Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 36
Ég er búin að vera hér í tvö og hálft ár,“ segir Magnea. „Ég útskrifast frá Santa Monica College í júní úr námi sem heitir „communication media“ og þar læri ég um samskipti í víðum skilningi. Þetta er heilmikið nám og býður upp á mikla starfsmöguleika eftir útskrift, ég get til dæmis unnið við sjónvarp, útvarp, sem fasteignasali og fleira. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og gott nám sem hefur gert mikið fyrir mig sem einstakling.“ Bára útskrifaðist sem förðunar- fræðingur 2013 úr Airbrush and Make Up School. „Ég lærði „special effects,“ leikhús- og hrekkjavöku-förðun,“ segir Bára sem hefur áður verið í Séð og Heyrt í hinum ýmsu gervum. „Ég hef verið að farða fyrir Séð og Heyrt áður og ég er bæði með síðu á Instagram og á Youtube. Mig langar að vinna meira við förðun og „special effects“ og draumurinn er að komast í skóla í Hollywood og læra meira í tengslum við það. Ég er ekki búin að sækja um í neinum skóla, en er alltaf með þetta í kollinum.“ Alltaf draumur að búa í Los Angeles Magnea hefur alltaf átt þann draum að búa í Los Angeles og þegar hún stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti byrjaði hún að vinna í tísku- vöruversluninni Júník með skólanum. „Sara, eigandi Júník, hafði búið í Los Angeles, fór reglulega þangað til að kaupa inn fyrir búðina og var alltaf að tala um Los Angeles og það má segja að fleiri dyr hafi opnast til að fara hingað eftir að ég byrjaði að vinna fyrir hana. Það var fyrst og fremst út af Júník sem ég flutti til Los Angeles. Svo fór ég líka með Írisi, mömmu minni, hingað 2011 á fundi fyrir fyrirtækið hennar, Naglafegurð, sem ég fæ neglurnar mínar hjá og þá varð ég ástfangin af Los Angeles. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tísku og ég fann skóla, skráði mig í hann og kláraði allt ferlið, með vitund mömmu og pabba. Ég byrjaði á að velja Los Angeles og svo fór ég að skoða hvað mig langaði að læra þar.“ Skólinn hefur gert mikið fyrir Magneu og segir hún námið hafa hvort tveggja byggt upp sjálfstraustið og losað hana við feimnina, auk þess sem hún er mun betri í ensku. „Mér datt ekki í hug að námið myndi hjálpa mér svona mikið, ég er ekkert feimin lengur og sjálfstraustið hefur stóraukist, það er ekkert mál í dag að búa til eigin ræðu og flytja hana fyrir framan 30–40 manns. Ég er búin að læra mikið um samskipti við fólk og þetta er afskap- lega uppbyggjandi nám. Ég hef meiri skoðanir á hlutum í dag en áður og hef meira að segja um hluti og málefni. Mamma segir að ég hafi gjörbreyst að sumu leyti.“ Magnea hefur líka verið í myndatökum og tónlistarmyndbönd- um fyrir rappara. Draumastarfið er lýtalækningar Eftir útskriftina í vor þá ætlar Magnea að vinna í eitt ár og er enn þá að ákveða sig við hvað, því margt er í boði og áhugasviðin mörg. „Ég lifi bara í núinu og ætla að nota tækifærið og gera alls konar hluti meðan ég er hér og er ung. Síðan þegar ég er búin að ákveða hvert framtíðarstarfið verður þá ætla ég „all-in“ í það.“ Magnea segir að ef að hún þyrfti í dag að velja draumastarfið eftir eitt ár, þá væri það fasteignasala af því að hún hefur gaman af að selja og í hverf- um eins og Beverly Hills og flottari hverfum Los Angeles. „Ég á samt marga drauma, ég ætla að læra nýtt tungumál, læra á píanó og gítar, ég ætla að verða dj þannig að ég veit ekki hvað draumastarfið er, nema draumurinn um lýtalækninn er alltaf til en ég valdi kannski ekki rétta aðalfagið fyrir það, en er þó búin með ákveðna grunná- fanga, þannig að ég get farið í það nám þegar ég vil. En svo hef ég áhuga á tísku og langar að gera mína eigin fatalínu, ég er bara að reyna að koma með hug- mynd sem enginn annar er með. Mig langar að vinna við tísku og selja, mér finnst svo gaman að selja. Í sumar ætla ég að læra frönsku og mig langar líka að læra hebresku, bara svona til gamans. Hér tala allir spænsku, en franskan er svo falleg og mér finnst svo gaman að gömlum sögum frá öðrum heimsálfum og menningarheimum og þar kemur hebreskan inn.“ Draumastarf Báru er hins vegar að vinna við förðun. „Draumastarfið væri að farða fyrir myndir, það sem hefur heillað mig mest frá því ég var krakki eru Lord of the Rings-myndirnar og gervin sem þar eru. Ég hef alltaf haft áhuga á tísku og snyrtivörum, mamma var með au pair og ég man til dæmis eftir því þegar ég var þriggja ára að þá vorum við búnar að leika okkur aðeins og au pair-stelpan búin að mála mig og gera mig fína. Eftir þetta þá var ég alltaf að biðja um að fá að mála mig.“ Eins og áður sagði þá hefur Bára áður komið í Séð og Heyrt og þá oft í hrekkjavökugervi, enda er hún einstak- lega hrifin af hrekkjavökunni. „Um leið og hrekkjavakan er búin, þá er ég byrjuð að ákveða gervi fyrir næsta ár. Það er svolítið þannig að ég held upp á hrekkjavökuna, ekki jólin.“ Vinkonur í gegnum vinnuna Magnea var að vinna í Júník þegar Bára gekk þar inn og sótti um vinnu: „Þessi gullfallega stelpa kemur inn og ég spyr hana hvort að hún sé að sækja um vinnu.“ Daginn eftir var Bára mætt til vinnu og segir Magnea þær hafa smellpassað saman sem vinkonur og enn í dag eru þær bestu vinkonur, þrátt fyrir að búa hvor sínum megin á hnettinum. „Við eignuðust báðar góðar vinkonur í Júník þar sem við sem unnum, þar höfðum við allar áhuga á fötum og snyrtivörum og okkur langaði allar að gera eitthvað öðruvísi í lífinu, gera eitthvað stórt, stærra en var í boði hér heima.“ Bára staðfestir að þær hafi strax orðið mjög góðar vinkonur. Vinkonurnar Magnea Björg og Bára kynntust þegar þær unnu saman í tískuvöruverslun og urðu strax bestu vinkonur, enda hafa báðar mikinn áhuga á tísku og förðun. Þær ætla sér að læra og gera eitthvað skemmtilegt í lífi og starfi og nýta þau tækifæri sem þeim standa til boða, en Magnea útskrifast í sumar úr námi í Los Angeles í Kaliforníu, meðan Bára flýgur um heiminn í starfi sínu sem flugfreyja hjá WOW air. TexTi Ragna / myndiR bb Bestu vinkonur í gegnum tískuna FléTTuR það FloTTasTa Magnea fylgist vel með tískunni í Los Angeles og flétturnar eru eitt það heitasta þar núna. FeR vel um seppa Bára býr vel um hvuttann þegar hann er tekinn með út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.