Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 50
30 sport Helgarblað 19.–22. maí 2017 Þ að er stutt í stóra daginn, þann 11. júní, þegar Ís­ land og Króatía munu eigast við í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og sigri íslenska liðið leikinn er liðið komið í góða stöðu. Króatía er á toppi riðilsins með 13 stig en Ísland jafnar þá með sigri. Tölfræðin er þó ekki með ís­ lenska liðinu enda hefur Íslandi ekki tekist að sigra í þremur viður­ eignum liðanna á síðustu árum. „Þessi leikur snýst í rauninni um hvort við ætlum að berjast um fyrsta sætið í riðlinum. Með sigri þá jöfn­ um við þá að stigum og þá gefur það okkur möguleika á fyrsta sætinu. Ef þeir vinna og verða sex stigum á undan okkur, með betri markatölu, þá verður þetta erfitt. Þá verða þeir að misstíga sig í þremur af fjórum síðustu leikjunum og það er ólík­ legt. Við höldum möguleikanum á fyrsta sætinu opnum með sigri og það myndi gera leikina í september og október enn skemmtilegri. Miðað við allan þennan mótvind eftir Evrópumótið í Frakklandi þá væri geggjað að vera í baráttu um efsta sætið í riðlinum eftir rúmlega hálft mót,“ sagði Heimir Hallgríms­ son þjálfari Íslands í samtali við DV á fimmtudag. Undirbúningur íslenska lands­ liðsins hefst á laugardag þegar Heimir, Helgi Kolviðsson og Sebastian Boxleitner, styrktarþjálfari liðsins, hitta Birki Bjarnason. Fleiri leikmenn koma svo til skoðunar á næstu dögum en tímabilið er búið hjá nokkrum leikmönnum og langt er í leikinn. Heimir og félagar ætla því að hjálpa leikmönnum að halda sér í formi fram að leik. Liðið kemur svo allt saman 5. júní. „Við erum að fara að byrja að hitta leikmennina núna á næstu dögum og aðeins að meta þá og sjá stöðuna á þeim sem eru búnir með sína deild. Það fara næstu dagar í að meta það og sjá hvernig stand er á leikmönnum, hvort við þurfum að bæta einhverju við hjá sumum eða bara halda þeim við. Birkir Bjarna­ son er ekki búinn að spila lengi og kannski þurfum við að keyra hann aðeins upp, Aron Einar og Jón Daði þurfa líklega bara að halda sér við og Hörður Björgvin er þarna mitt á milli. Sebastian sér um þetta með okkur og við setjum upp plan fyrir hvern einn. Svo heldur maður áfram að fylgjast með þeim sem eru að spila. Þetta er ekki alveg óskastaða hjá okkur núna, það eru óvenju­ margir leikmenn sem eru ekki að spila hjá sínu félagsliði. Margir lykil­ menn okkar hafa spilað lítið.“ Andlega hliðin mikilvæg Síðasta ár hefur verið erfitt fyrir ís­ lensku leikmennina en lítið sem ekkert sumarfrí síðasta sumar vegna þátttöku á EM í Frakklandi hefur tekið mikið á menn líkam­ lega og andlega. „Það er samt mjög mikilvægt líka að menn fái frí, allur undirbúningur okkar fyrir þennan leik mun miða að því að hafa þetta létt og skemmtilegt. Menn eru búnir að gefa mikið af sér þetta síðasta ár, við reynum að hafa þetta eins líflegt og hægt er. Það er alveg jafn mikil­ vægt að gefa frí eins og það er að æfa á þessum tímapunkti. Það er mikil­ vægt að hafa menn andlega tilbúna, yfirleitt gerist það nú sjálfkrafa því það er alltaf líf og fjör þegar strák­ arnir hittast í þessum landsleikja­ vikum og ég hef því litlar áhyggjur af þeim hluta. Við þurfum að varast að vera of metnaðarfullir í æfingum því hvíldin á þessum árstíma skiptir meira máli en á öðrum.