Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Qupperneq 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Qupperneq 39
FRA FELAGINU Ritstjórnarstefna og starfsáætlun Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinnum á ári. Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar skoöanirog viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrun- arfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. í félagslega hluta tímaritsins eöa fréttahlutanum er greint frá kjaramál- um og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig aö finna fréttir frá svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá því helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum félagsins. Tímaritið er vettvangur fræöilegrar og félagslegrar umfjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar. Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræði- greinar og hins vegar fræðslugreinar. Fræöigreinar eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtar- legan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldursem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr- unarkennslu, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkrunar- og heilbrigöisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræöilegri nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð. Hægt er að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar. Við umfjöllun greina, sem óskaö hefur veriö eftir að verði ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarleg- ar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræði- legum tímaritsgreinum. í handbókinni er einnig að finna upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbeiningum. Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna en eru hvattir til að ráöfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum. í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Handbókar sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprentaðar tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af viöeigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með greinum þrjú lykilorð. í handbókinni er meg-| ináhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunarfræöinga bindur sig hins vegar ekki viö megindlegar rannsóknir og er fengur aö greinum þar sem margvíslegri aðferðafræði er beitt. Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg við- fangsefni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræöilegum heimildum ásamt athugunum eöa reynslu höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnistökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í blaðinu er einnig að finna viðtöl! Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur. Formaður félagsins ber ábyrgö á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðan- ir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina Tímaritsgreinar eru sendar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suöur- landsbraut 22, 108 Reykjavík. Ef höfundar eru tveir eða fleiri þarf einn þeirra aö vera ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf aö koma fram i bréfi sem sent er með handritinu. Frágangur handrits Viö ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræðirits- ins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum. Á forsíðu handritsins þarf aö koma fram heiti tímaritsgreinarinnar; nafn/nöfn höfundar/höfunda;vinnustaður/vinnustaðirhöfunda(r);heim- ilisfang og simanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á að vera 100-150 orð. Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orö. Handritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfunda(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er eftir því að þau séu ritrýnd. Útgáfuferli Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins viö mat á tímaritsgreinum. Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004 ;

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.