Ráðunautafundur - 12.02.1980, Page 86

Ráðunautafundur - 12.02.1980, Page 86
136 Ráðið kemur saman tvisvar á ári. Það "er tengiliður milli stofnunar- innar og hinna ýmsu greina landbúnaðarins. Það er forstjóra og stjórn til ráðuneytis og gerir tillögur um starfsáætlun stofnunarinnar. Ráðið er ólaunað". Á þessu sést að tilraunaráðið gegnir allt öðru hlutverki en "gömlu" tilraunaráðin, sem sjálf stóðu fyrir ýmis konar starfsemi. ðtgáfustarfsemi. Löngum hefur verið kvartað yfir því, að of lítið kæmi frá rannsókna- starfseminni. Litum nú nánar á útgáfustarfsemi, sem tengd hefur verið rannsóknastarfinu. Árið 1943 hóf Búnaðardeild Atvinnudeildar útgáfu tveggja ritraða undir samheitinu Rit Landbúnaðardeildar. Ritröðunum var skipt i tvo flokka, A- og B-flokk. 1 A-flokki birtust skýrslur og ritgerðir um þær rannsóknir og tilraunir, sem ekki var lokið, en í B-flokki voru lokaskýrslur ákveðinna rannsókna. Rit Landbúnaðardeildar komu út allt til þess tima að deildin var lögð niður (og reyndar dálitið lengur). Alls komu út 19 rit i hvorum flokki. Mörg þessara rita eru fyrir löngu uppseld en önnur er hægt að fá keypt á Keldnaholti. Auk þessara tveggja ritraða gaf Búnaðardeildin út 3 leiðbeiningarrit um plöntusjúkdóma og vamir gegn þeim. Enn fremur komu frá deildinni ýmis fjölrituð gögn, var það heldur óskipuleg útgáfa og erfitt að henda reiður á þvi sem út kom á þann hátt. Fljótlega eftir aó Rannsóknastofnunin var sett á laggirnar var skipuð nefnd til að huga að útgáfustarfseminni i framtiðinni. 'Mikil umræða fór fram um þessi mál og var að lokum ákveöið að hefja útcráfu visindatimarits og hlaut það nafnið islenskar landbúnaðarrannsóknir. Skyldu vera i ritinu visindalegar ritgerðir lom hinar ýmsu greinar landbúnaðar og skyid efni. Ritið hóf göngu sina árið 1969 og hefur komið út siðan, nú nýlega kom 11. árgangur. Út hafa komið eitt eða tvö hefti á ári alls 17 hefti. í ritinu hafa birst 93 ritgerðir. Ritstjóri íslenskra landbúnaöarrannsókna var fyrst dr. Sturla Friðriks- son 1969-1972, en siðan hefur Grétar Guðbergsson verið ritstjóri. Eftir þvi sem starfsemi Rannsóknastofnunarinnar jókst, óx jafnfram þörf- in fyrir annars konar útgáfustarfsemi, það er útgáfu bráðabirgðaniðurstaðna, áfangaskýrsla o.fl. Til að mæta þessari þörf hófum við útgáfu á Fjölritum RALA árið 1976. Alls hafa komið út 50-60 fjölrit á þessum tima. Ritstjóri fjölritanna er Tryggvi Gunnarsson. Ólokið er þá að geta einnar útgáfustarfsemi stofnunarinnar en það eru

x

Ráðunautafundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ráðunautafundur
https://timarit.is/publication/1260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.