Ráðunautafundur - 12.02.1980, Page 18

Ráðunautafundur - 12.02.1980, Page 18
68 Þótt ekki væru til í Fljótsdal neinir stærri ræktaðir skógarreitir, þegar bændaskógræktin hófst þar, voru þó til á einstaka bæ smáreitir, sem nokkuð var hægt að læra af, og eins allmargir góðir trjágarðar, sem gáfu góða vxsbendingO. Loks eru í Fljótsdal allmiklar leyfar hinna fornu birkiskóga, og eru F1jótsdalsskógar með þeim fallegustu, sem nú eru á íslandi: Ranaskógur, Víðivalla- • skógur og Arnaldsstaðaskógur. 5.3 Stærð skógræktarinnar í Fljótsdal A árunum 1969-1972 var mest unnið að girðingum. Voru þá girtir tæplega 118 ha á 6 bæjum. Allar girðingarnar eru sameiginlegar fyrir 2 bæi hver þeirra. Plöntun hófst vorið 1970 í fyrstu girðinguna, sem þá var tilbúin. Eftir 1972 bættist engin girðing við, en nú eru 3 stórar í gerð og fleiri koma væntanlega í kjölfarið. Eftir 1972 hefir nær eingöngu verið plantað í þessar girð- ingar til ársins 1977, að aftur var farið að undirbúa nýjar girðingar. Alls hafa verið gróðursettar í Fljóts- dalsgirðingar 315 þús. plöntur. 5.4 Trjátegundir. Langsamlega mest hefir verið gróðursett af lerki, sem ættað er ýmist frá Rússlandi eða Vestur-Síberíu. Astæður eru þessar helstar: 1. Veðurskilyrði í Fljótsdal henta lerki eins vel og kosið verður hér á landi. 2. Landið er víða mjög rýrt harðvelli (Kobresia-Dryas), þar sem lerkið tekur mjög vel við sér, en allar aðrar trjátegundir þyrftu áburðargjöf með til hjálpar og dyrari plöntunaraðferðir. Hér var notast við ódýrustu plöntunaraðferð.

x

Ráðunautafundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.