“ Margir lykilmenn ekki að spila Síðustu mánuðir hafa verið flóknari fyrir Heimi en þeir voru hér fram að EM, þá voru lykilmenn liðsins alltaf heilir og gátu spilað alla leiki. Nú hafa hins vegar komið upp meiðsli og Heimir hefur þurft að skapa meiri breidd í hópinn. Hann segir að það sé eðlilegra að meiðsli séu til stað­ ar en ekki, eins og staðan var oft. „Strákarnir hafa alltaf fengið að hafa áhrif á álagið í landsliðsverkefnum. Þeir vita hvað er best fyrir þá og við hlustum á það, þetta eru atvinnu­ menn og hafa alltaf verið faglegir í þessum málum. Við erum með færri leikmenn í meiðslum núna en áður, það sem er óvenjulegra er að margir lykilmenn eru lítið að spila. Kári Árnason hefur átt við meiðsli að stríða og sömu sögu er að segja af Ara Frey. Jóhann Berg og Birkir Bjarnason eru svo að stíga upp úr meiðslum, stærsta spurningin er varðandi Birki og við skoðum hvort hann sé maður í leik gegn Króötum. Þetta var í rauninni lygilegt hvernig þessi fjögur ár voru hjá okk­ ur fram að Evrópumótinu, það var nánast alltaf sama byrjunarliðið. Staðan í dag er í raun líkari eðli­ legu ástandi. Ég get viðurkennt að þetta hefur reynt aðeins á, Ísland vinnur leikina sína á góðri liðs­ heild og endurtekið sama byrjunar­ lið styrkir hana. Allir leikmenn þekkja þá styrkleika og veikleika hver annars og breyting mynd­ ar oft óvissu. Þetta er samt eðlilegt ástand, hitt var í raun óeðlilegt. Við tókum meðvitaða ákvörðun fyrir tveimur árum um að gefa öðrum leikmönnum æfingarleikina til að auka breiddina. Sú ákvörðun var góð, breiddin hefur aukist og það eru fleiri leikmenn sem geta valdið þessum hlutverkum. Við treystum fleiri leikmönnum í dag.“ Króatíugrýla Íslenska liðið er farið að þekkja vel til Króatíu eftir leikina undanfar­ ið, í fyrri leiknum í þessum riðli tapaði Ísland 2­0 í Zagreb en leik­ urinn hjá íslenska liðinu var vel spilaður og liðið óheppið að taka ekki stig úr þeim leik. Lið Króatíu er afar vel mannað og liðið eitt það besta í knattspyrnunni í dag. „Við búum að mikilli reynslu af leikjum við Króatíu, þetta eru þrír leikir á þremur árum. Þeir hafa góða leikmenn og ef maður skoðar hvar þeir eru að spila, þá fæst það staðfest. Þeir voru með fjóra leikmenn í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, þeir eru með markmann í Monaco, framherja í Juventus, tvo miðjumenn í Real Madrid, miðjumann í Barcelona. Þessir menn eru að spila mjög vel og eru að toppa sig á þessum tímapunkti. Þeir eru með frábæra einstaklinga sem mynda gott lið. Við verðum að leika vel og nánast eiga hinn fullkomna leik til að vinna þá. Við náðum svolítið að núlla þá út með góðum varnarleik í Króatíu en það bitnaði á sóknarleiknum okkur.“ Warnock velur ekki íslenska landsliðið Neil Warnock, stjóri Cardiff þar sem fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson spilar, hefur verið að senda Heimi pillur síðustu mánuði. Warnock gagnrýndi Heimi fyrir að halda Ar­ oni í 90. mínútur í landsleik gegn Ír­ landi á dögunum og þá gagnrýndi hann Heimi og KSÍ fyrir að vilja fá Aron snemma til æfinga fyrir leik­ inn mikilvæga gegn Króatíu. „Ég skil að Neil Warnock vilji vinna sína leiki sem stjóri Cardiff en við viljum vinna okkar leiki. Hann velur ekki íslenska landsliðið og ég vel ekki liðið hjá Cardiff. Ég hef ekki ástæðu til þess að vera að sverta hann eða skoðanir hans í blöðum. Hann er með pressu á sínum herðum í sínu starfi og vill að sínir leikmennirnir komi ferskir úr landsleikjafríi sem er mótsögn í sjálfu sér.“ n Hafa gefið mikið af sér síðasta árið n Styttist í stórleik gegn Króatíu n Undirbúningur að hefjast Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Við verðum að leika vel og nánast eiga hinn fullkomna leik til að vinna þá Heimir Hallgrímsson Undirbúningurinn fyrir stórleikinn gegn Króatíu er hafin. Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.