Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 29
FRA FELAGINU Fundur alþjóöasamtaka hjúkrunar- fræðinga, lækna og lyfjafræöinga og sýn einkageirans á heilbrigðisþjónustuna. Ýtarleg umfjöllun um þennan sögulega fund er að finna á heimasíðu samtakanna www.whpa.org. Alnæmisfaraldurinn | Eitt meginumfjöllunarefni fundarins var sú alvarlega staða sem uppi er í heiminum út af útbreiðslu HlV-veirunnar og meðferð við alnæmi. Einn aðalfyrirlesari fundarins var Stephen Lewis sem nú starfar sem nokkurs konar erindreki Koíi Annans í baráttunni gegn alnæmi. Lewis gerði fundarmönnum grein fyrir sláandi staðreynd- um varðandi útbreiðslu HIV, einkum í Afríku og Suðaustur-Asíu, og hvaða áhrif skortur á meðferð getur haft fyrir heilu þjóðirnar. Meðal þeirra staðreynda, sem Lewis benti á, var að nú þarfnast um sex milljónir manna meðferðar við alnæmi. Konur eru 67% smitaðra einstaklinga já aldrinum 15-24 ára í Afríku. Ef fram fer sem horfir verður heil heimsálfa án kvenna áður en langt um líður. Því er spáð að árið 2010 verði 20 milljónir munaðarleysingja í Afríku. Nú er svo komið að í fjölda fjölskyldna eru báðir foreldrar látnir og ömmur sjá nú um fjölda barnabarna sinna. Lewis sagði sögu af 73 ára ömmu sem hafði misst öll fimm fullorðin börn sín á árunum 2000-2002. Hún annaðist nú fjögur barnabörn sín sem öll eru smituð af HIV. Ömmurnar grafa börnin sín og hugsa um barnabörnin í dauðastríði þeirra. Ný fjölskyldugerð er orðin staðreynd í Afríku, þ.e. systkinafjölskyldur. Þá er átt við að allir fullorðnir einstaklingar í fjölskyldunni eru látnir og elsta barnið í fjölskyldunni reynir að halda heimili fyrir yngri systkini sín. Lewis sagði yngsta höfuð slíkrar fjölskyldu, sem hann hafði hitt, vera sex ára. Þvílík neyð. Lewis gagnrýndi harðlega hversu framlög hinna ríku þjóða til þróunarhjálpar væru lítil hlut- fallslega, þar með til baráttunnar gegn HIV og meðferðar við alnæmi. Hann benti á að aðeins fjórar þjóðir væru nú búnar að ná hinu göfuga markmiði að veita 0,7% af vergri landsframleiðslu sinni til þróunarmála, þ.e. Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Holland. Hann gagnrýndi harðlega þá stefnu að ríki heims virtust ætíð tilbúin til að setja fjármagn í hernað en ekki í fólk. Hann taldi að þjóðir heims hefðu ekki enn áttað sig á því alvarlega ástandi sem væri að skapast með þeim mikla fjölda sem væri án meðferðar við alnæmi, og hvaða áhrif það kæmi til með að hafa á heimsbyggðina alla þegar fram líða stundir. Vitnað var í orð Nelsons Mandela þar sem hann sagði að alnæmisvandinn væri ekki heilbrigðis- vandamál heldur mannréttindamál. Rétt er að benda á vef- svæði Lewis fyrir þá sem vilja kynna sér störf hans nánar en það er www.stephenlewisfoundation.org. í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, The World Health Report 2004, er fjallað um útbreiðslu HlV-veirunnar og meðferð við alnæmi. Þar er meðal annars greint frá áætlun sem kölluð er „3 by 5 strategy". Markmiðið með þeirri áætlun er að árið 2005 fái 3 milljónir manna í þróunarríkjunum meðferð við alnæmi. Ályktun fundarins Aðeins ein ályktun var borin upp til atkvæða á þessum fyrsta sameiginlega fundi þessara þrennra alþjóðasamtaka megin- heilbrigðisstétta. Sú ályktun fjallaði um HIV og alnæmi. 1 ályktuninni er Iögð áhersla á að alnæmisfaraldurinn sé öðrum faröldrum alvarlegri, að konur og börn séu nú í sérstakri hættu, að árangur fyrirbyggjandi aðgerða hafi þegar komið skýrt fram, að líðan þeirra sem fá meðferð stórbatni og að ef ekkert verði að gert geti heilu samfélögin nánast þurrkast út. Þeir leiðtogar í Iæknisfræði, hjúkrunarfræði og lyfjafræði, sem þarna voru saman komnir, skora því á stjórnvöld, alþjóðastofn- anir og heilbrigðisstéttir að viðurkenna þann mikla vanda sem við er að eiga og leggja nú þegar fram nægilegt fjármagn til að ná megi tökum á útbreiðslu HIV og veita þeim meðferð við alnæmi sem á þurfa að halda. Einnig skoraði fundurinn á hjúkrunarfræðinga, lækna og lyfjafræðinga að taka forystu í baráttunni gegn alnæmi og gerast málsvarar þeirra sem smit- aðir eru af HIV. Lokaorð Þessi fyrsti sameiginlegi fundur alþjóðasamtaka hjúkrunar- fræðinga, lækna og lyfjafræðinga bar þess nokkur merki að vera frumraun. Slíkur sameiginlegur vettvangur þessara þrennra stóru og áhrifamiklu samtaka er þó augljóslega bæði nauðsynlegur og gagnlegur, ekki síst til að efla þekkingu milli þessara faghópa og til að nýta þann kraft og þau áhrif sem sam- tökin geta haft, leggi þau saman. Arangur þessa fyrsta fundar er ótvíræður þó ekki væri nema fyrir það eitt að hóparnir líti á sig sem samherja fremur en keppinauta, noti „og“ í stað „en á hinn bóginn“. Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.