Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Side 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Side 42
Valgerður Katrín Jónsdóttir Hin hliöin „Fararstjórastarfið er gífurlega lærdómsríkt" - segir Sólborg Sumarliöadóttir Deildarstjórinn í Hlíðabæ heitir Sólborg Sumarliðadóttir. Sólborg tekur á móti ritstjóra Tímarits hjúkrunarfrœðinga íi hinu veglega húsi Hlíðabæjar sem er á horni Flókagötu og Lönguhlíðar og hefur fallist á að ræða reynslu sína af því að vera fararstjóri. Sólborg vann sem fararstjóri í Algarve í Portúgal fjögur sumur og j fimmta sumarið var hún í fjóra mánuði á Mallorca ásamt eigin- manni sínum Gylfa Gunnarssyni (skólastjóra Tónlistarskóla Seltjarnarness). Það var sumarið '93 sem hún var á Mallorca. „Við vorum hluta úr sumrum, hjónin. A þeim tíma sem við vorum í þessu starfi höfðu kennarar langt sumarfrí ogl maðurinn minn er kennari,“ segir hún. „Eg var þá að vinna á gamla Borgarspítalanum og það var Sigríður Snæbjörnsdóttir sem var þar hjúkrunarforstjóri. Hún og hennar meðstjórn- endur sýndu þessu starfi mínu mikinn skilning, þær voru skemmtilegar og víðsýnar þessar konur sem voru við stjórn- völinn og fannst gaman að hjúkrunarfræðingar hefðu áhuga á, getu og vilja til að takast á við eitthvað annað líka. Ég fór oftast í launalaust leyfi, þær vissu aði i ég kæmi aftur næsta haust.“ Hún segir það hafa verið algjöra tilviljun að þau Tóru að vinna við fararstjórastarfið. Vinir þeirra hafi verið að vinna við þetta í Portúgal árið 1989 er þau hófu þetta starf. „Fyrsta sumarið fór maðurinn minn á undan mér til Portúgals, ég kom seinna um sumarið og vann þá með honum þar til haustaði. Þetta tímabil var gífurlega lærdómsríkur hvað varðar mannleg samskipti vegna þess að þú umgengst alls konar fólk, ég kynntist mjög ólíku fólki og það er í senn bæði lærdómsríkt og krefjandi en engu að síður mjög | skemmtilegt. Fyrstu vikuna „settum við í rólega gírinn“ íslendingar eru oft á tíðum ansi stressaðir og i Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.