FLE blaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 35

FLE blaðið - 01.01.2015, Blaðsíða 35
Ef litið er til Svíþjóðar og borin saman sambærileg ákvæði um endurskoðun þar og á íslandi, þá var lögboðin endurskoðunar- skylda á öllum félögum í Svíþjóð fram til ársins 2011, þegar nú- verandi undanþáguákvæði var innleitt eftir talsverða umræðu. Svíar nota sömu viðmið og ESB, en viðmiðunargildin sem voru sett í lögin leiddu til þess að um 35% sænskra félaga féllu undir undanþáguákvæðið. Þar með töldu Svíar sig uppfylla markmið ESB um lækkun endurskoðunarkostnaðar með því að undan- skilja fyrst og fremst minni félög frá lögboðinni endurskoðun. Reynsla Svía hefur sýnt að þrátt fyrir að félög falli undir undan- þáguákvæðið hefur töluverður hluti þeirra valið að kjósa áfram endurskoðanda, en ástæða þess er talin vera sú ríka krafa lána- stofnana að krefjast áritunar endurskoðanda við útlán og er þá ekki spurt að stærð fyrirtækja. Erfitt er að færa rök fyrir þeim viðmiðunargildum fyrir undan- þágu endurskoðunar sem sett voru á íslandi árið 2006 og þeim breytingum sem gerðar voru árið 2013. Ekki er að finna rökfyrir setningu þessara undanþáguákvæða í lögum eða lögskýringar- gögnum. Athyglivert er að skoða áhrif undanþáguákvæðis um lögboðna endurskoðun í íslensku samfélagi. Samkvæmt upp- lýsingum frá Ríkisskattstjóra fyrir árið 2006 voru það 27.177 félög af 27.790 íslenskum félögum sem féllu undir undanþágu- ákvæðið.7 Þetta þýðir að tæplega 98% íslenskra félaga voru undanþegin lögboðinni endurskoðun árið 2006 og gátu starfað án alls eftirlits þ.e að óháður, til þess hæfur utanaðkomandi aðili hefði eftirlit með áreiðanleika ársreikninga. Ég leyfi mér að skrifa án alls eftirlits, ef litið er til að bæði hæfniskröfur og hlut- verk skoðunarmanna er mjög óljóst í lögum og því alls óvíst að skoðun þeirra auki áreiðanleika ársreikninga. Hafa ber í huga að á sama tíma gerðu íslenskir bankar takmarkaðar kröfur um áritaða ársreikninga, því er best verður séð. Eftir hrunið var lögð áhersla að nýta bæri þann lærdóm sem af því hlaust, með því að breyta viðskiptaháttum og auka eftir- lit. En áhugavert er að skoða til hvaða aðgerða var gripið til að mæta þessari réttmætu kröfu um aukið eftirlit. Þvert á það sem ætla mætti var árið 2013 enn slakað á kröfum um lögboðna end- urskoðun með því að breyta viðmiðunargildum til undanþágu, þannig að enn fleiri félög urðu undanþegin lögboðinni endur- skoðun. Það hrópandi misræmi sem hafði verið á lögbundnu eftirliti fyrirtækja á íslandi miðað við hin Norðurlöndin var enn aukið, viðmiðunargildi sem gerðu það að verkum að rúmlega 98% félaga á Islandi árið 2013 voru undanþegin endurskoðun. Það sem er þó einkar áhugavert er ályktun hóps sem var skip- aður af stjórn félags löggiltra endurskoðenda sem komst að þeirri niðurstöðu í lok árs 2013, eftir yfirlegu um endurskoð- unarskyldu á íslandi, að viðmiðunargildi undanþáguákvæðis væri of lágt og hækka þyrfti viðmiðunargildin enn frekar.8 Óljóst er hvort hópnum hafi verið kunnugt um að samkvæmt tölum frá Ríkisskattstjóra var aðeins tæp 2% fyrirtækja sem uppfyllti kröfur um lögboðna endurskoðun á þessum tíma. Hugsanlegt er að alþingismenn setji slík mörk, vegna þrýstings frá hags- munahópum, en erfitt er að sjá hvers vegna löggiltir endurskoð- endur komist að þessari niðurstöðu. Skýra þarf hvað liggur þar að baki, hvort það er almenn vantrú á eigin störfum eða að félög á íslandi þurfi ekkert eftirlit þar sem almennt séu hlutirnir í svo góðu lagi hjá íslenskum félögum. Heimsmet í kennitöluflakki og gjaldþrotum dregur þó hugmyndir um slíka sérstöðu í efa. Hvað varðar lánastofnanir á íslandi er erfitt að sjá að breytingar hafi orðið á venjum við lánveitingar. Ætla má að andlit og persónu- leg tengsl ráði enn miklu og skipti jafnvel meira máli, en vand- aður og áritaður ársreikningur óháðs löggilts endurskoðenda. Telja verður það ábyrgðarleysi hjá íslenskum stjórnvöldum að afnema endurskoðunarskyldu, einkum þar sem ekki er Ijóst hvort lánastofnanir setji áreiðanlegar upplýsingar um fjárhags- stöðu sem forsendu fyrir lánveitingu. Nú er í smíðum frumvarp sem leggja á fyrir næsta þing, en markmið þess er að uppfylla kröfur ESB um skýrsluskil fyrir- tækja og mér skilst að breytingar á undanþáguákvæði fyrir lög- boðna endurskoðun falli einnig þar undir. Við gerð þessa frum- varps sem lítur að undanþáguákvæðinu vil ég hvetja til þess að horft verði til hinna Norðurlandanna um viðmiðunargildi sem þau hafa sett sér vegna undanþáguákvæða fyrir lögboðina end- urskoðun. Einkum þarf að horfa til þess að þau viðmiðunargildi sem í gildi eru á íslandi veita nær öllum félögum undanþágu frá endurskoðun. Mikilvægt er að auka kröfur um lögboðna endur- skoðun á íslandi og hafa hana jafnvel enn strangari en gerist í löndunum í kringum okkur a.m.k. tímabundið. Þetta ætti að gera f Ijósi þess að ábyrg endurskoðunarhefð er mun veikari á íslandi en í nágrannalöndunum, að kröfur um lánveitingu lána- stofnana á íslandi byggjast almennt ekki á áreiðanlegum upp- lýsingum um fjárhagsstöðu fyrirtækja og ekki síst reynslu okkar af hruninu. Það hlýtur að vera mikið umhugsunarefni að þró- unin sé sú undanfarin ár, að gerðar séu enn minnkandi kröfur til eftirlits og endurskoðunar fyrirtækja sem þó var nánast ekkert fyrir. Byggja þarf l’sland framtíðarinnar á heilbrigðari viðskipta- háttum, en einn liður f því er að tryggja með sem bestum hætti áreiðanleika ársreikninga. í því verkefni hafa endurskoðendur mikilvægu hlutverki að gegna. Ómar Gunnar Ómarsson 7. Þar sem Ríkisskattstjóri náði ekki að taka fram tölur um starfsmannafjölda getur hlutfallið verið aðeins lægra, en á þó ekki til að breyta myndinni mikið. 8. http://www.fle.is/static/files/2014/ymislegt/fle-jan-2014-netid.pdf FLE blaðið janúar2015 • 33

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.