Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 55
menning 35Helgarblað 19.–22. maí 2017 Tók kvikmyndagerð fram yfir lögfræðina þeim. Ef það er eitthvað vesen þá berð þú ábyrgð á því. Mér fannst frábært og afslappaðra að fara inn í teymi þar sem maður deildi ábyrgðinni – þó að Baltasar hafi auðvitað verið aðalleikstjórinn.“ Óvenjuleg hrollvekja Ég man þig er fyrsta skáldsaga Yrsu Sigurðardóttur sem er færð á hvíta tjaldið en í bókinni sem kom upphaflega út árið 2010 er tvinn- að saman tveimur sögum. Önnur sagan segir frá lækni á Ísafirði sem dregst inn í rannsókn á sjálfsmorði eldri konu en það virðist á einhvern dularfullan hátt tengjast hvarfi sonar hans fyrir nokkrum árum. Hin sagan segir frá ungu fólki sem fer að gera upp hús á Hesteyri um miðjan vetur en fer fljótt að gruna að það séu eitt ein í eyðiþorpinu. „Ég las bókina mjög hratt þegar ég fékk hana senda og varð mjög spenntur en ég var samt ekki eins sannfærður og með Svartur á leik, því þótt ég hafi gaman af hryll- ingsmyndum eru það ekki uppá- haldsmyndirnar mínar. Það sem mér fannst hins vegar svo áhuga- vert var að bókin var algjörlega tví- skipt, tvær sögur með tvö ólík form. Þetta er eitthvað sem hentar kvik- myndaforminu almennt frekar illa en mér fannst svo mikil áskorun fólgin í því að láta þetta ganga upp. Sagan heillaði mig auðvitað líka og svo fannst mér spennandi að þetta yrði fyrsta myndin byggð á bók eft- ir Yrsu – það gæti líka hjálpað til við fjármögnunina,“ segir Óskar. „Þegar ég var í Hollywood var oft verið að bjóða mér hryllingsmyndir en handritin fannst mér bara yfirleitt svo léleg, klisjukennd og óspennandi – maður vill ekki fest- ast í að gera svoleiðis myndir svo ég hafði varann á. En þessi mynd fannst mér svo óvenjuleg. Önnur sagan er krimmi en hin er „horror“ og svo er heilmikið drama þarna. Það er þessi blanda sem er svo heill- andi. En svo er þetta líka drauga- saga sem við höfum mikla hefð fyrir á Íslandi, svo mér fannst það spennandi. Það er bara svo mikið mál að gera svona mynd að maður verður að vera með hjartað í því.“ Listin að hræða áhorfendur Það hlýtur að vera mikil kúnst að skapa ótta í bíógestum sem er nauðsynlegur í svona tryllum, hvernig fannst þér það ganga? „Fólk er náttúrulega ólíkt, sumir verða auðveldlega hrædd- ir og aðrir alls ekki. Þannig að það er mjög snúið að gera þetta vel. Í grínatriði er nokkuð augljóst að sjá hvort hlutir séu fyndnir, í kraft- mikilli ofbeldis senu er augljóst hvort áhættuatriðið hafi tekist vel eða ekki, en það sem maður held- ur að sé góður hryllingur getur auð- veldlega orðið hallærislegt. Auð- vitað verður maður sjálfur ekki hræddur á settinu en maður verð- ur að treysta því að atriðið sé gott ef maður fær örlitla tilfinningu fyrir því að það sé „creepy“ þegar maður er að skjóta það, ef hárin rísa ör- lítið. Yfirleitt reyndi ég svo að eiga nokkra ólíka möguleika varðandi hvert atriði, til dæmis hversu mik- ið sést í Bernódus þegar hann birt- ist í læknum, hvert hann horfir og svo framvegis. Það gefur manni fleiri möguleika í klippiherberginu. En þess vegna var svo frábært að sjá fullan sal af fólki horfa á myndina – að sjá fólk grípa í höndina á næstu manneskju í spennandi atriði.“ Það hlýtur svo að hafa verið ákveðið umhugsunaratriði hvort það ætti að sýna ógnvaldinn eins og þið gerið undir lok myndarinnar. Það er auðvitað smekksatriði hvort það sé gott en ég held að það geri að verkum að fólk fari léttara út – hryll- ingurinn er ekki lengur ósýnilegur heldur þekkt stærð og þar með auð- veldara að takast á við hann. „Já, ég held að mjög harðir horror- aðdáendur séu ekki sáttir við þetta. En endirinn styður við dramað í sögunni. En þótt það sé lokun þá er þetta líka skuggalegur endir að vissu leyti. En ég er ánægð- ur að heyra að þér finnist þetta svo- lítið „happy-ending“.“ Já, ég get ímyndað mér að þetta geri myndina fýsilegri fyrir al- menna bíógesti sem ekki eru mikið fyrir hrylling. „Já, þessi mynd er gerð fyrir al- menning. Ég vissi það alveg frá upphafi og ýmsar ákvarðanir í ferl- inu voru teknar með það í huga. Ég vil að hún höfði til ungs fólks en líka til ömmu þeirra og afa. Ég vil að þetta geti virkað sem inngang- ur fyrir fólk inn í þessa tegund bíó- mynda og mér heyrist það raunar vera að gerast – hópar af sauma- klúbbum eru að mæta saman á myndina en líka unga fólkið.“ Í tölvupóstsamskiptum við hulduhöfund Nýjasta verkefni Óskars er leik- stjórn sex þátta raðar um lög- fræðinginn Stellu Blómkvist með Heiðu Rún Sigurðardóttur í titil- hlutverkinu. Þættirnir sem koma allir í einu inn á Sjónvarp Símans í nóvember eru byggðir á vinsæl- um – en ekki jafn virtum – glæpa- sögum hulduhöfundarins Stellu Blómkvist. Bókmenntafræðingur- inn Óskar Þór er sem sagt enn einu sinni að laga íslenska spennusögu að kvikmyndaforminu. „Ég hef alltaf pælt mjög mikið í aðlögunum og eiginlega sérhæft mig í því, bæði í náminu og eftir það. Ég skrifaði meira segja BA- ritgerðina um aðlögun leikrita að bíómyndum. Margar af uppá- haldsmyndum mínum er aðlagan- ir. Mér finnst líka glóra í þessu því stóri stopparinn í kvikmyndagerð er alltaf fjármagnið, og það getur verið auðveldara við að eiga þegar þú ert með bók sem fólk kannast kannski við. En svo ertu líka með þennan brunn til að sækja í aftur og aftur, ef þú sem leikstjóri eða hand- ritshöfundur ert fastur ferð þú aftur í upphaflega verkið og sækir þar eitthvað nýtt.“ En hvað með Stellu Blómkvist, hefur þú verið í einhverju sambandi við þennan hulduhöfund persónu- lega – og veistu hver er á bak við nafnið? „Ég tók þá ákvörðun strax að ég vildi ekki vita hver hún væri. En ég hef fengið tölvupóst frá viðkom- andi. Hún las yfir handritið og kom með smá hugmyndir, það var mjög gaman,“ segir Óskar og hlær. n Svartur á leik Jóhannes Haukur Jóhannesson í hlutverki sínu í Svartur á leik. Myrkur og ógn Þrjú ungmenni lenda í hrakningum þegar þau ætla að gera upp gamalt hús í eyðiþorpinu Hesteyri í Jökul- fjörðum. „Þegar ég kláraði Versló var spurn- ingin hvort ég ætti að skrá mig í lög- fræði eins og pabbi og systkini mín eða hvort ég ætti að fara út í kvik- myndagerð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.