Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Síða 50
30 sport Helgarblað 19.–22. maí 2017
Þ
að er stutt í stóra daginn,
þann 11. júní, þegar Ís
land og Króatía munu
eigast við í undankeppni
fyrir heimsmeistaramótið
í Rússlandi. Leikurinn fer fram á
Laugardalsvelli og sigri íslenska
liðið leikinn er liðið komið í góða
stöðu. Króatía er á toppi riðilsins
með 13 stig en Ísland jafnar þá með
sigri. Tölfræðin er þó ekki með ís
lenska liðinu enda hefur Íslandi
ekki tekist að sigra í þremur viður
eignum liðanna á síðustu árum.
„Þessi leikur snýst í rauninni um
hvort við ætlum að berjast um fyrsta
sætið í riðlinum. Með sigri þá jöfn
um við þá að stigum og þá gefur það
okkur möguleika á fyrsta sætinu.
Ef þeir vinna og verða sex stigum á
undan okkur, með betri markatölu,
þá verður þetta erfitt. Þá verða þeir
að misstíga sig í þremur af fjórum
síðustu leikjunum og það er ólík
legt. Við höldum möguleikanum á
fyrsta sætinu opnum með sigri og
það myndi gera leikina í september
og október enn skemmtilegri.
Miðað við allan þennan mótvind
eftir Evrópumótið í Frakklandi þá
væri geggjað að vera í baráttu um
efsta sætið í riðlinum eftir rúmlega
hálft mót,“ sagði Heimir Hallgríms
son þjálfari Íslands í samtali við DV
á fimmtudag.
Undirbúningur íslenska lands
liðsins hefst á laugardag þegar
Heimir, Helgi Kolviðsson og
Sebastian Boxleitner, styrktarþjálfari
liðsins, hitta Birki Bjarnason. Fleiri
leikmenn koma svo til skoðunar á
næstu dögum en tímabilið er búið
hjá nokkrum leikmönnum og langt
er í leikinn. Heimir og félagar ætla
því að hjálpa leikmönnum að halda
sér í formi fram að leik. Liðið kemur
svo allt saman 5. júní.
„Við erum að fara að byrja að
hitta leikmennina núna á næstu
dögum og aðeins að meta þá og sjá
stöðuna á þeim sem eru búnir með
sína deild. Það fara næstu dagar í að
meta það og sjá hvernig stand er á
leikmönnum, hvort við þurfum að
bæta einhverju við hjá sumum eða
bara halda þeim við. Birkir Bjarna
son er ekki búinn að spila lengi og
kannski þurfum við að keyra hann
aðeins upp, Aron Einar og Jón Daði
þurfa líklega bara að halda sér við
og Hörður Björgvin er þarna mitt á
milli. Sebastian sér um þetta með
okkur og við setjum upp plan fyrir
hvern einn. Svo heldur maður áfram
að fylgjast með þeim sem eru að
spila. Þetta er ekki alveg óskastaða
hjá okkur núna, það eru óvenju
margir leikmenn sem eru ekki að
spila hjá sínu félagsliði. Margir lykil
menn okkar hafa spilað lítið.“
Andlega hliðin mikilvæg
Síðasta ár hefur verið erfitt fyrir ís
lensku leikmennina en lítið sem
ekkert sumarfrí síðasta sumar
vegna þátttöku á EM í Frakklandi
hefur tekið mikið á menn líkam
lega og andlega. „Það er samt mjög
mikilvægt líka að menn fái frí, allur
undirbúningur okkar fyrir þennan
leik mun miða að því að hafa þetta
létt og skemmtilegt. Menn eru búnir
að gefa mikið af sér þetta síðasta ár,
við reynum að hafa þetta eins líflegt
og hægt er. Það er alveg jafn mikil
vægt að gefa frí eins og það er að æfa
á þessum tímapunkti. Það er mikil
vægt að hafa menn andlega tilbúna,
yfirleitt gerist það nú sjálfkrafa því
það er alltaf líf og fjör þegar strák
arnir hittast í þessum landsleikja
vikum og ég hef því litlar áhyggjur
af þeim hluta. Við þurfum að varast
að vera of metnaðarfullir í æfingum
því hvíldin á þessum árstíma skiptir
meira máli en á öðrum.“
Margir lykilmenn ekki að spila
Síðustu mánuðir hafa verið flóknari
fyrir Heimi en þeir voru hér fram að
EM, þá voru lykilmenn liðsins alltaf
heilir og gátu spilað alla leiki. Nú
hafa hins vegar komið upp meiðsli
og Heimir hefur þurft að skapa meiri
breidd í hópinn. Hann segir að það
sé eðlilegra að meiðsli séu til stað
ar en ekki, eins og staðan var oft.
