Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2017, Blaðsíða 46
26 sakamál Helgarblað 19.–22. maí 2017
n Karen var myrt n Móðir hennar rannsakaði málið sjálf
Þ
egar Karen, 14 ára dóttur
mexíkósku konunnar
Miriam Rodriguez
Martinez, var rænt í sjálf-
stjórnarhéraðinu San
Fernando í Mexíkó, árið 2012, fékk
Miriam sig fullsadda af aðgerða-
leysi og seinagangi yfirvalda og lög-
reglunnar. Að lokum sá hún þann
kost vænstan að taka málið, og
rannsóknina, í eigin hendur.
Fann lík dóttur sinnar
Sagt er að ættingjar þeirra sem
hverfa sporlaust í Mexíkó leiki iðu-
lega lykilhlutverk í að finna leyni-
legar fjöldagrafir, sem sumar hverj-
ar geyma líkamsleifar hundraða
fórnarlamba. Fyrir vikið eiga þeir
yfir höfði sér grimmilega hefnd af
hálfu glæpasamtaka.
Miriam lét slíkar áhyggjur ekki
hafa áhrif á sig og innan skamms
fann hún líkamsleifar dóttur sinn-
ar og ýmislegt sem bendlaði glæpa-
samtökin Los Zetaz við morðið.
Samtök 600 fjölskyldna
Los Zetaz eru ein alræmdustu
glæpasamtök í Mexíkó og voru
nokkrir meðlimir þeirra hand-
teknir, ákærðir og síðan dæmdir til
fangelsisvistar.
Í kjölfar þessa alls stóð Miriam
að stofnun samtaka fjölskyldna
sem leituðu horfinna ættingja og
töldu samtökin um 600 fjölskyld-
ur. Fjöldinn ætti ekki að koma á
óvart því San Fernando er að sögn
það svæði Mexíkó þar sem hvort
tveggja tíðni mannrána og annars
konar glæpa er hvað hæst.
Þess má geta að undir árs-
lok 2006 hóf þá nýkjörinn forseti
Mexíkó, Felipe Calderón, herferð
gegn skipulögðum glæpasamtökum
í landinu, en síðan þá hafa 200.000
manns verið myrtir og um 30.000 er
saknað.
Hótunarbréf
Í mars bar það til tíðinda að einn
ódámur sem tengdist morðinu
á Karen og hafði, ásamt fleirum,
fengið fangelsisdóm árið 2012 fyrir
það, náði að flýja úr prísundinni.
Fljótlega í kjölfar þess varð ljóst að
einhver, hugsanlega sá hinn sami,
taldi sig eiga Miriam grátt að gjalda
því henni fóru að berast bréf þar
sem henni var hótað öllu illu, þar
á meðal dauða. Þeir sem hótuðu
Miriam létu ekki sitja við orðin tóm.
Morð á mæðradaginn
Mexíkóski mæðradagurinn er
haldinn 10. maí og þá fara fjölskyld-
ur horfinna ástvina í kröfugöngur til
að þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir
til að stemma stigu við skipulögð-
um glæpum.
Einmitt þann dag réðust vopn-
aðir menn inn á heimili Miriam og
höfðu ekkert gott í hyggju. Miriam
reyndi að komast undan en var
skotin 12 sinnum og lést síðar í
sjúkrabíl á leið á sjúkrahús.
Misheppnuð mannránstilraun
Einhverju áður höfðu Los Zetas gert
árangurslausa tilraun til að ræna
eiginmanni Miriam og í kjölfarið
hafði hún samband við yfirvöld og
sagði farir þeirra hjóna ekki sléttar.
Vinir Miriam í samtökunum
sem hún kom á laggirnar fullyrtu
að hún hefði þá farið þess á leit við
stjórnvöld að hún fengi lögreglu-
vernd, en hún hefði farið bónleið
til búðar. Yfirvöld vísuðu þeirri full-
yrðingu til föðurhúsanna og sögðu
að lögreglan hefði ekið fram hjá
húsi Miriam, til að tryggja öryggi
hennar, þrisvar sinnum á dag. Nú
er ljóst að þær öryggisráðstafanir
hrukku skammt. n
„Fyrir vikið eiga
þeir yfir höfði sér
grimmilega hefnd af
hálfu glæpasamtaka.
Morð á Mæðradag
Miriam
Rodriguez
Martinez Var
þyrnir í augum
mexíkóskra
glæpasamtaka.