Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Qupperneq 55
menning 35Helgarblað 19.–22. maí 2017
Tók kvikmyndagerð fram yfir lögfræðina
þeim. Ef það er eitthvað vesen þá
berð þú ábyrgð á því. Mér fannst
frábært og afslappaðra að fara
inn í teymi þar sem maður deildi
ábyrgðinni – þó að Baltasar hafi
auðvitað verið aðalleikstjórinn.“
Óvenjuleg hrollvekja
Ég man þig er fyrsta skáldsaga
Yrsu Sigurðardóttur sem er færð á
hvíta tjaldið en í bókinni sem kom
upphaflega út árið 2010 er tvinn-
að saman tveimur sögum. Önnur
sagan segir frá lækni á Ísafirði sem
dregst inn í rannsókn á sjálfsmorði
eldri konu en það virðist á einhvern
dularfullan hátt tengjast hvarfi
sonar hans fyrir nokkrum árum.
Hin sagan segir frá ungu fólki sem
fer að gera upp hús á Hesteyri um
miðjan vetur en fer fljótt að gruna
að það séu eitt ein í eyðiþorpinu.
„Ég las bókina mjög hratt þegar
ég fékk hana senda og varð mjög
spenntur en ég var samt ekki eins
sannfærður og með Svartur á leik,
því þótt ég hafi gaman af hryll-
ingsmyndum eru það ekki uppá-
haldsmyndirnar mínar. Það sem
mér fannst hins vegar svo áhuga-
vert var að bókin var algjörlega tví-
skipt, tvær sögur með tvö ólík form.
Þetta er eitthvað sem hentar kvik-
myndaforminu almennt frekar illa
en mér fannst svo mikil áskorun
fólgin í því að láta þetta ganga upp.
Sagan heillaði mig auðvitað líka og
svo fannst mér spennandi að þetta
yrði fyrsta myndin byggð á bók eft-
ir Yrsu – það gæti líka hjálpað til við
fjármögnunina,“ segir Óskar.
„Þegar ég var í Hollywood var oft
verið að bjóða mér hryllingsmyndir
en handritin fannst mér bara
yfirleitt svo léleg, klisjukennd og
óspennandi – maður vill ekki fest-
ast í að gera svoleiðis myndir svo
ég hafði varann á. En þessi mynd
fannst mér svo óvenjuleg. Önnur
sagan er krimmi en hin er „horror“
og svo er heilmikið drama þarna.
Það er þessi blanda sem er svo heill-
andi. En svo er þetta líka drauga-
saga sem við höfum mikla hefð
fyrir á Íslandi, svo mér fannst það
spennandi. Það er bara svo mikið
mál að gera svona mynd að maður
verður að vera með hjartað í því.“
Listin að hræða áhorfendur
Það hlýtur að vera mikil kúnst
að skapa ótta í bíógestum sem
er nauðsynlegur í svona tryllum,
hvernig fannst þér það ganga?
„Fólk er náttúrulega ólíkt,
sumir verða auðveldlega hrædd-
ir og aðrir alls ekki. Þannig að það
er mjög snúið að gera þetta vel. Í
grínatriði er nokkuð augljóst að
sjá hvort hlutir séu fyndnir, í kraft-
mikilli ofbeldis senu er augljóst
hvort áhættuatriðið hafi tekist vel
eða ekki, en það sem maður held-
ur að sé góður hryllingur getur auð-
veldlega orðið hallærislegt. Auð-
vitað verður maður sjálfur ekki
hræddur á settinu en maður verð-
ur að treysta því að atriðið sé gott
ef maður fær örlitla tilfinningu fyrir
því að það sé „creepy“ þegar maður
er að skjóta það, ef hárin rísa ör-
lítið. Yfirleitt reyndi ég svo að eiga
nokkra ólíka möguleika varðandi
hvert atriði, til dæmis hversu mik-
ið sést í Bernódus þegar hann birt-
ist í læknum, hvert hann horfir og
svo framvegis. Það gefur manni
fleiri möguleika í klippiherberginu.
