Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 29
Grillað flatbrauð flott á Grillið oG Gott með hummus Gergrunnur: 3 g ger 4 g sykur 40 ml vatn volgt Aðferð: Öllu blandað saman og látið standa í 1 klst. úti á borði. Deig: 2 egg 100 ml. ólífuolía 460 g hveiti 171 g semolína 12 g salt 17 g sykur 230 ml. vatn 42°C Gergrunnurinn - aðferð: Blandið öllu saman og hnoðið vel. Látið standa í eina klukkustund. Skerið í litla bita sirka 80 g hver. Hitið grillið þar til það er vel heitt. Rúllið deigið út með smá hveiti. Penslið með olíu og grillið á hvorri hlið í 1 mínútu. Stráið Za'atar krydd- blöndunni yfir brauðið. Za'atar 20 g sesamfræ 18 g sumac 2 g óreganó 4 g sjávarsalt Aðferð: Ristið sesamfræin og blandið öllu saman. Hummus: 500 g laukur fínt saxaður 4 g cumin duft 3 g smoked paprika 2 g þurrkaður chili 1 g hvítur pipar 150 ml kjúklingasoð 100 g hvítlauksmauk 550 g eldaðar kjúklingabaunir 70 ml extra virgin ólífuolía 10 g tahini 30 g sítrónusafi Aðferð: Laukurinn er eldaður í potti með smá olíu. Kryddinu bætt út í ásamt kjúklingasoðinu. Allt sett í matvinnsluvél og unnið þar til silki- mjúk áferð hefur myndast. Kryddað til með salti og sítrónusafa. hvað er leiðinlegast að elda? „Ekkert, það er allt skemmtilegt sem ég elda.“ hvað er það skrítnasta sem þú hefur eldað/borðað? „Úff, erfitt að muna!“ ertu jafnvígur á matseld og bakstur? „Já, ég myndi segja það.“ sérð þú um eldamennskuna á þínu heimili og hvað eldar þú þá helst? „Það er mjög oft hent í burritos! Fljót- legt og hollt.“ hvað er í matinn á aðfangadag? „Hamborgarhryggur.“ hvað setur þú á pítsuna? „Pepperóní, piparost, beikon og rjómaost.“ hver eru verstu mistök sem þú hefur gert í eldhúsinu? „Hehehe, þau eru svo mörg! Ein algeng mistök: Á fyrstu viku minni sem nemi á Café Óperu var ég að gera sultu fyrir dessert í miklu magni og setti salt í stað sykurs. Sagði svo yfirkokkinum að uppskriftin væri nú eitthvað skrítin hjá honum.“ hver er stærsta áskorunin hingað til í starfinu? „Bocuse d'Or og opnunin á Sumac.“ sumac Grill + drinks Á Sumac grill + drinks er eldhúsið undir áhrifum frá Líbanon og Marokkó. Mikið er lagt upp úr því að nota íslenskt hráefni og besta krydd sem völ er á. Áhersla er lögð á hollan og góðan mat þar sem bragðið fær að njóta sín. Kokteilarnir verða með kryddi og ilm frá Suður-Afríku ásamt því að lögð verður áhersla á bjóða upp á vín frá þeim heimshluta. Sumac er súrt ber (steinávöxtur) sem er þurrkað, en berin koma af smátré sem heitir sumac. Sumac-kryddið er mikið notað í matreiðslu og drykki í löndum Mið-Austurlanda bæði í mat og drykkjum. Hönnuður Sumac er Hálfdán Pedersen, sem hannaði meðal annars Kex, Dill, Burro og Pablo discobar og mun staðurinn taka um 80 manns í sæti. Eigin staður Sumac er fyrsti staðurinn sem Þráinn Freyr er eigandi að, en hann hefur starfað á þeim allra helstu hér heima. Mynd: Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.