Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 50
Litið um öxl ■ ■ - Orlagarík ákvörðun - Ég man eins og gerst hefði í gær, ég sit í rútunni á leiö frá Dalvík til Akureyrar. Það er sólríkur sumardagur árið 1954. Erindið til Akureyrar veldur mér þó nokkrum heilabrotum - ég hafði látið vinkonu mína á Dalvík telja mig á að sækja um vinnu á sjúkrahúsinu en þar var hún fyrir stuttu farin að vinna til að geta verið nálægt föður sínum sem lá þar mikið veikur. Hún bjó í kvistherbergi í Höfnershúsinu og vildi fá mig í félagsskap þar. Ég hafði aldrei stigið fæti inn á sjúkrahús, ekki einu sinni í heimsókn, og hafði satt að segja lagt það að jöfnu við að vinna í sláturhúsinu heima en það hafði ég aldrei getað hugsað mér. En nú varð ekki aftur snúið og yrði ég að láta á þetta reyna. Ég skunda upp kirkjutröppurnar og Eyrarlandsveginn, fram hjá Lystigarðinum og nú blasir Fjórðungssjúkrahúsið við, þessi glæsilega bygging sem hafði verið tekin í notkun árið áður. Mér var vísað til Ragnheiðar Arnadóttur yfirhjúkrunarkonu, sem tekur mér Ijúflega. Vinkonan hafði greinilega staðið sig vel svo hún hefur góða trú á Dalvíkingum. Geturðu byrjað strax, spyr hún, og eftir jákvæðar undirtektir fer hún með mig til að máta vinnuföt, kjól, svuntu og meira að segja smá-kappa til að halda hárinu frá andlitinu. Ég á að vera gangastúlka á vakt L og H sem þýðir að ég vinn tvískipt (sem var það algengasta), er á lyfjadeild fyrir hádegi og síðan seinnipartinn á handlæknis- deildinni. Nú var klukkan að nálgast 11 og sagði hún passa að ég ynni bara út í eitt þennan dag og yrði á L-deild fram til 15:30 að vaktin flyttist upp á H-deild. Þar með var þetta ákveðið og hún leiddi mig fyrstu skrefin inn í heilbrigðiskerfið, fór með mig til deildarstjóranna þar sem mér var vel tekið og sagt frá fyrirkomulagi vakta. A lyfjadeildinni var ég sett í mitt fyrsta formlega verk. Það var að grófhreinsa mjög óhreint tau úr lokuðum skolpotti, heldur óþrifaiegt verk, en féll svo sem ekki langt frá mínum neikvæðu hugmyndum um sjúkrahússtörf. Ég hugsaði vinkonu minni þegjandi þörfina að hafa platað mig út í þetta. Nú var komið hádegi og matartíminn að byrja, ég á að mata gamla konu sem er á stórri sex rúma stofu. Ég legg af stað með matarbakkann en þegar ég kem að dyrunum sé ég loga rautt ljós yfir þeim svo ég sný frá með bakkann og segi þeim í býtibúrinu að það sé rautt ljós, hvort megi nokkuð fara þar inn. Deildarstjórinn, sem var að skammta á diskana, leit með undrunarsvip á þennan einfeldning sem ekki skildi að gamla konan var auðvitað að hringja eftir aðstoð. Annar eins álfur hafði trúlega aldrei komið þarna til starfa fyrr. Þetta varð svo frægt að það var notað í innanhússgríni á næstu árshátíð! En fyrir mér þýddi bara rautt ljós annaðhvort stopp eða aðvörun. Ekki var nú byrjunin gæfuleg, en áfram leið dagurinn með nýjum viðfangsefnum og má segja að allt færi batnandi þannig að er ég að loknum fyrsta vinnudeginum hitti loks vinkonu mína var ég orðin bjartsýn og sátt við sumarvinnuna. Og svo fór að ég ílentist þarna en hún hvarf til annarra starfa. Sem gangastúlka fór maður smám saman að taka þátt í umönnun sjúklinga og vinnu með hjúkr- unarnemunum sem þarna voru í námsdvöl í sex mánuði og voru nánast í hjúkrunarkvennastörf- um, t.d. einar á næturvöktum með gangastúlku sér til aðstoðar. Það voru ekki síst kynni mín af 48 Timarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.