Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 26
Helgarblað 19.–22. maí 2017KYNNINGARBLAÐ4 Skólar og Sumarnámskeið Sundfélag Hafnarfjarðar – sh@sh.is – Sími 555 6830 Sumarsund fyrir börn 4-10 ára Sundfélag Hafnarfjarðar verður með sundnámskeið fyrir börn, bæði synd og ósynd í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug, Sundhöllinni og Lækjarskólalaug. Tímabil í boði: 12. júní - 23. júní 26. júní - 7. júlí 10. júlí - 21. júlí 24. júlí - 4. ágúst Námskeiðin standa yfir í tvær vikur, eða 10 skipti Bráðskemmtilegt námskeið sem allir hafa gaman af! Nánari upplýsingar og innritun má finna á www.sh.is Byltingarkenndur grunnskóli Einstaklingsmiðað nám hjá NÚ fyrir heilbrigðar sálir í hraustum líkama NÚ er byltingarkenndur grunn-skóli fyrir alla nemendur í 8.–10. bekk sem hafa einlægan áhuga á íþróttum og stunda þær sér til gagns og gamans, óháð getu. Hjá NÚ er sérstök áhersla lögð á íþróttir, hreyfingu og heilsu nemandans, þar sem honum er haldið líkamlega virkum gegnum skóladaginn og kyrr- seta takmörkuð með ýmsum leiðum. Í NÚ er í notkun kerfi sem kallast vendinám og greinir skólann enn fremur frá hefðbundnum grunn- skólum. Kennt er sömuleiðis í þriggja vikna lotum þar sem 2–3 námsfög eru tekin fyrir. Skólinn er viðurkennd- ur af Menntamálastofnun, starfar samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla og lýtur lögum og reglugerðum um íslenska grunnskóla. Sjálfstæðir og heilbrigðir nemendur Námið í NÚ er sérstaklega hannað til þess að koma til móts við þarfir nemenda sem stunda íþróttir af miklum móð. Allir dagar í NÚ hefjast í dagsbirtu með svokallaðri NÚveru, þar sem nemendur og starfsmenn horfa inn á við, læra öndun, fara yfir markmið/gildi og gera léttar og uppbyggjandi líkamsæfingar. Þá er nemendum kennt að setja sér markmið og fylgja þeim eftir, sem er eitthvað sem getur reynst íþróttamönnum og öðru afreksfólki afar dýrmætt. Námið er einstak- lingsmiðað og persónubundið og hentar nemandanum fyrst og fremst. Þá er stefna NÚ að efla sjálfræði nemenda og sjálfstæði í vinnubrögðum. Nemendur bera þá aukna ábyrgð á eigin námi og er námsumhverfi nemenda að stærstum hluta rafrænt. Hvað er vendinám? Um er að ræða afar nútímalega kennsluhætti þar sem vendinám einblínir fyrst og fremst á einstak- lingsbundnar þarfir nemandans. Vendinám fer þannig fram að nemandi les eða horfir á kennsluefni frá kennara á netinu, þegar honum hentar og eins oft og hann vill, til að öðlast skilning efninu. Í skólastofunni fer svo fram úrvinnsla námsefnisins. Kröfur eru gerðar til nemanda um að vera lausnamiðaður, starfa í hóp- um og vinna raunverkefni. Það eru allir með í NÚ Félagslífið í NÚ er að sama skapi fjölbreytt og skemmtilegt. Árlegar uppákomur eru m.a. óvissuferð að hausti, vorferð, þorrablót, spurningakeppni grunnskólanna, skólahreysti og árshátíðin. Auk þess eru ýmsar aðrar skemmtanir yfir skólaárið. NÚ hefur jafnframt þá stefnu að taka þátt í öllum félagslegum viðburðum og keppn- um sem í boði eru hverju sinni og allir nemendur, sem gefa kost á sér til að starfa í félagsmálum, fá tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum. NÚ er til húsa að Flatahrauni 3, 220 Hafnarfirði. E-mail: info@ framsynmenntun.is. Sími: 695- 5415. Opið fyrir umsóknir til 30. júní. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu NÚ: framsyn- menntun.is og á Facebook-síð- unni: NÚ - Framsýn menntun á grunnskólastigi. Flottir kennarar Kristján Ómar, Sigríður og Gísli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.