Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 28
Elsa B. Friðfinnsdóttir Fundur alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga, lækna og lyfjafræðinga Jón Snædal, Elsa B. Friöfinnsdóttir, Ingunn Björnsdóttir og Lárus Steindór Guðmundsson. Dagana 15. og 16. júní sl. var haldinn sögulegur fundur í Genf í Sviss. Þar hittust í fyrsta sinni fulltrúar alþjóðasam- taka hjúkrunarfræðinga (ICN), lækna (WMA) og lyfja- fræöinga (FIP). Þessi alþjóðasamtök hafa með sér sam- starf undir heitinu World Health Professionals Alliance (WHPA). Sex fulltrúar frá Islandi sátu fundinn: Ingunn Björnsdóttir og Lárus Steindór Guömundsson, fyrir hönd Lyfjafræðingafélags Islands, Sigurbjörn Sveinsson og Jón Snædal, fyrir hönd Læknafélags íslands, Ásta Möller, fyrir hönd ICN, og greinarhöfundur, fyrir hönd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Dagskrá fundarins A dagskrá fundarins var m.a. umfjöllun um hvernig þessi stóru samtök heilbrigðisstétta geti starfað saman að auknum gæðum heilbrigðisþjónustunnar og auknu öryggi sjúklinga. Fulltrúar Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004 Kanada kynntu samstarf þessara stétta en þar hefur náðst góður árangur þannig að samtökin koma sameiginlega fram í viðræðum við þarlend stjórnvöld og í stefnumótandi ákvörðunum. Lögð var áhersla á að fyrsta skrefið til góðrar samvinnu væri að hætta að nota hugtök eins og „versus“ („en á hinn bóginn“) sem tengingu milli stétt- anna heldur leggja áherslu á „og“. Einfalt en gott ráð. Fulltrúar hvers þessara þriggja faghópa gerðu grein fyrir framtíðarsýn sinna samtaka varðandi heilbrigðisþjónustu. Eins og gefur að skilja voru áherslurnar óh'kar og skýrðist það ekki síst af því hvaðan fulltrúar samtakanna komu, frá þróuðum eða vanþróuðum ríkjum. Fulltrúi sjúklinga- samtaka lýsti framtíðarsýn sjúklinga. Þá var einnig fjallað um leiðtoga í heilbrigðisþjónustu 26

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.