Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 19.–22. maí 2017fréttir
S
M Investments ehf., félag
í eigu Ingibjargar Pálma
dóttur, hefur á undanförnum
mánuðum sópað til sín
milljónum hluta í verslun
arrisanum Högum. Félagið á nú 16
milljónir hluta í Högum og er 19.
stærsti hluthafinn í Högum sem á
dögunum birti ársuppgjör sitt þar
sem greint var frá ríflega fjögurra
milljarða króna hagnaði. Sem kunn
ugt er voru Jón Ásgeir Jóhannesson,
eiginmaður Ingibjargar, og fjöl
skylda hans aðaleigendur Haga,
sem rekur meðal annars verslanir
Bónuss og Hagkaupa, fyrir hrun.
Fjölskylda Ingibjargar stofnaði Hag
kaup á sínum tíma en fjölskylda Jóns
Ásgeirs Bónus.
Með uppkaupum SM Invest
ments á hlutum í Högum, sem Arion
banki yfirtók þegar hann tók yfir fé
lagið 1998 ehf. eftir hrun, má segja
að Ingibjörg og Jón Ásgeir séu hægt
og bítandi að boða endurkomu sína
til áhrifa innan félagsins sem hefur
að geyma arfleifð fjölskyldna þeirra.
Snúa aftur í eigendahópinn
DV afhjúpaði þann 22. nóvember
síðastliðinn að nýstofnað fjár
festingarfélag, SM Investments ehf.,
hefði á skömmum tíma eignast
0,94% hlut í Högum, eða 11 milljón
ir hluta, sem metinn var á 600 millj
ónir miðað við gengi bréfa í Högum
þá. Dugði hluturinn þó ekki til að
koma félaginu inn á lista yfir tuttugu
stærstu hluthafa í félaginu.
DV greindi þá frá því að eini hlut
hafi SM Investments væri annað fé
lag í eigu Ingibjargar. Eini stjórnar
maður SM Investments er Jón
Skaftason, lögfræðingur og sam
starfsmaður Jóns Ásgeirs í gegnum
tíðina, sem tók þar sæti 6. október í
fyrra. Félagið er skráð með lögheim
ili að Laugavegi 1b, þar sem mörg
félög á vegum Ingibjargar eru skráð
til húsa. Ingibjörg vildi ekkert tjá sig
um kaupin í Högum þegar DV leit
aði eftir því í nóvember.
Þann 27. janúar síðastliðinn
greindi svo viðskiptavefur Vísis frá því
að Ingibjörg hefði bætt við sig fjór
um milljónum hluta til viðbótar, ætti
nú 15 milljónir hluta í gegnum SM
Investments eða 1,28% eignarhlut,
sem metinn var á 770 milljónir. Það
dugði til að skjóta félaginu inn á lista
yfir stærstu hluthafa verslunarrisans.
870 milljóna hlutur
Nýjustu upplýsingar um hluthafa
Haga, í síðustu viku, sýna að SM
Investments er nú komið upp í 16
milljónir hluta, eða 1,37% eignarhlut
sem metinn er á tæpar 870 milljónir
króna miðað við núverandi gengi
Haga. SM Investments hefur þannig
bætt við sig fimm milljónum hluta
síðasta hálfa árið eða svo og er
þannig orðið eina einkahlutafélagið
í hópi stærstu eigenda Haga. Stærstu
eigendurnir eru sem fyrr íslenskir
lífeyrissjóðir, sjóðir á þeirra vegum,
bankar og fjárfestingarsjóðir, inn
lendir og erlendir.
Sagði bankann
hafa bolað þeim út
Ingibjörg er þó ekki eini afkomandi
Pálma Jónssonar, stofnanda Hag
kaupa, sem á hlut í Högum, því DV
greindi frá því í nóvember að félag
ið Minna Hof ehf. ætti 0,33% hlut í
félaginu en það félag er í eigu Lilju
Pálmadóttur, systur Ingibjargar.
Jón Ásgeir Jóhannesson var afar
ósáttur við hvernig Arion banki stóð
að því þegar hann og fjölskylda hans
misstu forræði yfir Högum síðla árs
2009, þegar Nýi Kaupþing, forveri
Arion banka, eignaðist meirihluta
í móðurfélagi Haga, 1998 ehf. Til
boði fjölskyldunnar til að halda fé
laginu var ekki tekið og ákvað bank
inn að selja 44% hlut í félaginu til
innlendra kjölfestufjárfesta og síð
ar var 30% hlutur seldur í almennu
hlutafjárútboði í árslok 2011, líkt
og DV fjallaði um í frétt sinni í nóv
ember síðastliðnum. Jón Ásgeir gat
ekki falið vonbrigði sín í samtali
við fréttastofu Stöðvar 2 í febrúar
2011 og sagði að svo „virðist sem
peningar hafi ekki haft forgang hjá
Arionmönnum, heldur virðist for
gangsröðunin hafa verið að koma
stofnendum Bónuss út úr Högum.“
Nú virðist sem þau hjónin hafi
augastað á krúnudjásni fjölskyldna
sinna á nýjan leik og séu hægt og síg
andi að auka eignarhlut sinn í versl
unarveldinu. n
20 stærstu eigendur Haga
Eigandi Eignarhlutur Hlutfall
Gildi lífeyrissjóður 139.064.721 11,87%
Lífeyrissjóður starfsm.rík. A-deild 116.220.000 9,92%
Stefnir- ÍS 15 104.272.315 8,90%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 83.851.852 7,16%
Birta lífeyrissjóður 60.785.449 5,19%
Stapi lífeyrissjóður 60.719.634 5,18%
Landsbréf - úrvalsbréf 40.567.510 3,46%
Lífeyrissjóður.starfsm. rík. B-deild 39.445.000 3,37%
Festa-lífeyrissjóður 34.303.469 2,93%
Vátryggingafélag Íslands hf. 30.074.650 2,57%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 26.829.975 2,29%
Stefnir – ÍS 5 24.828.211 2,12%
Global Marco Portfolio 23.017.633 1,97%
IS Hlutabréfasjóðurinn 21.243.060 1,81%
Arion banki 21.008.365 1,79%
Kvika banki 19.894.188 1,70%
Haga hf. 19.168.349 1,64%
Global Marco Absolute Return Ad 18.434.255 1,57%
SM Investments ehf. 16.000.000 1,37%
Lífsverk lífeyrissjóður 15.303.829 1,31%
Listi miðast við stöðu 11. maí 2017
n Bætt við sig fimm milljónum hluta á á hálfu ári n Í hópi stærstu hluthafa
Afkoma Haga
Hagnaður upp á fjóra milljarða -
heildareignir 30 milljarðar
Hagnaður rekstrarársins nam
4.036 millj. kr. eða 5,0% af veltu.