„Strákarnir hafa alltaf fengið að hafa
áhrif á álagið í landsliðsverkefnum.
Þeir vita hvað er best fyrir þá og við
hlustum á það, þetta eru atvinnu
menn og hafa alltaf verið faglegir
í þessum málum. Við erum með
færri leikmenn í meiðslum núna en
áður, það sem er óvenjulegra er að
margir lykilmenn eru lítið að spila.
Kári Árnason hefur átt við meiðsli
að stríða og sömu sögu er að segja
af Ara Frey. Jóhann Berg og Birkir
Bjarnason eru svo að stíga upp úr
meiðslum, stærsta spurningin er
varðandi Birki og við skoðum hvort
hann sé maður í leik gegn Króötum.
Þetta var í rauninni lygilegt
hvernig þessi fjögur ár voru hjá okk
ur fram að Evrópumótinu, það var
nánast alltaf sama byrjunarliðið.
Staðan í dag er í raun líkari eðli
legu ástandi. Ég get viðurkennt að
þetta hefur reynt aðeins á, Ísland
vinnur leikina sína á góðri liðs
heild og endurtekið sama byrjunar
lið styrkir hana. Allir leikmenn
þekkja þá styrkleika og veikleika
hver annars og breyting mynd
ar oft óvissu. Þetta er samt eðlilegt
ástand, hitt var í raun óeðlilegt. Við
tókum meðvitaða ákvörðun fyrir
tveimur árum um að gefa öðrum
leikmönnum æfingarleikina til að
auka breiddina. Sú ákvörðun var
góð, breiddin hefur aukist og það
eru fleiri leikmenn sem geta valdið
þessum hlutverkum. Við treystum
fleiri leikmönnum í dag.“
Króatíugrýla
Íslenska liðið er farið að þekkja vel
til Króatíu eftir leikina undanfar
ið, í fyrri leiknum í þessum riðli
tapaði Ísland 20 í Zagreb en leik
urinn hjá íslenska liðinu var vel
spilaður og liðið óheppið að taka
ekki stig úr þeim leik. Lið Króatíu
er afar vel mannað og liðið eitt það
besta í knattspyrnunni í dag. „Við
búum að mikilli reynslu af leikjum
við Króatíu, þetta eru þrír leikir á
þremur árum.
Þeir hafa góða leikmenn og ef
maður skoðar hvar þeir eru að spila,
þá fæst það staðfest. Þeir voru með
fjóra leikmenn í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar, þeir eru með
markmann í Monaco, framherja
í Juventus, tvo miðjumenn í Real
Madrid, miðjumann í Barcelona.
Þessir menn eru að spila mjög
vel og eru að toppa sig á þessum
tímapunkti. Þeir eru með frábæra
einstaklinga sem mynda gott lið. Við
verðum að leika vel og nánast eiga
hinn fullkomna leik til að vinna þá.
Við náðum svolítið að núlla þá út
með góðum varnarleik í Króatíu en
það bitnaði á sóknarleiknum okkur.“
Warnock velur ekki
íslenska landsliðið
Neil Warnock, stjóri Cardiff þar sem
fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson
spilar, hefur verið að senda Heimi
pillur síðustu mánuði. Warnock
gagnrýndi Heimi fyrir að halda Ar
oni í 90. mínútur í landsleik gegn Ír
landi á dögunum og þá gagnrýndi
hann Heimi og KSÍ fyrir að vilja fá
Aron snemma til æfinga fyrir leik
inn mikilvæga gegn Króatíu. „Ég
skil að Neil Warnock vilji vinna sína
leiki sem stjóri Cardiff en við viljum
vinna okkar leiki. Hann velur ekki
íslenska landsliðið og ég vel ekki
liðið hjá Cardiff. Ég hef ekki ástæðu
til þess að vera að sverta hann eða
skoðanir hans í blöðum. Hann er
með pressu á sínum herðum í sínu
starfi og vill að sínir leikmennirnir
komi ferskir úr landsleikjafríi sem er
mótsögn í sjálfu sér.“ n
Hafa gefið mikið
af sér síðasta árið
n Styttist í stórleik gegn Króatíu n Undirbúningur að hefjast
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Við verðum
að leika vel
og nánast eiga
hinn fullkomna
leik til að vinna þá
Heimir Hallgrímsson Undirbúningurinn fyrir
stórleikinn gegn Króatíu er hafin. Mynd Sigtryggur Ari