Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 64
Helgarblað 19.–22. maí 2017
36. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hver
röndóttur!
Logi hinn nýi Ali
n Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, hefur ávallt
vakið athygli fyrir klæðaburð og
þá einna helst þverröndóttu bol-
ina sem hann klæðist reglulega.
Bolirnir eru orðnir einkennis-
merki þingmannsins sem flestir
hafa nú bara gaman af. En þó eru
ekki allir jafnhrifnir af klæða-
burðinum.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri og samflokksmaður Loga,
segir á Twitter að á Útvarpi Sögu
sé Logi víst uppnefndur „randa-
flugan“ vegna þessa.
„Sætt. Ekki ónýtt að vera líkt
við Múhameð Ali,“ skrifar Dagur
og birtir mynd af þeim
Loga og Ali heitnum
með einni af frægustu
tilvitnunum þess
síðastnefnda. „Float
like a butterfly,
sting like
a bee.“
„Skal éta sokkinn
í rólegheitum“
n Sparkspekingurinn Hjörvar
Hafliðason skaut föstum skot-
um að Garðari Gunnlaugssyni,
framherja Skagamanna, í Pepsi-
mörkunum á mánudagskvöld.
Hjörvar lét að því liggja að Garð-
ar legði ekki nægjanlega mikið
á sig í leikjum Skagaliðsins og
hlypi ekki nógu mikið. Garðar
svaraði þessari gagnrýni í bikar-
leik gegn Fram á miðvikudag
þar sem kappinn skoraði þrjú
mörk, þar á meðal sigurmark
Skagamanna í uppbótatíma í
mögnuðum 4-3 sigri.
Garðar sagði á Twitter eftir
leik, og beindi orðum sínum til
Hjörvars: „Menn vilja meina að
ég sé með mark fyrir hverja 15
metra sem ég hleyp.“ Hjörvar
svaraði að bragði: „Vel gert! Skal
éta sokkinn í rólegheit-
um.“ Garðar þakk-
aði Hjörvari svo
fyrir gagnrýnina
og sagðist hafa
svarað henni þar
sem á að svara –
inni á vellinum.
Helgi sagðist vera
frá Domino's
n Sjónvarpsmaðurinn Helgi
Seljan brá á leik á miðvikudag
þegar Ólafur Ólafsson fjárfestir
mætti á fund stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar Alþingis. Þar
sem fundurinn var ekki sendur
út í beinni útsendingu var
þröngt á þingi og aðstaðan fyrir
fjölmiðlafólk fljót að fyllast.
Helgi kom með seinni skip-
unum og hringdi bjöllu til að
freista þess að komast inn. Þegar
kona svaraði í dyrasímann sagði
Helgi: „Ég er að koma með pítsu
frá Domino's.“ Konunni var ekki
hlátur í huga, sagði að fullt
væri út úr dyrum og
skellti á.
Helgi dó ekki
ráðalaus heldur gekk
inn stuttu síðar með
Kristjáni Þór Júlíus-
syni, mennta- og
menningar-
málaráð-
herra.
V
ið gerðum þetta í fyrra þegar
Hugleikur átti afmæli og það
heppnaðist mjög vel. Við upp-
götvuðum eitthvað sadó-masó
í okkur og töluðum um að gera þetta
aftur. Svo uppgötvaði ég að ég á þrí-
tugsafmæli núna svo við slógum til,“
segir uppistandarinn Bylgja Babýlons
sem á ekki von á góðu á skemmti-
staðnum Húrra á laugardagskvöld
þar sem einvala grínistar og uppi-
standarar munu keppast við að grilla
hver annan með gríni.
Um er að ræða svokallað „roast“
að erlendri fyrirmynd þar sem frægir
grínistar koma saman og bókstaflega
grilla hver annan, segja brandara
á kostnað hver annars og þá einna
helst heiðursgestsins hverju sinni.
Það verður hlutskipti Bylgju að bera
mestan þungann að þessu sinni.
„Það verður líklega mest níðst á
mér,“ segir Bylgja sem kvíðir þó engu
og lofar taumlausri skemmtun fyrir
áhorfendur, þótt þeir grínistar sem
þræddir verða upp á grillteininn á
Húrra gætu átt von á neðanbeltis-
höggum.
„Við þekkjumst misvel en við sem
þekkjumst gætum farið meira út í
eitthvað persónulegra. Dregið ein-
hverjar beinagrindur úr skápnum,“
segir Bylgja en auk hennar verða
Hugleikur Dagsson, Jonathan Duffy,
Saga Garðarsdóttir, Þorsteinn Guð-
mundsson, Þórdís Nadia Semichat,
Jóhannes Ingi Torfason og Kamilla
Einarsdóttir í grillveislunni.
Aðgangur er ókeypis og hefst Þrí-
tugs-Róst Bylgju Babýlons klukkan
21 á laugardagskvöld. n
mikael@dv.is
Grínistar grilla þrítuga Bylgju
Einvala uppistandarar munu níða skóinn hver af öðrum á Húrra
Óvenjuleg afmælisveisla Bylgja verður þrí-
tug á þriðjudaginn en heldur upp á það með því
að láta, að eigin sögn, niðurlægja sig uppi á sviði.