n Hagnaður á hlut var 3,46 kr.
n Vörusala rekstrarársins nam 80.521 millj. kr.
n Framlegð rekstrarársins var 24,8%.
n Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði
og skatta (EBITDA) nam 6.024 millj. kr.
n Heildareignir samstæðunnar námu
30.109 millj. kr. í lok rekstrarársins.
n Handbært fé félagsins nam
2.474 millj. kr. í lok rekstrarársins.
n Eigið fé félagsins nam 17.412 millj. kr.
í lok rekstrarársins.
n Eiginfjárhlutfall var 57,8% í
lok rekstrarársins.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
IngIbjörg sópar tIl
sín hlutum í högum
Sérsveitin á
Breiðholtsbraut
Slagsmál brutust út á umferðar
ljósum á Grensásvegi aðfaranótt
fimmtudags. Þrír bílar voru stopp
á ljósum og lýsir vitni atburða
rásinni á þá leið að þrír menn hafi
stígið út úr einum þeirra og ráðist
á mann sem var í bíl við hliðina.
Einn árásarmannanna var að sögn
vitnis vopnaður kúbeini og sló til
fórnarlambsins.
Fórnarlambið fékk högg á and
lit og djúpan skurð á vör og var
blóðugur í andliti. Hann átti við
ofurefli að etja, stökk upp í bíl og
flúði mennina. Árásarmennirnir
eltu hann á miklum hraða um
götur bæjarins.
Lögregla óskaði eftir aðstoð sér
sveitarinnar og tóku sex lögreglu
bílar þátt í eftirförinni. Breiðholts
braut var síðan lokað og stöðvaði
sérsveitin þar för mannanna.
Lögregla staðfesti í samtali
við DV að árásin hefði átt sér stað
og að einn mannanna hefði sést
sveifla kúbeini. Þrettán lögreglu
menn tóku átt í aðgerðunum.
Árásarmennirnir voru hand
teknir en aðeins einn þeirra
kærður. Skýrslur voru teknar af
mönnunum aðfaranótt fimmtu
dags.
Hjóladagur
í Kópavogi
Hjóladagur fjölskyldunnar verður
haldinn í annað sinn á laugardag á
útivistarsvæði Menningarhúsanna
í Kópavogi. Fjörið byrjar klukkan
13 með hjólatúr um Kársnesið þar
sem fræðst verður um mannlíf og
náttúru á svæðinu en ferðin hefst
við Náttúrufræðistofu. Boðið verð
ur upp á ókeypis ástandsskoðun
á hjólum og þá geta krakkar æft
hjólafærni í þrautabraut á bíla
stæði við útivistarsvæðið. Áhuga
fólk um það nýjasta í hjólatískunni
getur skoðað óvenjuleg hjól og
verkefnið Hjólað óháð aldri verð
ur kynnt og áhugasamir hjólreiða
menn geta skráð sig til þátttöku í
því verðuga verkefni.
41 ökumaður
á von á sekt
Brot 38 ökumanna voru mynd
uð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík
á miðvikudag. Fylgst var með
ökutækjum sem ekið var Kapla
skjólsveg í suðurátt, á móts við
Kaplaskjólsveg 67.
Á einni klukkustund, eftir
hádegi, fóru 82 ökutæki þessa
akstursleið og því ók hátt í
meirihluti ökumanna, eða 46
prósent, of hratt eða yfir af
skiptahraða. Meðalhraði hinna
brotlegu var 44 kílómetrar á
klukkustund en þarna er 30
kílómetra hámarkshraði. Sá
sem hraðast ók mældist á 54
kílómetra hraða.
Þá voru brot þriggja öku
manna til viðbótar mynduð á
Nesjavallaleið á miðvikudag.
Fylgst var með ökutækjum sem
var ekið Nesjavallaleið í aust
urátt.
Á einni klukkustund, fyrir
hádegi, fóru 11 ökutæki þessa
akstursleið og því var ekki mik
il umferð á þessum tíma. Hinir
brotlegu mældust á 83 (2) og 95
kílómetra hraða, en þarna er 70
kílómetra hámarkshraði.