Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Blaðsíða 27
Fréttamolar...
Stjórnin þakkaði einnig eftirtöldum aðilum fyrir ómetanleg störf í
þágu hjartahjúkrunar; Unnur Sigtryggsdóttir, Stefanía G. Snorradóttir,
Brynja Ingadóttir og Margrét Sigmundsdóttir
lands í boði Astra Zeneca og hélt fyrirlestur um
hjúkrun hjartabilaðra að aðalfundinum loknum.
Dr. Jaarsma hefur sinnt hjartabiluðum sjúkling-
um og stundað rannsóknir tengdar hjúkrun
þessa sjúklingahóps í ein 10 ár. Fyrirlesturinn
var framúrskarandi og sköpuðust áhugaverðar
umræður í lok hans og ljóst er að við getum
margt lært af reynslu Hollendinga í þjónustu við
þennan stækkandi sjúklingahóp.
Viöurkenning til hjúkrunarnema fyrir framúrskarandi
námsárangur
Tveir hjúkrunarnemar, Berglind Hálfdánsdóttir og Elva Rut Jónsdóttir,
hlutu viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristínar Thoroddsen fyrir
afburðaárangur í hjúkrunarnámi. Verðlaunin voru veitt við brautskrán-
ingu stúdenta frá Háskóla íslands 19. júní 2004. Samkvæmt skipulags-
skrá sjóðsins eru verðlaunin peningur úr bronsi. Á annarri hlið hans
er upphleypt mynd af Kristínu Thoroddsen og á hinni hliöinni stendur
Verðlaun Kristínar Thoroddsen, nafn nemanda sem peninginn hlýtur
og ártal.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar þeim Berglindi og Elvu Rut til
hamingju með verölaunin.
Árleg sumarferð öldungadeildar
Lagt var af stað frá Suðurlandsbraut 22 kl. 9 hinn 7. júní og ekið rak-
leiðis aö Laugum í Sælingsdal, með stuttum stansi í Borgarnesi.
Hádegisverður var snæddur á
Laugum en síðan haldið af staö
„fyrir Klofning". Ekið var um
Svínadal og Saurbæ og síðan
út á Skarðsströnd og numiö
staðar á Skarði þar sem gamla
bændakirkjan var skoðuö.
Skarðskirkja á stórmerka gripi,
fyrst og fremst altarisbrik með
alabastursmyndum sem talið
er aö Ólöf ríka Loftsdóttir hafi
gefið kirkjunni um miöja 15.
öld.
Auk hefðbundinna fundarstarfa var nýtt merki
fagdeildarinnar afhjúpað og má sjá það hér í grein-
inni. Stjórnin þakkaði einnig eftirtöldum aðilum
fyrir ómetanleg störf í þágu hjartahjúkrunar:
Unni Sigtryggsdóttur, Stefaníu G. Snorradóttur,
Brynju Ingadóttur og Margréti Sigmundsdóttur.
I fundarlok þáðu gestir glæsilegar veitingar í boði
Astra Zeneca.
Meðal annarra starfa stjórnar má nefna vinnu
við heimasíðugerð og undirbúning fyrir diplóma-
nám. Þetta starfsár hefur verið annasamt en
ánægjulegt og teljum við að mikið hafi áunnist,
ekki síst í að gera hjartahjúkrun sýnilegri. Unnið
hefur verið ötullega með markmið fagdeildar-
innar að leiðarljósi og vonum við að fagdeildin
megi halda áfram að vaxa og eflast.
Frá Skarði var haldið áfram út Ströndina og næst var stoppað í Klofningi
þar sem hópurinn gerði gott hressingarhlé.
í Klofningi er mikið og fagurt útsýni yfir Suðureyjar Breiðafjarðar og
til Snæfellsness. Síðan var haldið inn Fellsströndina og komið aftur að
Laugum þarsem kaffi og meðlæti beið hópsins.
Á heimleið var stansað í Búöardal en síöan var ekiö út Skógarstönd,
um Heydal, suður Mýrar og áð stundarkorn í Borgarnesi. Til Reykjavíkur
var komið kl. 21 um kvöldið. Veðrið var eins og best veröur á kosið í
ferðalögum, hæfilegt sólskin, logn, bjart og fallegt.
Gréta Aðalsteinsdóttir