FLE blaðið - 01.01.2015, Qupperneq 2

FLE blaðið - 01.01.2015, Qupperneq 2
Útg: Félag löggiltra endurskoðenda © Aðsendar greinar í blaðinu eru á ábyrgð höfunda en að öðru leyti er útgáfa blaðsins á ábyrgð ritnefndar FLE. FLE blaðið má ekki afrita með neinum hætti, að hluta til eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfundarrétthafa. Vinnsla blaðsins Ritnefnd FLE: Ólafur Már Ólafsson, formaður Arnar Már Jóhannesson Ingvi Björn Bergmann Prentun: GuðjónÓ Umsjón: Hrafnhildur Hreinsdóttir w// Janúar 2015, 37. árgangur 1. tölublað "''íSSJT" Skrifstofa FLE, helstu upplýsingar Skrifstofa FLE, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, er opin virka daga kl. 9-15 Sími: 568 8118, Tölvupóstfang: fle@fle.is, Vefsíða FLE: www.fle.is Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri sigurdur@fle.is Hrafnhildur Hreinsdóttir, skrifstofustjóri fle@fle.is Fylgt úr hlaði Útgáfa FLE blaðsins hefur verið í höndum Kynningarnefndar FLE um árabil. Nafni nefndarinnar var breytt á árinu og heitir hún nú Ritnefnd og telst ekki lengur vera ein af fasta- nefndum FLE og er því skipuð sérstaklega af stjórn FLE. Hlutverk Ritnefndar verður þó áfram útgáfa FLE blaðsins og önnur tilfallandi verkefni vegna kynningarefnis frá FLE. Vinnsla blaðsins hefur gengið ágætlega og berast nefndinni greinar víða að. Efnistök í blaðinu eru hefðbundin blanda af efni sem tengist félagsstarfinu og reynt er að nálgast þau mál sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Þá er í blaðinu viðtal við og grein frá endurskoðendum erlendis. Borið hefur í auknum mæli á að kallað sé eftir lausnum vegna endurskoðunar smærri fyrirtækja og hefur starfshóp- ur verið að störfum á vegum FLE um breytingar á endur- skoðunarskyldu þeirra félaga. Umfjöllun um þetta efni er í blaðinu en einnig er grein sem fjallar um reglur og viðmið sem gilda um lögboðna endurskoðun og undanþáguákvæði vegna þeirra. Áhugavert verður að fylgjast með þróun þessara mála á næstu misserum. Ritnefnd FLE vonar að lesendur hafi gagn og gaman af efni blaðsins og færir öllum greinarhöfundum og þeim sem komu að útgáfu þess bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Janúar 2015, Ólafur Már Ólafsson, Arnar Már Jóhannesson og Ingvi Björn Bergmann. FLE blaðiðjanúar2015

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.