Ráðunautafundur - 15.02.2001, Page 41
31
grunnvatn, ár og Iæki. Þetta gerist einkum þegar 1. tafla. Gæðastuðlar fyrir landbúnað, þeim
enginn gróður er á ökrunum til að taka næringarefnin er skipt ísex aðalflokka.
upp þegar þau losna í jarðveginum.
Við bruna á lífrænu eldsneyti losna ýmsar loft-
tegundir út í andrúmsloftið og geta valdið rnengun
eða stuðlað að gróðurhúsaáhrifum. Það er því æski-
legt aó lágmarka orkuþörf landbúnaðarins, einkum
notkun á lífrænu eldsneyti.
Þá geta varnarefni sem notuð eru gegn illgresi,
sjúkdómum eða meindýrum borist með vindi eða
vatni út fyrir þau svæði sem til er ætlast. Því þarf að
auka þekkingu okkar á lífsmynstri illgresis, meindýra
og sjúkdóma og verjast þeim eftir því sem það er
hægt án vamarefna. Eins þarf að stefna að því að
framleiða varnarefni sem eru umhverfinu eins skað-
lítil og mögulegt er.
Varóveisla auðlinda
Við búum yfír margskonar náttúrulegum auðlindum
sem við nýtum í landbúnaði. Það skiptir miklu að vel
sé með þær farið svo þær nýtist sem lengst. í þessum
hópi eru vatn, næringarefni, orka og erfðalindir. Hér
á landi höfum við svo mikið af vatni að ekki þarf að
takmarka notkun þess. Hins \'egar þurfum við eins og
aðrir að varðveita það gegn mengun.
Um 70-80% þeirra næringarefna sem eru í fóðri búíjár skila sér til baka í búíjáráburð-
inum. Til að koma næringarefnunum í hringrás er því mikilvægt að nýta búQáráburðinn vel. í
þéttbýli lendir mikið af næringarefnum í skólpi og getur það valdið vandræðum, t.d. þörunga-
blóma. Það væri því mikill sigur ef tækist að ná næringarefnunum úr skólpinu í formi salta og
senda þau aftur í áburðarverksmiðjurnar.
Þó svo að orkunotkun í landbúnaði sé ekki stór hluti al’ orkunotkun heimsins er sjálfsagt
að spara hana eftir því sem kostur er, einkum lífrænt eldsneyti.
í landbúnaði eru notaðar mun færri plöntutegundir en vaxa á villtu landi og oft eru notuð
einsleit yrki. Þess vegna þarf að gæta þess að varðveita náttúrulegan gróður, t.d. með friðun
ákveðinna svæða og með því að hafa óröskuð svæði inn á milli. Stöðugt er umiið að kyn-
bótum á nytjaplöntum og því mikilvægt að varðveita eldri yrki sem ekki eru notuð lengur.
Það verður best gert með því að varðveita þau í svokölluðum genbanka. Búfjárkyn þarf einnig
að varöveita, t.d. með hjálp genbanka.
Gœdi landbúnaðarafurða
Gæði afurðanna snerta ekki bara bændur heldur alla hiekkina frá bónda til neytanda. Hlutverk
bóndans er að tryggja að varan mengist ekki í framleiðslunni né skemmist á annan hátt á
rneðan hún er á búinu.
Asýnd sveitanna
Landbúnaður hefur mikil áhrif á ásýnd landsins. Þar sem landbúnaður er stundaður er landið
opnara (ekki skógi vaxið) en það ella væri. Tún, akrar og búpeningur setja og svip sinn á það,
sem og sveitabýlin sjálf og mannvirki sem þeim tengjast. Á ýmsan hátt getum við haft áhrif á
þessa heildarmynd. Annar þáttur í þessu er útlit sveitabæjanna. Flestir vilja hafa hreint og
Jarðvegur
Uppblástur og saltmyndun
Frjósemi
Þjöppun
Mengun
Önnur lífhvolf- andrúmsloft og grunnvatn
Notkun varnarefna
Tap næringarefna
Mengandi lofttegundir
Varðveisla auðlinda
Vatnsnotkun
Hringrás plöntunæringarefna
Orkunotkun
Erfðalindir
Gæði landbúnaðarafurða
Næringargildi
Mengun
Hreinlæti
Ásýnd sveitanna
Landslag
Sveitabæirnir
Siðfræði
Fólkið
Búsmalinn
Umhverfið