Ráðunautafundur - 12.02.1980, Blaðsíða 77
127
6. Upplýsingaþjónustu
7. Fjármögnun - útvegun fjármagns til rannsóknaverkefna
4. Hver eru viðhorfin á "markaðnum"?
Það er skoðun Rannsóknaráðs ríkisins að þær aðstæður, sem nú ríkja
i íslensku þjóðfélagi af völdum innlendra og erlendra aðstæðna, skapi
mikla nauðsyn á þvi að gerðar verði markvissar tilraunir til umbóta á
framleiðsluvörum og framleiðsluaðferðum landsmanna, svo og á lifsháttum
eða lífsskilyrðum þeirra (aðbúnaöur, umhverfi). Það er jafnframt líklegt
að skilningur fari vaxandi hér á landi fyrir nauðsyn "skynsamlegra bú-
skaparhátta", þ.e. að fráhvarf sé að verða frá hugsunarhætti veiðimanna-
þjóðfélags, sem að mörgu leyti hefur einkennt islenska atvinnuhætti fram
að þessu, og að vaxandi áhugi sé fyrir þvi að gera tilraun við markvissa
þjóðfélagsþróun.
í öðru lagi veldur aðlögun að alþjóðlegum viðskiptaaðstæðum og
þjóðfélagsviðhorfum því, að þjóðfélagið verður opnara fyrir hvers kyns
utanaökomandi áhrifum, að hraði breytinga fer vaxandi og slikum breyt-
ingum fylgja bæði auknar hættur og jafnframt aukin tækifæri. Þessar
hættur og tækifæri þarf að sjá fyrir, ef unnt er, og bregðast við þeim
eða hagnýta þau.
Flestir álita að íslendingar búi nú við nokkru lakari lifskjör en
nágrannaþjóðirnar og þvi verði um sinn áframhaldandi mikil áhersla á
aukna hagsæld, en hins vegar er líklegt að i framtiðinni verði meiri
áhersla lögð á lifsfyllingu eða farsæld, sem ekki endilega felur í sér
efnisleg gæði.
Þessar þjóðfélagsaðstæður hafa gagnger áhrif á viöfangsefni og
starfshætti Rannsóknaráðs og þann hljómgrunn sem starf þess getur fengið
með þjóðinni.
5. Tilgangur langtimaáætlunar
Eitt af veigamestu tækjum Rannsóknaráðs i starfi sinu er gerð