Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 26
Helgarblað 19.–22. maí 2017KYNNINGARBLAÐ4 Skólar og Sumarnámskeið
Sundfélag Hafnarfjarðar – sh@sh.is – Sími 555 6830
Sumarsund
fyrir börn 4-10 ára
Sundfélag Hafnarfjarðar verður með
sundnámskeið fyrir börn, bæði synd og
ósynd í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug,
Sundhöllinni og Lækjarskólalaug.
Tímabil í boði:
12. júní - 23. júní
26. júní - 7. júlí
10. júlí - 21. júlí
24. júlí - 4. ágúst
Námskeiðin standa yfir
í tvær vikur, eða 10 skipti
Bráðskemmtilegt námskeið
sem allir hafa gaman af!
Nánari upplýsingar og innritun má finna á www.sh.is
Byltingarkenndur grunnskóli
Einstaklingsmiðað nám hjá NÚ fyrir heilbrigðar sálir í hraustum líkama
NÚ er byltingarkenndur grunn-skóli fyrir alla nemendur í 8.–10. bekk sem hafa einlægan
áhuga á íþróttum og stunda þær sér
til gagns og gamans, óháð getu. Hjá
NÚ er sérstök áhersla lögð á íþróttir,
hreyfingu og heilsu nemandans,
þar sem honum er haldið líkamlega
virkum gegnum skóladaginn og kyrr-
seta takmörkuð með ýmsum leiðum.
Í NÚ er í notkun kerfi sem kallast
vendinám og greinir skólann enn
fremur frá hefðbundnum grunn-
skólum. Kennt er sömuleiðis í þriggja
vikna lotum þar sem 2–3 námsfög
eru tekin fyrir. Skólinn er viðurkennd-
ur af Menntamálastofnun, starfar
samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla
og lýtur lögum og reglugerðum um
íslenska grunnskóla.
Sjálfstæðir og heilbrigðir
nemendur
Námið í NÚ er sérstaklega hannað
til þess að koma til móts við þarfir
nemenda sem stunda íþróttir af
miklum móð. Allir dagar í NÚ hefjast
í dagsbirtu með svokallaðri NÚveru,
þar sem nemendur og starfsmenn
horfa inn á við, læra öndun, fara
yfir markmið/gildi og gera léttar
og uppbyggjandi líkamsæfingar.
Þá er nemendum kennt að setja
sér markmið og fylgja þeim eftir,
sem er eitthvað sem getur reynst
íþróttamönnum og öðru afreksfólki
afar dýrmætt. Námið er einstak-
lingsmiðað og persónubundið
og hentar nemandanum fyrst og
fremst. Þá er stefna NÚ að efla
sjálfræði nemenda og sjálfstæði
í vinnubrögðum. Nemendur bera
þá aukna ábyrgð á eigin námi og
er námsumhverfi nemenda að
stærstum hluta rafrænt.
Hvað er vendinám?
Um er að ræða afar nútímalega
kennsluhætti þar sem vendinám
einblínir fyrst og fremst á einstak-
lingsbundnar þarfir nemandans.
Vendinám fer þannig fram að
nemandi les eða horfir á kennsluefni
frá kennara á netinu, þegar honum
hentar og eins oft og hann vill, til að
öðlast skilning efninu. Í skólastofunni
fer svo fram úrvinnsla námsefnisins.
Kröfur eru gerðar til nemanda um
að vera lausnamiðaður, starfa í hóp-
um og vinna raunverkefni.
Það eru allir með í NÚ
Félagslífið í NÚ er að sama skapi
fjölbreytt og skemmtilegt. Árlegar
uppákomur eru m.a. óvissuferð
að hausti, vorferð, þorrablót,
spurningakeppni grunnskólanna,
skólahreysti og árshátíðin. Auk
þess eru ýmsar aðrar skemmtanir
yfir skólaárið. NÚ hefur jafnframt
þá stefnu að taka þátt í öllum
félagslegum viðburðum og keppn-
um sem í boði eru hverju sinni og
allir nemendur, sem gefa kost á
sér til að starfa í félagsmálum, fá
tækifæri til þess að leggja sitt af
mörkum.
NÚ er til húsa að Flatahrauni
3, 220 Hafnarfirði. E-mail: info@
framsynmenntun.is. Sími: 695-
5415. Opið fyrir umsóknir til 30.
júní. Nánari upplýsingar má
nálgast á vefsíðu NÚ: framsyn-
menntun.is og á Facebook-síð-
unni: NÚ - Framsýn menntun á
grunnskólastigi.
Flottir kennarar Kristján Ómar, Sigríður og Gísli.