Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 28
Af hverju að læra matreiðslu?
„Ég byrjaði að vaska upp á sumar
hóteli og fannst hasarinn og pressan í
eldhúsinu heillandi og fékk útrás fyrir
ofvirknina.“
Hvar lærðir þú og hvenær
útskrifaðist þú?
„Ég lærði á Café Óperu og Grillinu
Hótel Sögu 2006.“
Fyrsta starfið, hvort sem það var
tengt matreiðslu eða öðru?
„Fjórtán ára, þá tók ég nokkrar vaktir
sem uppvaskari á sumarhótelinu hjá
pabba.“
Veitingastaðir sem þú hefur starfað
á áður?
„Ég er búinn að matreiða á Grillinu
Hótel Sögu, Domaine de Claire
fontaine, Kolabrautinni í Hörpu og
LAVA Bláa Lóninu.“
Hefur þú keppt og unnið til verðlauna
í faginu?
„Já, ég var valinn matreiðslumaður
ársins 2007, vann One Worldmat
reiðslukeppnina 2008, varð í 2. sæti
í Matreiðslumaður Norðurlanda
2009 og 7. sæti í Bocuse d'Orheims
meistarakeppni einstaklinga 2011.“
Hefur þú starfað erlendis við fagið?
„Já, ég var að vinna hjá Domaine de
Clairefontaine í Frakklandi. Svo hef
ég farið og unnið frítt til að sjá og
læra nýja hluti á Pied à Terre, Murano
og Sketch (The Lecture Room &
Library) sem öll eru í London, Alinea
í Chicago, Matsalen í Stokkhólmi og
Joia í Trieste á Ítalíu.“
Hvað var það fyrsta sem þú lærðir
að elda?
„Fyrsta uppskriftin í nemabókinni
minni er Cumberlandsósa.“
Hvað er skemmtilegast að elda?
„Skarkola.“
HVAð
skiptir
máli í
líFinu?
Hefurðu einhvern tímann velt
fyrir þér hvað það er sem skiptir
þig mestu máli í lífinu? Jú, öll
vitum við að það þarf að uppfylla
grunnþarfirnar, borða, sofa og hitt
þið vitið. Svo þarf maður að eiga
peninga til að eiga í sig og á, koma
frá þessum eilífa gluggapósti sem
aldrei virðist týnast, allavega ekki
í mínu póstnúmeri og allt hitt sem
maður þarfnast, vantar og langar í.
En þetta eru eingöngu veraldlegu
hlutirnir sem stundum mætti vera
mun minna framboð af, allavega
fyrir konur sem hrifnar eru af
fallegu dóti og með eilífan valkvíða
varðandi það sem þær langar í.
En þegar upp er staðið þá eru
það frekar „hlutirnir“ sem kosta
ekkert sem skipta mestu máli, litlu
hlutirnir sem sumum okkar finnst
svo sjálfsagðir að við sjáum þá
ekki, litlu hlutirnir sem sumir eiga
svo auðvelt með að gera og gefa og
aðrir ekki.
Hlutir eins og að líta alltaf á
björtu hliðarnar, sama hversu
dökkt er yfir, hlutir eins og hrós,
hvatning, bros og faðmlag, hlutir
sem kosta okkur ekkert, en gefa
þeim sem þiggur svo heilmikið og
okkur þá oftast til baka. Slíkir hlut
ir eru alltaf punkturinn yfir iið,
eins og rjómi eða ís með súkkulað
ikökunni, eitthvað sem gefur góð
um degi eitthvað extra, þannig að
maður leggur höfuðið á koddann á
kvöldin, með sátt í hjarta og huga,
og vaknar svo sáttur til að takast á
við nýjan dag og síðan koll af kolli.
Fyrir mig eru slíkir hlutir til
dæmis góð heilsa að öllu leyti fyrir
mig og einkasoninn, hversu miklar
perlur ég á sem vini og góða fólkið
sem ég þekki og vill þekkja mig,
veraldlegar eigur eru bara plús og
skipta engu í sögulok, við munum
öll hvíla á sama stað. Það eru
litlu hlutirnir sem lifa, ekki þeir
veraldlegu.
Setjum smá Birtu í hversdaginn,
setjum smá birtu í líf okkar allra.
Bestu kveðjur, Ragna
ragna@dv.is
Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumaður og fyrrverandi liðsmaður og þjálfari íslenska
kokkalandsliðsins, opnar innan skamms eigin veitingastað, Sumac grill + drinks, sem
hann er einn eigandi að, að Laugavegi 28 í Reykjavík. Þráinn ákvað að gera mat-
reiðsluna að ævistarfi eftir að hafa heillast af hasarnum og pressunni í eldhúsinu. Hann
hefur starfað við fagið og unnið til fjölda verðlauna bæði hér heima og erlendis.
TexTi: Ragna / MyndiR: SigTRygguR aRi
Nafn:
Þráinn Freyr
Vigfússon mat-
reiðslumaður og
eigandi Sumac.is.
Aldur:
35 ára.
Morgunhani
eða nátthrafn:
Nátthrafn sem
er að verða
morgunhani.
Heimasíða:
sumac.is.
Sumac
StærSta
áSkorunin
hingað til