Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 17
PISTILL Þorbjörg Guðmundsdóttir: Jólahugvekja Jólahugvekja 2004 Jólin, þessi helgasta hátíð ársins er í nánd og l’Iest okkar eru mitt í undirbúningnum. Ég rifja upp fyrri ár og sé að hvernig sem aðstæður mínar hafa verið frá einum tíma til annars þá er minn- ing jólanna mér einkar kær, hvort heldur sorg og erfiðleikar voru til staðar eða aðstæður góðar. Það er eitthvað alveg sérstakt við þessa hátíð, hún hefur tilhneigingu til að Iaða fram hið góða í fari manna. Birtan og vonin, sem hátíðin felur í sér, er kærkomin inn í þennan dimmasta tíma ársins. Gleði, eftirvænting eða tregablandnar tilfinningar bærast innra með okkur, allt eftir aðstæðum. Amstrið er í algleymingi og auðvelt er að hrífast með öllu því sem fylgir þessum árstíma \hð kvörtum stundum yfir umstanginu en vitum : að sjálf getum við haft nokkur áhrif þar á ef viðj forgangsröðum og skiljum og skynjum hvað það er sem raunverulega skiptir máli. urðu til þess að hann skrifaði vinum sínum bréf þar sem hann veltir fyrir sér hvernig hann myndi nýta tímann ef Guð gæfi aðeins örlítið meira af honum. I bréfinu segir hann meðaf annars að hann myndi ekki meta hluti eftir verðgildi þeirra heldur merkingu og bætir við: „Ég myndi ekki segja allt sem jég hugsa en ég myndi örugglega hugsa allt sem ég segi.“ Síðar segir hann: „Ég myndi ekki láta dag líða án þess að segja þeim sem ég elska frá tilfinningum mínum.“ Bréfinu lýkur Márques síðan með eftirfarandi heilræðum: „Enginn á sér tryggðan morgun- dag, hvorki ungur né gamall. I dag kannt þú að sjá í síðasta skipti þá sem þú elskar. Því skaltu ekki bfða lengur. Breyttu í dag eins og morgundagurinn renni aldrei upp, þú munt örugg- lega harma daginn þann þegar þú gafst þér ekki tíma fyrir bros, faðmlag, koss og þú varst of önnum kafinn til að verða við óskum annarra. Hafðu þá sem þú elskar nærri þér, segðu þeim í heyranda hljóði hversu mjög þú þarfnast þeirra, elskaðu þá og komdu vel fram við þá, taktu þér tíma til að segja „mér þykir það leitt“, „fyrirgefðu mér“, „viltu vinsamlegast", „þakka þér fyrir" og öll þau kærleikans orð sem þú þekkir." Heilræði Marqués tengjast ekki jólum beint en eru samt mjög í anda jólanna og það sem þau standa fyrir en það eru gieði, friður, góðvild, kærleikur, miskunnsemi og fyrirgefning. Okkur er öllum gjarnt að leggja ofuráherslu á ytri umbúnað jólanna en hættir til að huga minna að inntaki þeirra. Auðvitað er skemmtilegt að hafa fallega skreytt heimili og mat sem til- heyrir hátíðum. En jólin koma hvort sem við erum „búin að öllu“ eða ekki. Við fyrstu sýn virðist fátt jólalegt við sjúkradeild þó einstaka jólaskraut finnist þar, en samt sem áður eru fáir staðir þar sem helgi jólanna verður jafnáþreifanleg og einmitt þar. Andrúmsloftið er sérstakt og Iíkist ekki því sem gerist á venjulegri iaugardags- eða sunnudagsvakt. Það fer ekki fram hjá neinum sem stendur vaktina á aðfangadagskvöld eða jóla- nótt að það eru heilög jól. Það er sem englar fari hjá og jafnvel döpur hjörtu geta glaðst því boðskapur jólanna: „Verið óhrædd- ir, því sjá, ég boða yður mildnn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn" nær einnig þangað, eins og um landið allt - um öll Iönd þar :Sem jól eru haldin hátíðleg. Fyrir nokkru las ég frásögn, sem birst hafði í einu dagblaða landsins, um nóbelsskáldið Gabriel García Márquez. Márquez hafði dregið sig í hlé frá opinberu lífi vegna veikinda. Þessi veikindi Kæru hjúkrunarfræðingar, megið þið og fjölskyldur ykkar eiga gleðilegjól. Tímarit hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 80. árg. 2004'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.