Ráðunautafundur - 12.02.1980, Page 33
83
Samstarfsnefndin kaus úr sínum hópi 5 manna framkvæmda-
stjórn og er formaður hennar Snorri Sigurðsson framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Islands. Hulda Valtýsdóttir hefur verið ráðin
starfsmaður við undirbúning. Þá hafa nokkrar nefndir verið
skipaðar til að annast ákveðna þætti undirbúnings og framkvæmda
Svo sem:
- skipulag á plöntukaupum og plöntudreifingu,
- skipulagningu á gerð sjónvarpsefnis til kynningar á skógrækt
og fræðslu um trjárækt og skógrækt,
- kynningu og fræðslu í útvarpi og öðrum fjölmiðlum,
- gerð myndaflokka með fræðandi efni um skógrækt og trjárækt,
- gerð bæklinga um sama,
- gerð frímerkis í tilefni árs trésins,
og svo fjáröflunarnefnd.
Skógræktarfélag íslands ber eitt ábyrgð á öllum sameigin-
legum kostnaði sem verður að undirbúningi og framkvæmd „árs
trésins",en að sjálfsögðu er því um megn að veita beinan stuðn-
ing til þeirra aðila sem standa að einstökum þáttum framkvæmd-
arinnar.
Hugmyndin að því að efna til „árs trésins" undir ákveðnu
kjörorði er fengin erlendis frá því að í nágrannalöndum okkar
Bretlandi og á hinum Norðurl'öndunum hefur slíkt verið gert og
þá í flestum tilfellum í samvinnu opinberra aðila og áhuga-
samtaka. öþarft ætti að vera að benda á,að þyki þessum þjóðum
svo mikið um vert að fræða um gildi trjáræktar og skógræktar og
efla áhuga fólks á þessum efnum, ættum við ennþá fremur að hafa
til þess ríkar ástæður.
III. Markmið
Tilgangurinn með ári trésins, er að vinna að auknu gengi
trjáræktar og skógræktar á íslandi. Að þessu verður m.a. unnið
á eftirfarandi hátt:
1. Kynningu á árangri trjáræktar, skógræktar og skógverndar hér
á landi.