FLE blaðið - 01.01.2015, Síða 13
Bandaríkjunum (mælt í fjölda notenda) t.d. ACL og Caseware.
í Evrópu eru fleiri kerfi á markaðnum eins og t.d. Approva,
Oversight og Aptean. Á íslandi er íslenska fyrirtækið Expectus
stærst á þessu sviði með hugbúnaðinn ExMon.
Notkun og virði samtímaeftirlits í íslenskum fyrirtækjum
í fyrrnefndri könnun Viðskiptadeildar HR árið 2014 var spurt um
um notkun á upplýsingatækni til samtímaeftirlits. Af þeim 124
fyrirtækjum sem svöruðu þessari spurning höfðu 20 fyrirtæki
eða 16% innleitt svona kerfi en 47 eða 38% höfðu áhuga á að
innleiða slík kerfi á næstu árum.
Heimsótt voru 12 af þeim fyrirtækjum sem nota samtímaeftir-
litshugbúnað til að komast að því hvað hann var notaður í og
hvaða virði hann skapaði. Kom það fram að samtímaeftirlit-
skerfi eru mest notuð til að koma í veg fyrir villur t.d. ( gagna-
flutningum milli kerfa, samanburði á gögnum f mismunandi
kerfum eins og t.d. tímaskráningu og launum og svo saman-
burði á notkun kerfis og réttindum notenda. Ennfremur nota
fleiri fyrirtæki samtímaeftirlit til að vakta áætlun og rauntölur
t.d. fyrir innkaup eða bera saman raunverð frá birgjum við inn-
kaupasamninga.
Mat þessara fyrirtækja á virði hugbúnaðarins er fyrst of fremst
mældur í minnkun kostnaðar t.d. til villuleita og lausna, minnk-
un tekjuleka í t.d. reikningaferlum, minnkun sviksemisáhættu
og auknum gagnagæðum.
Samtímaeftirlit og endurskoðendur
Það leikur enginn vafi á því að sterkara innra eftirlit í fyrirtækj-
um hefur áhrif á störf endurskoðenda. Spurningin er þó, hvaða
áhrif þróun í samtímaeftirliti muni hafa fyrir endurskoðendur.
Fleiri nefndir, ráðgjafar og samtök út í heimi hafa spáð miklum
breytingum fyrir vinnu endurskoðenda og einnig fyrir starfs-
semi endurskoðunarfyrirtækja. Röksemdafærslan er oftast sú
að með samtímaeftirliti verður ekki lengur eins mikil þörf á að
fara yfir frumgögn, taka og prófa gagnaúrtök, prófa eftirlitsað-
gerðir og áhættumeta ferla þar sem eftirlit er haft með þessum
þáttum í rauntíma af fyrirtækinu sjálfu. Gögn um innra eftirlit,
niðurstöður og aðgerðir til úrbóta eru því aðgengilegar endur-
skoðendum hvenær sem er. Þannig að sterkara innra eftirlit og
samtímaeftirlit ætti að minnka tímanotkun ytri endurskoðenda
og þar með kostnað fyrirtækisins til endurskoðunar. Sum sam-
tök taka dýpra á árinni og kveða á um að ef endurskoðendur
fylgjast ekki með þessari þróun geti þeir átt á hættu að starfs-
grein þeira úreltist. Eða eins og í white paper frá AICPA frá
2012 sem segir:
"Auditing has ... not seemingly kept pace with the real-
time economy. Some auditing approaches and techniques
that were valuable in the past now appear outdated. Also,
the auditing evolution has reached a critical juncture whe-
reby auditors may either lead in promoting and adopting
the future audit or continue to adhere to the more traditio-
nal paradigm in some manner".
Þó svo svona „dómadagsspádómar" komi öðruhverju fram um
endurskoðendur þá getur þróun í upplýsingatækni oft breytt
markaðsaðstæðum með stuttum fyrirvara. Það er því full
ástæða til að skoða þetta betur og hvernig þessi þróun kemur
að íslenskum endurskoðendum.
Á haustráðstefnu FLE 2014 voru haldnar þrjár vinnustofur um
samtímaeftirlit með 90 þátttakendum.Tvær spurningar voru
lagðar fyrir fyrir þátttakendur. Annars vegar hvort þróun í sam-
tímaeftirliti myndi hafa neikvæð eða jákvæð áhrif á vinnu end-
urskoðenda og hins vegar hvort þróun í þessari tækni væri
tækifæri eða ógn fyrir endurskoðunarfyrirtæki. Svörin við
báðum spurningum voru skráð á kvarða frá -3 (mjög neikvæð
áhrif) til 0 (engin áhrif) til +3 (mjög jákvæð áhrif). Þar að auki
áttu hóparnir að styðja rökstyðja svör sín og skrá niður athuga-
semdir. Vinnuhóparnir skiluðu í alls 24 svarblöðum.
Hvaða áhrif mun samtímaeftirlit hafa á vinnu
endurskoðenda?
Svarið við fyrstu spurningunni var að meðaltali +2 þ.e.a.s. þátt-
takendur telja að samtímaeftirlit muni hafa jákvæð áhrif á vinnu
endurskoðenda. Margar athugasemdir og skoðanirfylgdu með,
sem flokka má gróflega í þrjá flokka.
1. Samtímaeftirlit mun einfalda störf endurskoðenda kerfis-
gögn verða réttari, sem leiðir til minni gagnaskoðunar,
minni úrtaksvinnu, minni staðfestingarvinnu og minni
villuleitar í endurskoðunarferlinu og þar með skapa meira
öryggi um niðurstöður endurskoðunar. Einnig munu
úttektir á innri eftirlitskerfum fyrirtækja verða einfaldari og
öruggari með tilkomu kerfistengdra eftirlitsferla.
2. Aukin notkun samtímaeftirlitskerfa mun á sama tíma
skapa þörf á nýjum verkefnum eins og t.d. áhættugrein-
ingum sem undanfara uppsetningar samtímaeftirlitskerfa,
eftirliti með og úttekt á uppsetningum á þessum kerfum,
sem og óháðu mati á aðgerðaferlum þegar kerfin flagga
villum eða lélegu eftirliti.
3. Endurskoðunarferli munu í sumum tilfellum breytast þar
sem samsetning endurskoðunarteyma mun breytast með
tilkomu nýrra þekkingarsviða. Þetta mun kalla á aukna
menntun og endurmenntun endurskoðenda í innra eftirliti
og í samtímaeftirliti.
Það virðist því vera samdóma álit þátttakenda að aukin tilkoma
samtímaeftirlitskerfa sé af hinu góða og muni einfalda vinnu
endurskoðenda, gera hana skilvirkari og skapa þörf á nýrri þjón-
ustu.
Er samtímaeftirlit tækifæri eða ógnun við fyrir
endurskoðunarfyrirtæki?
Þar sem spurning 1 og 2 eru nátengdar þá kemur ekki á óvart
að svör við spurningu 2 voru á svipaðan veg. Spurning 2 fékk
einnig meðaleinkunnina +2 þar sem þróun í samtímaeftirlits-
tækni er metið sem tækifæri fyrir endurskoðunarfyrirtæki.
Athyglisvert var þó að athugasemdir og rökstuðningur þátttak-
FLE blaðið janúar 2015 • 11