En þess vegna var svo frábært að sjá
fullan sal af fólki horfa á myndina –
að sjá fólk grípa í höndina á næstu
manneskju í spennandi atriði.“
Það hlýtur svo að hafa verið
ákveðið umhugsunaratriði hvort
það ætti að sýna ógnvaldinn eins
og þið gerið undir lok myndarinnar.
Það er auðvitað smekksatriði hvort
það sé gott en ég held að það geri að
verkum að fólk fari léttara út – hryll-
ingurinn er ekki lengur ósýnilegur
heldur þekkt stærð og þar með auð-
veldara að takast á við hann.
„Já, ég held að mjög harðir
horror- aðdáendur séu ekki sáttir
við þetta. En endirinn styður við
dramað í sögunni. En þótt það sé
lokun þá er þetta líka skuggalegur
endir að vissu leyti. En ég er ánægð-
ur að heyra að þér finnist þetta svo-
lítið „happy-ending“.“
Já, ég get ímyndað mér að þetta
geri myndina fýsilegri fyrir al-
menna bíógesti sem ekki eru mikið
fyrir hrylling.
„Já, þessi mynd er gerð fyrir al-
menning. Ég vissi það alveg frá
upphafi og ýmsar ákvarðanir í ferl-
inu voru teknar með það í huga. Ég
vil að hún höfði til ungs fólks en
líka til ömmu þeirra og afa. Ég vil
að þetta geti virkað sem inngang-
ur fyrir fólk inn í þessa tegund bíó-
mynda og mér heyrist það raunar
vera að gerast – hópar af sauma-
klúbbum eru að mæta saman á
myndina en líka unga fólkið.“
Í tölvupóstsamskiptum við
hulduhöfund
Nýjasta verkefni Óskars er leik-
stjórn sex þátta raðar um lög-
fræðinginn Stellu Blómkvist með
Heiðu Rún Sigurðardóttur í titil-
hlutverkinu. Þættirnir sem koma
allir í einu inn á Sjónvarp Símans
í nóvember eru byggðir á vinsæl-
um – en ekki jafn virtum – glæpa-
sögum hulduhöfundarins Stellu
Blómkvist. Bókmenntafræðingur-
inn Óskar Þór er sem sagt enn einu
sinni að laga íslenska spennusögu
að kvikmyndaforminu.
„Ég hef alltaf pælt mjög mikið
í aðlögunum og eiginlega sérhæft
mig í því, bæði í náminu og eftir
það. Ég skrifaði meira segja BA-
ritgerðina um aðlögun leikrita
að bíómyndum. Margar af uppá-
haldsmyndum mínum er aðlagan-
ir. Mér finnst líka glóra í þessu því
stóri stopparinn í kvikmyndagerð
er alltaf fjármagnið, og það getur
verið auðveldara við að eiga þegar
þú ert með bók sem fólk kannast
kannski við. En svo ertu líka með
þennan brunn til að sækja í aftur og
aftur, ef þú sem leikstjóri eða hand-
ritshöfundur ert fastur ferð þú aftur
í upphaflega verkið og sækir þar
eitthvað nýtt.“
En hvað með Stellu Blómkvist,
hefur þú verið í einhverju sambandi
við þennan hulduhöfund persónu-
lega – og veistu hver er á bak við
nafnið?
„Ég tók þá ákvörðun strax að ég
vildi ekki vita hver hún væri. En ég
hef fengið tölvupóst frá viðkom-
andi. Hún las yfir handritið og kom
með smá hugmyndir, það var mjög
gaman,“ segir Óskar og hlær. n
Svartur á leik Jóhannes Haukur Jóhannesson í hlutverki sínu í Svartur á leik.
Myrkur og ógn
Þrjú ungmenni
lenda í hrakningum
þegar þau ætla að
gera upp gamalt
hús í eyðiþorpinu
Hesteyri í Jökul-
fjörðum.
„Þegar ég
kláraði
Versló var spurn-
ingin hvort ég ætti
að skrá mig í lög-
fræði eins og pabbi
og systkini mín
eða hvort ég ætti
að fara út í kvik-
myndagerð