Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Side 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Side 49
ÞANKASTRIK Endurhæfing og endurmenntun hjúkrunarfræöings Þankastrik - endurhæfing og endurmenntun hjúkrunarfræðings Eftir aldarfjórðung í starfi, lengst af við hjúkrun sjúklinga í hjartaendurhæfingu, tek ég púlsinn á sjálfri mér. Hann er fullhraður og blóðþrýstingurinn við efri mörk. Líklega er þörf á tilbreytni. Jú, námsleyfi er auðfengið. Þá er best að athuga hvaða námskeið standa til boða á vormisseri í hjúkrunarfræðideild Háskóla Islands. Það ætti að hægja á hjartslættinum og lækka þrýstinginn. Námskeið í hjúkrunarstjórn, sálfræði og næringarfræði verða fyrir valinu. Nú er ég klár í slaginn. Undarlegt að vera aftur á leið í skólann. Sama skólahúsið, sem nú heitir Eirberg, stendur þarna enn og gegnir hlutverki sínu. Þá bjó ég á þriðju hæð hússins og var aidrei á bíl en nú fyigir því nokkur spenna að finna stæði á planinu stóra. Eg rata enn um húsið og finn brátt kennslustofuna. Nemendurnir tínast inn. Sumir eru svangir, koma með morgunverðinn með sér og maula í tíma. A sínum tíma hefði það ekki þótt viðeigandi en þá fengum við skammtað kaffiduft. Ég á enn boxið sem ég hafði undir skammtinn minn og biátt glas sem ég drakk kaffið úr alla morgna árin þrjú. Mér léttir þegar kennslustundin hefst. Bæði kennarar og nemendur taka mér vel. Ég get ekki fundið betur en ég falli ágætlega í hópinn þótt flestir séu talsvert yngri en ég. Kennararnir ganga skörulega til verks. Kennsluefnið birtist skýrum stöfum á tjaldinu. Þegar ég var í hjúkrunarskóianum á sínum tíma var notast við töflur og krít. Þá var námið aðailega verklegt en nokkurra vikna fræðileg námskeið haldin á hverju ári. Nú er kennslugögnin að finna á netinu nemendum til hagræðis. Karitas Kristjánsdóttir marki. Nemendur fá skemmtilegt verkefni: Fimm sfðna ritgerð um leiðtoga sem hver nemandi velur eftir eigin höfði. Ymsar til- lögur heyrast, svo sem Jón Sigurðsson, Gandhi, Don Kíkóti og Andrés önd. Enginn lætur uppi sitt val. Það er einkamál. Það er gaman að hlusta á fyrirlestrana í sálfræði. Þeir kveikja ýmsar vangaveltur um mannlega hegðun. Kennarinn bendir sérstaklega á eitt verkefni og hvetur nemendur til að undir- búa sig vel fyrir próf: Fyrirtíðaspenna - er hún til? Verið með eða á móti og rökstyðjið skoðun ykkar. Verkefnið hlýtur góðar undirtektir þótt nokkrir hafi aldrei reynt slíka spennu á sjálfum sér. Næringarfræðslan bregst ekki. Fróðleik um næringarefni, vítamín og steinefni, æskilega samsetningu fæðunnar og ráðlagða dagskammta er vandlega komið til skila. Ég reikna út dagskammta eins og fyrir er lagt og fyrr en varir er ég komin í hlutverk neytandans. Jú, það er rétt - ég verð að leggja af. Af gamalli skyldurækni sæki ég allar kennslustundir. Þessi skólaganga mín fjörutíu árum eftir að ég útskrifaðist úr Hjúkrunarskóla Islands stendur í fjóra mánuði. Allt í einu er námstímabilinu lokið og ég velti fyrir mér eftirtekjunni. Allir vita að endurmenntun er sjálfsögð skylda og ánægjuleg. Ymislegt gat ég rifjað upp og ég aflaði mér nýrrar þekkingar af mörgu tagi. Ávinningurinn er áþreifanlegur, hjartsláttur hægur og blóðþrýstingur eðlilegur á ný. Ég skora á Helgu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og ljósmóður (Helga.Hardardottir@hgkop.is), að skrifa næsta pistil. Karítas Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur á Reykjalundi I hjúkrunarstjórn fæst sýn á hjúkrun á Landspítala og siðareglur eru rifjaðar upp. Leiðtoginn er í brennidepli, eiginleikar hans og frumkvæði, tjáskipti og hvernig hann vísar veginn að settu Timarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004 47

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.