Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Page 9
FRA FELAGINU
Hjúkrunarþing 2004
- Kostnaður fólks á landsbyggðinni hefur aukist
vegna þess hve sérfræðiþjónusta er að verða
staðbundin.
- Kostnaður sjúklinga eykst gjarnan þegar þjón-
ustan er flutt á hagkvæmara þjónustustig, t.d.
af legudeild á göngudeild.
- Boðleiðir í heilbrigðiskerfinu eru óljósar njót-
endum, þær þarf að skýra til að fólk hafi ein-
hverja yfirsýn.
- Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar/félagið
beiti sér fyrir samræmingu í gjaldtöku fyrir
heilbrigðisþjónustu.
- Tryggja þarf að komur til hjúkrunarfræðinga á
heilsugæslustöð verði metnar sem hluti þess
sem telst til söfnunar í afsláttarkort einstakl-
inga hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Að loknu kaffihléi tóku við pallborðsumræður.
Við pallborðið sátu fyrirlesarar ásamt EIsu B.
Friðfinnsdóttur og Margréti Sverrisdóttur. Elsa
B. Friðfinnsdóttir þakkaði ágæt erindi sem haldin
voru á þinginu sem tengdust vel efnislega eins
og fram kom í niðurstöðum hópastarfsins. Hún
sagði frá málþingi sem Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og Fæknafélag Islands munu halda
26. nóvember um öryggi sjúklinga. Einnig væri
starfandi hópur sem ætlaði að setja fram viðmið
um hversu mörgum sjúklingum hver hjúkrunar-
fræðingur getur sinnt, einkum á bráðaþjónustu og
öldrunarþjónustu. Starfshópinn skipa þrír fulltrúar
frá F.í.h., tveir fulltrúar frá Landspítala-háskóla-
sjúkrahúsi og einn fulltrúi landlæknisembættis-
ins. Markmið hópsins er að setja fram staðla um
mönnun og öryggi sem gætu fengið viðurkenningu
stjórnvalda. Margrét Sverrisdóttir þakkaði fyrir ve!
skipulagt og gagnlegt þing. Hún sagðist hafa sér-
stakan áhuga á kostnaði sjúklinga og full ástæða
væri til að óttast að gjöld verði hækkuð frá því
sem nú er. Rannsókn dr. Rúnars Vilhjálmssonar
væri áhugaverð og athyglisvert að sjá hvaða hópar
bera þyngstu byrðarnar í heilbrigðiskerfinu í dag
og hverjir það eru sem veigra sér við að leita eftir
þjónustunni. 42% af heildartekjum ríkisins færu til
heilbrigðismála í dag svo miklu skipti hvernig þeim
fjármunum væri varið. Margrét sagði hjúkrunar-
fræðinga vel menntaða stétt og hún treysti þeim
best til að standa vörð um hagsmuni sjúklinga.
Fyrirspurn kom úr sal varðandi niðurgreiðslur
sérfræðinga, þannig er t.d. þjónusta geðlækna
niðurgreidd en ekki þjónusta sálfræðinga. Rúnar
Mikil örtröö var í skráningu á þingiö, hér má m.a. sjá fyrrverandi heilbrigöisráöherra,
Ingibjörgu Pálmadóttur
svaraði því til að sérhæfing starfsstétta nýttist ekki alltaf jafn
vel og kostur væri. Hann benti á að heilbrigðiskerfið væri gott
kerfi þar sem það væri félagslegt kerfi og allir ættu jafnan rétt á
þjónustunni en eflaust væri hægt að nýta betur þá fjármuni sem
fara til heilbrigðismála, það væri til að mynda hægt að koma í
veg fyrir ónauðsynlegar endurinnlagnir, nýta starfsfólk betur,
auka heimatengda þjónustu og sérhæfða heimahjúkrun og bæta
upplýsingaflæði svo nokkur atriði væru nefnd. Elsa sagði það á
ábyrgð stjórnvalda að forgangsraða verkefnum innan heilbrigð-
isþjónustunnar og Margrét var sammála því en bætti við að
iagfólk hefði oft bestar upplýsingar um hvar þörfin væri mest
hverju sinni. Sigrún Gerður óskaði félaginu til hamingju með
afmælið og vakti athygli á hjúkrun í dreifbýli, ólíkar kröfur væru
gerðar til hjúkrunarfræðinga sem ynnu í dreifbýlinu og spurði
hvort félagið ætlaði að koma á símenntun fyrir hjúkrunarfræð-
inga í dreifbýlinu. Elsa svaraði því til að starfshópur hefði verið
starfandi fyrir nokkrum árum um landsbyggðarhjúkrun og m.a.
hefðu verið skoðaðir möguleikar á „nurse practitioner" námi.
Þessi starfshópur skilaði tillögum til landlæknis fyrir 4 árum.
Arangur af því starfi var að námstími læknanema í héraði var
Iengdur. Félagið hefði svo fengið Guðrúnu Kristófersdóttur til
að vinna skýrslu fyrir félagið sem kynnt var í Tímariti hjúkr-
unarfræðinga. Veikleikar við „nurse practitioner“ námið hefðu
aðallega verið að margir hjúkrunarfræðingar veltu fyrir sér
hvers vegna þeir ættu að taka við verkefnum sem læknar hefðu
sinnt áður í stað þess að byggja á hugmyndafræði hjúkrunar.
Hún sagði einnig að meistaranám í hjúkrun hefði verið gagn-
rýnt fyrir að vera ekki nægilega klínískt. Félagið væri nú búið að
fjárfesta í fjarfundabúnaði og því yrðu fundir fagdeilda og ýmis
námskeið send út um landið á næstunni.
Tímarit hjúkrunarfræðinga 5. tbl. 80. árg. 2004'