Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 34
Reykjavík Warehouse og Eleven Australia héldu nýlega hársýn-ingu í Gamla bíói þar sem sýnt var allt það nýjasta sem er að gerast í hártískunni í klippingu, litum og greiðslum, fyrir konur og karla. „Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum sýningu af þessu tagi,“ segir Drífa Björk, sem er eigandi Reykjavík Warehouse, sem flytur inn áströlsku hárvörurnar frá Eleven. „Viðbrögð gesta eftir sýninguna eru þau að gestum fannst við hafa tekið hlutina upp á nýtt „level“. Gott teymi sem miðlar áfram „Við erum með öflugt og gott teymi sem heitir Reykjavík Warehouse Education Team og í því er samansafn af góðu fagfólki, fagfólki sem okkur finnst skera sig úr og við bjóðum þeim að vera með í teyminu,“ segir Drífa. „Við sendum síðan fulltrúa okkar, einn eða fleiri, út á land til að standa að vinnusmiðju og höldum hana þá fyrir nokkrar hárgreiðslustofur í einu. Við höfum þá jafnvel hvatt stofurnar til að vera með „erfið“ módel, einstaklinga sem eiga við einhver hárvandamál að etja eða þurfa á góðri meðferð að halda. Við höfum orðið vör við að margt fagfólk í grein- inni er ekki nógu duglegt að endur- mennta sig og jafnvel fast í einhverri tækni og erum því dugleg að sinna landsbyggðinni og höldum námskeið reglulega þar sem fulltrúi frá okkur kynnir háraliti, merki og kennir nýjustu tækni og klippingar. Einnig höfum við sent fulltrúa til útlanda á námskeið eða í vinnusmiðjur og síðan kemur hann heim og heldur námskeið og miðlar til okkar hinna. Að auki höfum við fengið erlenda gesti hingað til lands til að halda námskeið fyrir okkur.“ Fjöldi gesta frá Ástralíu Alls komu 11 gestir frá Ástralíu til að vera viðstaddir sýninguna og meðal þeirra voru heiðursgestirnir Joey Scandizzo og Andrew O'Tool stofn- endur og eigendur Eleven Austral- ia. Reykjavík Warehouse var fyrsti heildsalinn fyrir utan Ástralíu til að taka vörurnar í sölu og hafa þær verið til sölu hér á landi í tvö ár. „Þetta var stór og mikil sýning, 30 manns sem komu að henni og 30 módel, auk erlendu gestanna sem komu. Við stefnum á að hafa svona hársýningu árlega, en til að hún virki vel og skili árangri, þá verður fagfólk að mæta,“ segir Drífa. Eleven verður til Það var í nóvember 2011 sem fyrsta varan frá Eleven, Miracle Hair Treat- ment, kom á markað í Ástralíu, í henni er allt sem hárið þarf í einum brúsa: sólar-, hita- og rakavörn, þannig að hún er eins og „primer“ fyrir hárið. Síðan þá hefur merkið og vöruúrvalið stækkað hratt og fást vörurnar nú um allan heim og er merkið það hárvörumerki sem vex hraðast í heiminum. „Það er hvergi eins strangt gæðaeftirlit og í Ástralíu og Joey og Andrew eru báðir mjög virtir og þekktir,“ segir Drífa. „Einhvern tímann áttu þeir félagar spjall saman og Joey, sem rekur margar hárgreiðslustofur og er með 130 fagmenn í vinnu, sagðist vera orðinn leiður á því hvað merki væru flókin og of mikill tími færi í að útskýra fyrir viðskipta- vininum hvernig var- an virkar og kenna fagfólkinu að umgangast vöruna og nota.“ Þeir voru sammála um að á markaðinn vantaði vöru sem væri, einföld gæðavara, á góðu verði og sem virkaði. Þannig varð Eleven til. Og er varan þróuð og prófuð af fagfólki áður en hún fer á markað. Ragna Ánægð með viðtökurnar Hjónin Drífa Björk og Halli Logi eru eigendur Reykjavík Warehouse sem flytur inn vörur Eleven. Þau eru dugleg að halda námskeið og vinnu- smiðjur fyrir hárgreiðslustofur um land allt. Félagarnir Joey og andrew Joey var valinn hárgreiðslumeistari ársins þrjú ár í röð í Ástralíu. Á meðal viðskiptavina hans eru Beyoncé, Kardashian-systurnar, Mel Gibson, Selena Gomez og Ronaldo. Hann sér einnig um hárið í þáttunum Australia's Next Top Model. Andrew er frægasti tískuljósmyndari í heimi, var valinn ljósmyndari ársins í Ástralíu og hefur unnið fyrir flest þekktustu tísku- og hármerki í heimi. Félagarnir stoppuðu í viku á Íslandi, fóru hringinn í kringum landið og versluðu meðal annars í Cinta- mani. „Þetta eru góðir og auðmjúkir strákar,“ segir Drífa. Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir bauð á hársýningu: Hártíska sumarsins og Heiðursgestir frá ástralíu aðal­ maðurinn Peter Mcdonald er stærsti hluthafi Eleven og með mikla reynslu í bransanum. með taktinn Á hreinu Atli plötusnúður (DJ Atli) sá um góða tónlist á sýningunni. Þrír Fagmenn Á sviði Auður Haralds, eigandi Traffic, Jóhann Eymunds- son, sölustjóri Reykjavík Warehouse og Ambassador Eleven á Íslandi og hár- greiðslumaður á Reykjavík Hair, og Þobbi, eig- andi Reykjavík Hair, sýna hér upp á sviði. Þau eru öll hluti af teymi fagfólks hjá Reykjavík Warehouse.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.