Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 51
þessum heilbrigðu, hressu og dugmiklu stúlkum sem kveiktu áhuga minn á hjúkrunarnáminu. Það að vinna á báðum aðaideildum spítalans gaf mér nokkra innsýn í heildarstarfsemi spítalans og um leið tækifæri til að vinna með úrvalsfólki sem enn á sér fastan sess í minningunni. Þessi sjúkrahúsandi náði fljótlega þeim tökum á mér að ekki varð aftur snúið. Þessi störf vildi ég læra og leggja fyrir mig í framtíðinni. Tímarit hjúkrunarfræðinga 3. tbl. 80. árg. 2004 49 LITIÐ UM ÖXL Örlagarík ákvöröun Það var einnig sérstakur félagsandi sem ein- > kenndi starfsumhverfið þarna á spítalanum. Allir voru þátttakendur í verkkeðjunni, hver hafði sitt hlutverk og skipti nokkru máli í heildinni. Þessi mikla og góða samvinna náði jafnvel út fyrir vinnu- staðinn. Mér er minnisstætt þegar Guðmundur Karl, yfirlæknir, gekk glaðbeittur um ganga og boðaði gróðursetningarferð að kveldi. Allir áttu að mæta sem gætu. Svo var mætt í portið við spítalann á ákveðnum tíma og haldið fram á gróðurlausa mela og potað þar niður nær ósýnilegum plöntum. Þetta var gert með glöðu geði þótt maður hefði nú ekki mikla trú á að árangurinn ætti eftir að sjást. Það var nú líka nestið úr eldhúsinu sem gott var að gæða sér á eftir bogrið við græðlingana. I dag er heldur betur hægt að virða fyrir sér og njóta umhverfis- breytingarinnar þar sem Kjarnaskógur er nú. Mikill skógur á íslenskan mælikvarða, öllum sem þar koma til mikillar ánægju og heilsubótar. Ingibjörg R. og Nanna hálfri öld síðar. Tekið i juní 2004. Það er skemmst frá því að segja að nýgræðingurinn, sem kom til starfa sumarið 1954, festi rætur í heilbrigðiskerfinu, fór í hjúkrunarnám 1958 og var að sjálfsögðu sinn nematíma, sex mánuði, á Akureyri. Eftir útskrift sumarið 1961 gerðist það svo, að bróðurparturinn af hollinu fór norður með Ingibjörgu R. Magnúsdóttur sem þá var að taka við sjúkrahúsinu sem i yfirhjúkrunarkona. Þá tóku við nýir tímar með áhugaverðum viðfangsefnum í lífi mínu og starfi. Nanna og Ingibjörg R. sem þá vann á Röntgendeild F.S.A. Tekið síðsumars 1954. -

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.