 2 fékk 661 hjúkrunarfræðingur viðurkenningu samkvæmt reglugerðinni frá 1976 (Heilbrigðisráðuneytið, munnl. uppl. 6/6/2002) og margir þeirra eru enn starfandi við sína sér- grein. QTCII Sérgreinar og tímalengd náms skv. reglugerð 98/1976 : Sérgrein Tímalengd náms I. Barnahjúkrun Eitt ár II. Geðhjúkrun 15 mánuðir III. Heilsuvernd Eitt ár IV. Ljósmóðurfræöi Eitt ár V. Röntgenhjúkrun Tvö ár (þar af 3 mán. á geislalækningadeild) VI. Svæfingahjúkrun Tvö ár VII. Hjúkrun á lyfækningadeildum, handlækninga- deildum, elli- og endurhæfingardeildum, gjörgæsludeildum, skurð- og slysadeildum Eitt ár Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004 Tafla 2 Fjöldi sérfræöileyfa skv. reglugerð Sérgrein Barnahjúkrun Félagshjúkrun Geöhjúkrun Gjörgæsluhjúkrun Hand- og lyflækningahjúkrun Hjúkrun aldraðra Ljósmóðurfræði Röntgenhjúkrun Skurðhjúkrun Svæfingahjúkrun Samtals 98/1976 veitttil 1993 Fjöldi 47 85 57 38 45 8 114 37 151 79 661
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.