Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir
Nauðsynlegt að uppfæra
áhættumat almannavarna
n Fjölgun ferðamanna riðlar öllu n Um nokkuð huglægt mat að ræða
Þ
örf er á að uppfæra og endur
meta áhættumat almanna
varna fyrir landið allt. Sú
áhættuskoðun sem lögð er til
grundvallar nú er frá árinu 2011 en
það er mat almannavarnardeildar
Ríkislögreglustjóra að nauðsynlegt
sé að hefja yfirferð á því plaggi sem
unnið er eftir í dag. Meðal annars
valdi gríðarleg fjölgun ferðamanna
því að sumir þættir séu ekki rétt
metnir.
Málefni almannavarna eru á
hendi Ríkislögreglustjóra, sem sér
um samhæfingu og framkvæmd
aðgerða, á landsvísu og á alþjóða
vettvangi. Undir almannavarna
deild embættisins heyrir samhæf
ingarstöð almannavarna sem er til
taks við aðgerðastjórnun í héraði,
sem er á höndum lögreglustjóra í
hverju lögregluumdæmi. Lögreglu
stjóri situr einnig í almannavarnar
nefndum sem hverju sveitarfé
lagi er skylt að skipa en þess ber
þó að geta að mörg sveitarfélög
hafa sameinast um slíkar nefndir.
Í landinu er starfandi 21 almanna
varnarnefnd og er þeim ætlað að
kanna áfallaþol, vinna gerð hættu
mats og viðbragðsáætlana í héraði
í samvinnu við Ríkislögreglustjóra.
Áratugur síðan vinna hófst
Vinna við þá áhættuskoðun sem nú
er stuðst við hófst árið 2007 og var
að mestu framkvæmd á árunum
2008 til 2011 og tekur hún til þeirra
lögregluumdæma sem þá voru í
gildi. Um umfangsmikla vinnu var
að ræða þar eð ekki hafði áður verið
ráðist í slíka gagnaöflun og saman
tekt í heild. Lagt er mat á náttúruvá,
ógnir sem gætu steðjað að umhverfi
og heilsu manna og áhættuþætti
sem ógnað gætu innviðum og
nauðsynlegri starfsemi samfélags
ins. Í skýrslunni, sem gefin var út
árið 2011, segir í kafla um almanna
varnir og viðbúnað á landsvísu að
breytingar og hröð þróun í samfé
laginu síðustu misseri kalli á frekari
stefnumótun í viðbúnaði almanna
varnarkerfisins.
Myndi raðast öðruvísi í dag
Lítið hefur hins vegar orðið úr því
síðan skýrslan kom út. Rögnvaldur
Ólafsson, verkefnastjóri hjá al
mannavarnadeild Ríkislögreglu
stjóra, segir að nauðsynlegt sé að
ráðast í endurmat á næstunni. Lík
lega verði það gert á næstu mánuð
um.
„Það hefur verið til umræðu
að nauðsynlegt sé að uppfæra
skýrsluna. Þó að fremur stutt sé
síðan hún kom út, aðeins sex ár,
og maður skyldi ætla að hlutir eins
og náttúruvá taki ekki miklum
breytingum á þeim tíma, þá er samt
tilfellið að við vitum að sum atriði
sem voru metin þarna myndu rað
ast í aðra áhættuflokka nú. Matið í
skýrslunni er að sumu leyti nokk
uð huglægt. Þannig má nefna að í
mörgum umdæmum var lagt mat
á rafmagnsleysi með þeim hætti
að það var flokkað í grænan flokk,
það er að segja menn höfðu ekki
af því áhyggjur. Hið sama má segja
um rof á samgöngum, ofsaveður og
ófærð, það olli fólki í umdæmun
um ekki áhyggjum. En tilfellið er að
í áratug, frá aldamótum og til svona
2010, urðu ekki vond vetrarveður
svo neinu næmi. Eftir að skýrslan
kom út hafa hins vegar komið vond
veður, ófærð og rafmagnsleysi, svo
líklega myndu menn raða þessum
þáttum ofar í áhættumati í dag,“
segir Rögnvaldur og bætir því við að
hið sama megi segja um eldgos og
hættu af öskufalli. Margir hafi talið
að þeir væru ekki á áhrifasvæði
slíkra gosa en eldgos í Eyjafjallajökli
og einkum í Grímsvötnum hafi fært
fólki heim sanninn um að svo væri.
Fjöldinn snertir alla þætti
Þá hefur gríðarleg fjölgun ferða
manna valdið því að þörf er á að
uppfæra ýmsa þætti í áhættu
matinu. Rögnvaldur bendir til að
mynda á að komum skemmtiferða
skipa hafi snarfjölgað og verði slys
á sjó þurfi viðbragðskerfi almanna
varna að takast á við afleiðingarnar.
Þá sé mikil fjölgun ferðafólks á
stöðum eins og Hornströndum
áhyggjuefni almannavarnaraðila á
Vestfjörðum, þar eð engir innviðir
eru til staðar á svæðinu og erfitt að
komast að verði slys. „Þessi aukni
fjöldi ferðamanna eykur álag á allt,
bæði vegakerfi, löggæslu, heil
brigðiskerfið og björgunarsveit
ir. Það hefur bein áhrif á innviðina
og snertir í raun á flestum þáttum
sem voru metnir í skýrslunni. Auk
inn mannfjöldi hefur áhrif á flestum
sviðum.“ n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Frá slysaæfingu í
Hvalfjarðargöngum
Nauðsynlegt er að uppfæra
áhættumat almannavarna,
meðal annars vegna mikillar
fjölgunar ferðamanna.
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook