Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Side 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Side 25
Þórunn A. Einarsdóttir FRÁ FÉLAGINU Suöurnesjadeildin fagnar afmælisári á Suöurnesjadeildin fagnar á afmælisári Suöurnesjadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræöínga hefur nú lokiö hefðbundnu vetrarstarfi. Margt hefur veriö gert á liðnum vetri enda lagt upp meö aö hafa dagskrána veigameiri en oft áður þar sem í garö gekk 30. starfsár deildarinnar en deildin var stofnuð 4. júlí 1974. Rúna og íris á bráðamóttökunni. 12. mai - hjúkrunarfræðingar HSS buðu upp á bakkelsi. 7. mai - vorferðin (Eldhestar). Nokkrir stofnfélagar Suðurnesjadeildar F.í.h.tErna Björnsdóttir, Eygló Geirdal, Emelía Guðjónsdóttir og Sigriður Árnadóttir. Vetrarstarfið hefur gengið mjög vel og þátttaka verið góð. Margt mjög fróðlegt og skemmtilegt hefur verið gert og reynt að höfða til mjög breiðs starfssviðs og áhugasviðs félagsmanna. Eftir gott jólafrí var haldið áfram og í janúar haldinn fræðslu- dagur um lungnasjúkdóma. Fyrirlesarar voru þau Rósa Jónsdóttir lungnahjúkrunarfræðingur og Olafur Baldursson lungnalæknir. Heppnaðist þessi dagur einstaklega vel, bæði að þátttöku og efni, enda frábærir fyrirlesarar á ferðinni. Þegar kom fram í mars var boðið upp á námskeið sem ljósmæður óskuðu sérstaklega eftir. Námskeiðið hét „Lyf fyrir þungaðar konur og mæður með börn á brjósti". Fyrirlesarinn var dr. Sveinbjörn Gizurarson, prófessor við HI. Fyrir jól var boðið upp á fyrirlestur um hvernig taka má upp kímni í starfi og einkalífi. Við fengum Elsu Friðfinnsdóttur, formann F.í.h., og Helgu Birnu Ingimundardóttur, hagfræðing F.í.h. í heimsókn. Reyndist það góð kvöldstund þar sem að umræðurnar urðu mjög líflegar og í alla staði skemmtilegar og gagnlegar. I nóvember komu fjórir nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar, sem starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, og kynntu lokaverkefni sín til BS-gráðu í hjúkr- unarfræði. Voru þetta þau Elínborg Olafsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir og María Fjóla Harðardóttir, allar útskrifaðar frá HI, og Jón Garðar Viðarsson er lauk sínu námi frá HA. Jólafundurinn var haldinn í lok nóvember og sáu hjúkrunarfræðingar utan almennra sjúkrastofn- ana um skipulagningu. Þátttaka var góð sem endranær þar sem markmið fundarins er að ná hópnum saman og leyfa léttleikanum að ráða ríkjum. I ár voru ný húsakynni Kaffitárs í Njarðvfk skoðuð, snæddur yndislegur jólamatur á veitingahúsinu Chico (Atlanta) og auðvitað var skipst á jólapökkum og farið í leiki. 23. apríl var boðið til afmælismóttöku í samkomusal Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Tilefnið var 30 ára afmæli svæðisdeildarinnar. Við þetta tækifæri var FISS gefið listaverk eftir myndlistarkonuna Sossu sem þakklætisvottur fyrir veitt- an stuðning í gegnum tíðina. Myndin á að tákna hjúkrunar- fræðinga og ber nú heitið „Trú, von og kærleikur". Gaman var að sjá hversu margir höfðu tök á því að koma þennan dag en sumir komu lengra að en aðrir til þess að hitta gamla vinnu- félaga og vini. Vetrarstarfinu lauk með aðalfundi 5. maí og síðan vorferð 7. maí. Vorferðin í ár var í höndum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á fæðingardeild HSS. Leiðin lá á Selfoss þar sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands var skoðuð. Móttökurnar þar voru frábærar og þökkum við kærlega fyrir okkur. 1 leiðinni var Garðyrkjuskólinn í Hveragerði skoðaður, nokkrar fóru á hestbak hjá Eldhestum, kíkt var í vinnusmiðju Sjaínar Har listakonu og síðan endað á veitingahúsinu Við fjöruborðið á Stokkseyri þar sem humar var borðaður af mikilli elju og ástríðu. Svæðisdeildin er nú farin í frí enda framundan vonandi nokkrar vikur með sumar og sól. Bestu kveðjur til ykkar allra og hafið það sem best í sumar. Tímarit hjúkrunarfræðinga 3. tbl. 80. árg. 2004 2

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.