Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir eldofninn.is Eldofninn, pizzeria • Bústaðavegi • sími 533 1313 • eldofninn.is Kaffit ími - ekta Íta lskt Eldofninn flytur in n eðal kaffi frá Ítal íu Harkaleg viðbrögð Póstsins við mistökum sumarstarfsmanna n 17 ára piltur rekinn eftir tvo daga vegna mistaka í útburði n Óttast slæmt umtal Þ etta er að mínu mati skammarleg framkoma gegn ungum pilti sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnu- markaði. Þetta var hans fyrsta alvöru vinna og það var gríðar- legt áfall fyrir hann að vera rekinn með þessum hætti. Að mínu mati er Pósturinn að láta afglöp annarra starfsmanna og slæmt umtal bitna á ungum starfsmönnum sem mega greinilega ekki stíga feilspor,“ segir Fjóla Halldórsdóttir, móðir sautján ára pilts sem var rekin frá Póstinum eftir tveggja daga starf. Forsaga málsins er sú að sonur Fjólu hafði starfað í tvo mánuði við póstútburð samhliða skóla og hafði gengið vel. „Hann vann þrjár vaktir í viku eftir skóla og líkaði það mjög vel. Pósturinn virtist líka ánægður með hann því hann var ráðinn samstund- is í fullt sumarstarf þegar hann falað- ist eftir því,“ segir Fjóla. Fyrsti vinnu- dagur sonar hennar var á fimmtudegi en á mánudagsmorgni fékk hann þau skilaboð að vegna mistaka í útburði á föstudeginum þá væri þjónustu hans ekki lengur óskað. Tíðar fréttir af bréfberum sem bregðast skyldum sínum Undanfarin misseri hafa verið tíð- ar fréttir af bréfberum Póstsins sem sinna ekki starfi sínu sem skyldi. Á dögunum þurfti eldri kona að banka upp á hjá bréfbera á Völlun- um í Hafnarfirði til þess að nálgast vegabréf- ið sitt sem hefði átt að berast til hennar rúmri viku fyrr. Þá var greint frá því í vikunni að bréf- beri á Seltjarnarnesi hefði orðið uppvís að því að bera ekki út allar þær sendingar sem hon- um bar. Bréfberanum var sagt upp störfum og Pósturinn sendi út afsök- unarbeiðni til íbúa. Málin hafa greini- lega valdið titringi innan Póstsins og gert að verk- um að engin þolinmæði er fyrir mistökum nýrra starfsmanna. Það er að minnsta kosti upplifun Fjólu og eiginmanns hennar eftir að hafa leitað eftir skýringum frá fyrir- tækinu. Pósturinn mætti ekki við slæmu umtali Fjóla segist hafa fengið þau svör frá Póstinum að áðurnefnt mál sem tengdist afglöpum póstburðar- manns á Völlunum í Hafnarfirði hefði reynst fyrirtækinu erfitt. „Skila- boðin voru þau að Pósturinn mætti ekki við slæmu umtali vegna mis- taka í póstburði,“ segir Fjóla. Þá hafi komið henni á óvart að starfsmaður- inn var með kolrangar upplýsingar um fyrri reynslu sonar hennar af póstburði. Fjóla var ekki sátt við þessar skýringar og leitaði til starfs- mannastjóra Íslandspósts. Hann tók undir þá skoðun hennar að framkoman gagnvart syni henn- ar hefði verið harkaleg. „Hann lof- aði að skoða málið en hafði svo samband degi síðar og sagði að dreifingarstöðin í Hafnarfirði réði þessu og hann myndi ekki aðhaf- ast meira í málinu,“ segir Fjóla. Að hennar sögn er sonur hennar niðurbrotinn eftir reynsluna og er nú án vinnu fyrir sumarið. „Engum starfsmanni er sagt upp eftir ein mistök“ „Ég get ekki tjáð mig um mál einstakra starfsmanna. Hins vegar ef við skoðum þessi mál almennt er ljóst að engum starfsmanni er sagt upp eftir ein mistök eða ótta við slæmt umtal. Það sem hefur áhrif er þegar gæði þjónustunnar er í hættu. Þegar ábendingar berast frá við- skiptavinum eru þær skoðaðar sér- staklega og ef gæði eru í hættu er gripið til sérstakra ráðstafana,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðu- maður markaðsdeildar Póstsins, í skriflegu svari til DV. Að hans sögn tekur Pósturinn allar ábendingar alvarlega og leggur mikla áherslu á að þeim sé fylgt eftir enda eru þær bestu vísbendingar þess að dreifing sé í ólagi. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Pósturinn Nokkur mál hafa komið upp á undanförnum mánuðum þar sem bréfberar Póstsins hafa brugðist skyldum sínum. Mynd ArnAldur HAlldorsson Fjóla Halldórsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.